Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Síða 4
4 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 0
Á árinu er haldið upp á sjómanna-
daginn í 83. sinn. Fyrsti sjómanna-
dagurinn var haldinn hátíðlegur
6. júní 1938 og fóru hátíðahöldin
fram við Leifsstyttuna á Skólavörðu-
holtinu í Reykjavík. Á hverju ári
síðan hefur verið haldið upp á
sjómannadaginn í Reykjavík með
líku sniði og þennan fyrsta dag.
Hátíðahöld sjómannadagsins hafa
aldrei fallið niður frá þessum fyrsta
degi árið 1938 þrátt fyrir heims-
styrjöld og mikla sjóskaða bæði af
völdum hernaðar og af veðurfarsleg-
um ástæðum. Sjórinn var sóttur fast
og verð á aflanum var oftast gott. Ný
og betri fiskiskip bættust stöðugt
í flotann og hefur verið svo fram á
þennan dag. Með aukinni þekkingu
á öryggi, bættum skipakosti og
reglum um fiskveiðar hefur slysum á
sjó fækkað verulega og undanfarin
fjögur ár hefur enginn sjómaður
týnt lífi á sjó og má það líklega
þakka mest ofangreindum þáttum.
Nauðsynlegt er að halda fræðslu um
öryggismál áfram af miklum krafti
því enn er of mikið um slysfarir um
borð í skipum. Mikil þörf er á að
koma í veg fyrir þau og láta hvergi
deigan síga. Við getum það og höfum
sýnt að það er hægt. Við eigum að
sýna þeim er þar fara fremstir í flokki
hversu mikils við metum störf þeirra.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og
Slysavarnafélagsins Landsbjargar,
auk sjómannanna sjálfra, hafa
sýnt mikinn dugnað, drengskap og
djörfung við að aðstoða skip þegar
þess hefur verið þörf. Störf þeirra
hafa verið ómetanleg. Hafi þeir mikla
þökk fyrir.
Það verður hins vegar á þessu ári
sem hátíðahöld sjómannadagsins
falla niður í fyrsta skipti og ekki af
völdum stríðsátaka, sem
kannski hefði komið fyrst
upp í hugann, heldur af
veirufaraldri sem hefur
sett svip sinn á alla
heimsbyggðina og á ég
þar við Covid-19. Allt
samkomuhald hefur verið
fellt niður og á grundvelli
þess og í samráði við
almannavarnir var ákveðið
að hefðbundin hátíðahöld yrðu
felld niður. Þetta var erfið ákvörðun
en ekki um annað að ræða eins og
mál hafa ráðist nú í mars fram á
þennan dag. Vonir stóðu til að hægt
yrði að hafa hefðbundna athöfn við
minnisvarða óþekkta sjómannsins
og minningaröldur sjómanna í
Fossvogskirkjugarði en við nánari
skoðun reyndist það óframkvæm-
anlegt. Lítillega hefur verið losað
um hömlur á samkomuhaldi en
ekki nóg til að hafa megi hátíðahöld
eins og tíðkast hafa seinni ár og sett
hafa mikinn svip á borgarlífið.
Sjómannaguðsþjónusta verður
í Dómkirkjunni í Reykjavík og
verður henni útvarpað eins og
venja er til. Takmarka verður
aðgang að kirkjunni og verður
það gert í samráði og undir stjórn
starfsfólks kirkjunnar. Skrúðganga
frá safnaðarheimili Dómkirkjunnar
að kirkju fellur niður. Sjómenn úr
röðum starfsmanna Landhelgis-
gæslunnar lesa ritningarorð eins og
verið hefur undanfarin ár. Meðan á
guðsþjónustu stendur verður lagður
blómsveigur á minningaröldur
sjómanna í Fossvogskirkjugarði.
Margs er að minnast úr starfi
Sjómannadagsráðs höfuðborgar-
svæðisins á liðnu ári. Má þar fyrst
nefna byggingu nýs eldhúss við
Hrafnistu í Reykjavík.
