Víkurfréttir - 29.07.2020, Blaðsíða 46
Keflavík tók á móti Víkingi í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu á Nettóvellinum í sjöundu umferð
Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu. Fyrir leikinn var Keflavík í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Tinda-
stóli, en Víkingar í því sjötta.
Keflavík eina taplausa liðið
Eftir sjö umferðir hafa Keflavíkurstelpurnar
ekki tapað leik, þar hafa gert tvö jafntefli en
sigrað í fimm leikjum. Markatala þeirra er
einnig stórgóð, hafa skorað 22 og fengið fjögur
mörk á sig. Dröfn Einarsdóttir er markahæst
í deildinni með sex mörk og Natasha Anasi
kemur í kjölfarið með fimm.
Keflvíkingar ná forystu
skömmu fyrir leikhlé
Keflavík byrjaði leikinn gegn Víkingi vel og
sóttu stíft að marki þeirra, eftir því sem leið
á hálfleikinn komst Víkingur þó betur inn í
leikinn en Keflavíkurstelpurnar höfðu þó töglin
og hagldirnar og sköpuðu sér nokkur ágætis
færi. Natasha Anasi var ógnandi og átti m.a.
skot í utanverða stöngina, þá var Paula Wat-
nick spræk og hættuleg fram á við.
Það var þó ekki fyrr en á 43. mínútu að
fyrsta markið leit dagsins ljós, þar var Paula að
verki eftir að hafa hirt frákast af skoti Amelíu
Rúnar Fjeldsted. Paula var svo aftur á ferðinni
skömmu síðar þegar hún átti sendingu á Ísabel
Jasmín Almarsdóttur sem tvöfaldaði forystu
Keflavíkur (45’+1). Staðan 2:0 í hálfleik.
Víkingar minnka muninn
Stelpurnar í Keflavík hófu síðari hálfleikinn af
krafti og voru ógnandi upp við mark Víkinga en
markvörður þeirra sá við því sem kom á markið.
Á 58. mínútu náðu Víkingar þó að skora gott
mark og komast aftur inn í leikinn. 2:1. Við það
að fá mark á sig misstu Keflavíkurstelpurnar
aðeins dampinn en voru þó ekki lengi að hrista
slenið af sér. Paula komst í gott færi aðeins
nokkrum mínútum síðar en markvörðu Víkinga
var enn á réttum stað og varði skot hennar vel.
Víkingar voru ákveðnar í að jafna leikinn en
fyrirliði Keflvíkinga var ekki á þeim buxunum
þegar hún tók á rás upp völlinn, gaf góða send-
ingu á mann leiksins, Anítu Lind Daníelsdóttur,
sem skoraði með góðu skoti í fjærhornið og
Keflavík aftur komið með tveggja marka forystu
(82’). Það var svo Kara Petra Aradóttir sem
skoraði síðast markið aðeins mínútu eftir að
henni var skipt inn á (89’) og lokatölur leiksins
urðu 4:1 fyrir Keflavík.
Keflavík á toppnum
Eftir leikina í sjöundu umferði sitja Keflavíkur-
stelpur einar í efsta sæti því á sama tíma tapaði
Tindastóll fyrir Haukum. Keflvíkingar eru því
efstar með sautján stig og hafa ekki tapað leik
í deildinni í sumar.
Lengjudeild kvenna:
Keflavíkur-
stelpur
einar
á toppnum
Aníta Lind Daníelsdóttir var að
öðrum ólöstuðum besti leikmaður
Keflavíkur í leiknum gegn Víkingi,
vann vel og skoraði mark.
Markvörður Víkinga varði oft og
tíðum vel, það dugði ekki til því hún
þurfti engu að síður að sækja boltann
fjórum sinnum í netið. VF-mynd: JPK
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
46 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár