Víkurfréttir - 29.07.2020, Blaðsíða 65
„Sumarið var kærkomið eftir sérkennilegan og erfiðan vetur. Ég byrjaði að
flakka aðeins um í maí. Fór í dagsferðir á Suðurlandinu og tók eina nótt á
hótelinu á Kirkjubæjarklaustri. Það var yndislegt að fá að upplifa og njóta
friðsældar og fegurðar náttúrunnar, þar sem afar fáir voru á ferli fyrripart
sumars,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður úr Njarðvík.
Hvaða staðir á Íslandi hafa
heillað þig?
„Ég hef alltaf verið mikið fyrir að
ferðast um landið, elska útilegur og
á veturna ferðast ég líka um vegna
starfsins, oftast um Suðurlandið. Ég
get ekki gert upp á milli staða á Ís-
landi. Landið allt er ægifagurt í öllu
sínu veldi og náttúran er síbreytileg.
Birtan og veðrið, litirnir og árstíð-
irnar. Allt þetta býr til stemmingu
sem hrífur mig á ólíkan hátt.“
Hvað ætlar þú að gera um
Verslunarmannahelgina?
„Ég er ekki með neitt plan fyrir
Verslunarmannahelgina. Ætla
að sjá til með veður og í hvernig
stuði ég verð. Vinkona mín, sem
býr í Noregi, er hér á ferðalagi með
fjölskyldu sinni. Það gæti allt eins
verið að ég myndi elta þau eitt-
hvert. Það skiptir eiginlega ekki
máli hvar maður er, góður félags-
skapur er málið.“
Hver er eftirminnilegasta
Verslunarmannahelgin þín?
Eftirminnilegasta Verslunar-
mannahelgin mín hlýtur eigin-
lega að vera þegar ég fór á mína
fyrstu Þjóðahátíð með nokkrum
vinkonum úr Njarðvík. Veðrið var
hræðilegt. Endalaus rigning og
brjálað rok. Við komumst ekki frá
Eyjum vegna veðurs og höfðum
í engin hús að vernda. Peninga-
lausar og allt rennandi blautt. Það
endaði með því að ein vinkonan
bankaði uppá hjá einhverjum strák
sem hún kannaðist lauslega við og
við fengum að gista á stofugólfinu
heima hjá honum. Aumingja strák-
urinn að fá okkur allar sex í heim-
sókn.“
Hvað finnst þér mikilvægt
að hafa um Verslunarmanna-
helgina?
„Gott veður er bónus en góður fé-
lagsskapur nauðsynlegur“, segir
Silja Dögg.
Aumingja strákurinn að fá okkur
allar sex í næturheimsókn
Páll Ketilsson
pket@vf.is
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 65
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.