Eldhúsinu er ætlað að
framkvæma alla matargerð
fyrir Hrafnistuheimilin á
höfuðborgarsvæðinu, en
þau er nú alls sex talsins.
Matur fyrir Hrafnistuheim-
ilin tvö í Reykjanesbæ
verður þó framleiddur
áfram í Reykjanesbæ.
Miklar byggingarfram-
kvæmdir hafa staðið yfir við nýtt
hjúkrunarheimili við Sléttuveg í
Reykjavík samfara því að unnið
var við byggingu leiguíbúða þar
og þjónustubyggingar fyrir íbúa
svæðisins. Hefur verið ánægjulegt
að fylgjast með áhuga íbúa á
svæðinu á byggingarframkvæmdum
og hefur ekki skort á liðsinni þeirra
um ýmsa hluti. Á þessu svæði í
Fossvogi býr margt eldra fólks sem
væntir þess að þjónustubyggingin
komi því og öðrum að góðum notum,
en þar verður ýmiss konar þjónusta
auk kaffi- og veitingahúss. Má ætla
að þar verði oft fjörugt þegar margir
koma saman við leik og skemmtun.
Við þökkum nágrönnum okkar við
Sléttuveg og næsta umhverfi þolin-
mæði og skilning á öllu því raski sem
fylgt hefur framkvæmdum.
Hjúkrunarheimilið er eign
ríkis og borgar en samið var fyrir
nokkrum árum að Hrafnista sæi
um rekstur þess. Að auki samþykkti
Reykjavíkurborg að semja við
Hrafnistu um umsjón byggingar-
framkvæmda og samninga við
byggingaraðila. Heimilið er byggt
í nánu sambandi við starfsfólk
Hrafnistu og er fyrirkomulag
hússins samkvæmt óskum. Það var
gert til að tryggja að fyrirkomulag
allt yrði með sem skilvirkustum
hætti bæði fyrir skjólstæðinga
okkar og með rekstrarhagkvæmni
í huga. Yfirumsjón með byggingar-
framkvæmdum höfðu starfsmenn
Sjómannadagsráðs í samvinnu við
THG Arkitekta og Reykjavíkurborg.
Samvinna við Reykjavíkurborg og
Heilbrigðisráðuneyti hefur verið
með miklum ágætum og sýnt og
sannað að hægt er að eiga góða
samvinnu, þótt ólíkir aðilar eigist
við. Ólíkt flestum framkvæmdum
sem við heyrum af tókst að byggja
hjúkrunarheimilið undir áætluðum
kostnaði, sem metinn var fyrir
þremur árum, og er munurinn um
200 milljónir króna. Framkvæmd-
um við þjónustubyggingu er
nýlokið og hún hefur verið tekin í
notkun. Í maílok var borgarstjórinn
í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson,
fenginn til að opna dagdvölina
„Röstina“ í þjónustumiðstöðinni
fyrir 30 einstaklinga. Samningur
hefur verið gerður við Reykja-
víkurborg um leigu á stórum hluta
byggingarinnar sem nýtast mun til
ýmiss konar starfsemi fyrir aldraða.
Um leið og ég þakka heimilis-
fólki Hrafnistu og nágrönnum á
Sléttuvegi samstarfið og starfsfólki
Sjómannadagsráðs og happdrættis
DAS fyrir óeigingjörn og vel unnin
störf vil ég senda starfsfólki Hrafn-
istuheimilanna sérstakar þakkir
fyrir frábæran árangur og fórnfýsi
í baráttu við þessa erfiðu og illvígu
veiru. Ég sendi þakkir og virðingu
til íslenskrar sjómannastéttar fyrir
allan árangur og dug á liðnu ári.
Gleðilegan sjómannadag!
Hálfdan Henrysson,
stjórnarformaður
Sjómannadagsráðs.
Þegar ég fór ungur maður til sjós á
togara heima á Dalvík var umhverfi
sjómannsins allt annað en það er
í dag. Maður ólst upp við það að
sjómennskan væri hættulegt starf
sem á stundum gæfi vel í aðra hönd,
stéttin væri hörð í horn að taka en
stæði þétt saman þegar á reyndi.
Mannlífið á Dalvík, líkt og í
flestum sjávarplássum landsins,
rís og hnígur í takt við sjólagið
í sjávarútvegi landsmanna. Í
uppvextinum ólst ég upp við leik og
starf í fjörunni, á bryggjunum og á
síldarplönum, svo ég tali nú ekki
um Netagerð Dalvíkur hf. Og svo
fór maður fyrst á sjóinn á sumrin í
skólafríum, á togara, og datt þá inn
í þetta samfélag „jaxlanna“ sem svo
var oft kallað, sérstaklega
af þeim sem ekki þekktu
til. Þarna kynntist maður
margvíslegum manngerð-
um, allt frá óhörðnuðum
unglingum til saltstork-
inna sögufrægra einstak-
linga sem voru komnir
nokkuð við aldur.
Í þá daga var stálskrokk-
ur skipsins lokuð veröld,
án mikilla tenginga í land nema í
gegnum gömlu „Gufuna“. Einstaka
símtal gat þó komið til, ef mikið lá
við, í gegnum radíóin sem allir gátu
hlýtt á ef vilji manna stóð til þess.
Við þekkjum öll sögurnar af ungu
mönnunum sem fengu símtal eða
skeyti um borð um fæðingu barns.
Fram kom lítið annað en
kyn barnsins og kannski
einhver orð um að „barni og
móður heilsast vel“. Tóku
þó allir þátt í gleðinni yfir
þessum tímamótum með
hinum nýbakaða föður.
Þetta er allt annað í
dag; fjarskipti eru greiðari,
upplýsingar og tenging við
mannlíf með betri hætti og
aðbúnaður. Sumum þykir jafnvel
nóg um allar síma- og fjarskipta-
tengingarnar. Sjálfum þykir mér
gott að leggja farsímann frá mér
og verður mér stundum hugsað til
daganna þegar ég var til sjós og sá
ekki annað fyrir mér en að það yrði
lífsstarf mitt.
Mikilvægustu framfarirnar fyrir
störf sjómanna eru sá árangur sem
hefur náðst í slysavörnum til sjós.
Enginn sjómaður fórst á síðasta ári
við strendur landsins, sem er sjötta
árið sem slíkt gerist og þriðja árið
í röð. Þessi gleðitíðindi koma fram
í ársskýrslu rannsóknarnefndar
samgönguslysa og ber að þakka af
heilum hug. Þegar haft er í huga
að sá vetur sem nú er að baki hefur
reynst sjómönnum afar erfiður,
miklar brælur og sjólag oft með
versta móti, er maður enn þakklát-
ari öllum þeim sem lagt hafa því
liðsinni sitt að forða slysum til sjós.
Skip og búnaður batna ár frá ári og
þekkingu og færni sjómanna fleygir
fram en glíma þeirra við náttúru-
öflin lýtur ætíð sömu lögmálum.
Aðbúnaður, hugarfar og slysavarnir
hafa gert okkur kleift að ná þeim
árangri sem raun ber vitni og fyrir
það ber að þakka.
Markmiðið áhafnar er alltaf það
sama þegar lagt er úr höfn; að afla
vel og koma heil heim. Eins og var
í sjóferðabænum langfeðra okkar,
þar sem heitið var á almættið fyrir
huldum öflum lofts og lagar svo að
skipið yrði leitt farsællega á djúpið.
Ég óska sjómönnum, fjölskyldum
þeirra og landsmönnum öllum
gleðilegs sjómannadags.
Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra
Afla vel og koma heil heim
erfið ákvörðun eftir óslitin hátíðahöld
Um Sjómannadagsráð
höfuðborgarsvæðisins
Að Sjómannadagsráði höfuðborgar-
svæðisins standa eftirtalin stéttar-
félög sjómanna:
» Félag skipstjórnarmanna, Félag
vélstjóra og málmtæknimanna,
Sjómannafélag Íslands, Félag
íslenskra loftskeytamanna, Sjó-
mannafélag Hafnarfjarðar og Félag
bryta.
Tilgangur og markmið
Sjómannadagsráðs eru m.a.:
» Að efla samhug meðal sjómanna og
hinna ýmsu starfsgreina sjómanna-
stéttarinnar og vinna að nánu
samstarfi þeirra.
» Að heiðra minningu látinna sjómanna
og sérstaklega þeirra sem látið hafa
líf sitt vegna slysfara í starfi.
» Að kynna þjóðinni áhættusöm störf
sjómannsins og hin mikilvægu störf
sjómannastéttarinnar í þágu
þjóðfélagsins.
» Að beita sér fyrir menningarmálum er
sjómannastéttina varða og vinna að
velferðar- og öryggismálum hennar.
» Að afla fjár til þess að reisa og
reka dvalarheimili, hjúkrunar-
heimili, vistunar- og endurhæf-
ingaraðstöðu, íbúðir og leiguíbúðir,
einkum fyrir aldraða sjómenn og
sjómannsekkjur.
» Að stuðla að byggingu og rekstri
orlofshúsa, sumardvalarheimila og
alhliða orlofsstarfsemi fyrir sjómenn,
fjölskyldur þeirra og starfsmenn
samtaka þeirra.
» Að beita áhrifum sínum á stjórnvöld
til setningar löggjafar til styrktar fram-
gangi markmiða Sjómannadagsráðs.
» Sjómannadagsráð rekur átta Hrafn-
istuheimili í fimm sveitarfélögum sem
veita um 800 Íslendingum öldrunar-
þjónustu. Auk þess rekur félagið
leiguíbúðir Naustavarar ehf. í þremur
sveitarfélögum, sem veita meira
en 300 öldruðum búsetu á eigin
vegum, sem studd er með samstarfi
við Hrafnistu. Þá rekur félagið einnig
Happdrætti DAS sem styður við
uppbyggingu öldrunarþjónustunnar,
ásamt Laugarásbíói og sumarhúsa-
svæði í Hraunborgum Grímsnesi.
Stjórn Sjómannadagsráðs
höfuðborgarsvæðisins skipa:
» Hálfdan Henrýsson formaður, Félagi
skipstjórnarmanna.
» Guðjón Ármann Einarsson
varaformaður, Félagi
skipstjórnarmanna.
» Jónas Garðarsson gjaldkeri,
Sjómannafélagi Íslands.
» Oddur Magnússon varagjaldkeri,
Sjómannafélagi Íslands.
» Sigurður Ólafsson ritari, Félagi
vélstjóra og málmtæknimanna.
Forsíðumynd: Áhöfnin á Auði Vésteins SU88,
Ellert Jóhannsson, Svanur Ingi Ómarsson,
Karl Axel Karlsson, og Haukur Guðberg
Einarsson skipstjóri. Mynd/Hreinn Magnússon
útgefandi: Sjómannadagsráð, Hrafnistu,
Laugarási, 104 Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs: Sigurður
Garðarsson.
ritnefnd: Björn Finnbogason, Hjálmar Baldursson
og Vilbergur Magni Óskarsson.
umsjón: KOM ehf., kynning og markaður.
ritstjóri: Óli Kristján Ármannsson
Höfundar efnis: Bolli Valgarðsson, Gísli Freyr
Valdórsson, og Óli Kristján Ármannsson
Ljósmyndir: Hreinn Magnússon o.fl.
Sala auglýsinga: Birna Sigurðardóttir,
bsig@bsig.is.
Prentvinnsla: Landsprent ehf.
upplag: Dreifing með Morgunblaðinu og PDF-
útgáfu á póstlista stéttarfélaga sjómanna.
6