Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 26

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 26
26 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 0 „sjómannadagurinn á að verða einn af aðalhá- tíðisdögum ársins. svo mikið eiga landsmenn sjómönnunum gott upp að unna, sérstaklega þeir, sem gæfan hefir borið léttara og þægilegra hlutskipti í verkaskiptingu þjóðfélags- ins, að þeim ætti að verða kappsmál að þessi dagur verði sjómönnunum hinn ánægjulegasti.“ Þ etta er ritað í leiðara í fyrsta tölublaðs Sjómannadags-blaðsins sem út kom þegar sjómannadeginum var fyrst fagnað með hátíðardagskrá í Reykjavík, 6. júní 1938. Í ár ber svo við, vegna heimsfaraldurs Covid-19, að skipulögð hátíðardagskrá fellur niður í fyrsta sinn frá þeim tíma, þótt útgáfa blaðsins haldist óslitin. Það er Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins sem allt frá upphafi hefur gengist fyrir skipulagðri dagskrá á sjómanna- daginn með minningarathöfn um drukknaða sjómenn og skrúðgöngu að Dómkirkjunni, þar sem árleg sjómannamessa fer fram auk heiðr- unar sjómanna. Hátíðahöldin hafa tekið umtalsverðum breytingum í gegnum tíðina og færst nokkuð til í bænum. Dagskráin hefur hins vegar alltaf verið metnaðarfull, eins og kemur fram í útlistun fyrsta Sjó- mannadagsblaðsins: „Á sjómanna- daginn verða endurvaktar hinar hollu og karlmannlegu sjómanna- íþróttir, stakkasund og kappróður. Keppt verður í björgunarbátum á Reykjavíkurhöfn. Einnig fer fram keppni í knattleik, milli íslenskra og erlendra sjómanna. Þetta þurfa allir Reykvíkingar að koma og sjá. Einnig hópgöngu sjómanna og minningar- athöfn við Leifs styttuna.“ Stórfengleg hátíðahöld Frá fyrsta degi nutu hátíðahöldin hins vegar mikils meðbyrs, eins og endurspeglast í yfirskrift umfjöllunar Morgunblaðsins um fögnuðinn í júní 1938: „Stór- fengleg hátíðahöld sjómanna“. Í inngangi fréttarinnar segir líka að skrúðganga sjómanna um götur Reykjavíkur á sjómannadaginn, sem þá var haldinn annan í hvítasunnu, hafi verið sú virðu- legasta sem sést hafi á landinu. „Mannfjöldinn á Skólavörðuholti, umhverfis Leifsstyttuna, var svo mikill, að eigi verður giskað á með neinum líkum hve margt manna var þar, meðan ræður voru þar fluttar. Hafa sumir nefnt 6 þúsund, aðrir 10 þúsund.“ Fyrstu árin hélst sá siður að skrúðganga var gengin frá Stýrimannaskólanum við Öldugötu um miðbæinn og yfir á Skólavörðuholt, þar sem dagskrá var við styttuna af Leifi Eiríkssyni. Þá reyndu sjómenn með sér eins og lýst er hér að ofan og íþrótta- iðkun, bæði „sjómannaíþrótta“ og knattspyrnu, var hluti af gleðinni. Í greinargerð stjórnar Sjómanna- dagsráðs í Sjómannadagsblaðinu 1940 eru hátíðahöldin sögð hafa fengið á sig ákveðið snið sem sjálfsagt þyki að halda sér að í framtíðinni. „Það eru aðallega þrír liðir, sem setja svip á daginn. Það er hópganga sjómanna með útifundi, íþróttirnar og sjómanna- fagnaðurinn. Engu þessara atriða væri hægt að sleppa úr, svo hátíðahöldin biðu ekki tjón af eða yrðu rýrari fyrir bragðið,“ segir þar. Þá var líka þegar farið að ræða um að dreifa atriðum á tvo daga, vegna þess hve þeim hafði fjölgað og þátttaka væri mikil. Árið áður hefði tekist „með miklum erfiðismunum fyrir alla“ að þjappa dagskránni þannig að hún hefði öll getað farið fram eftir hádegi á sjómannadegin- um, en það hefði þýtt að keppendur hefðu margir orðið að „hlaupa, eftir þátttöku í knattspyrnu og reiptogi, niður að höfn til að taka þátt í kappróðrinum“. sjómannadagurinn hefur frá upphafi verið fjölsóttur mannfjöldinn á skólavörðuholti, umhverfis leifsstyttuna, var svo mikill, að eigi verður giskað á með neinum líkum hve margt manna var þar, meðan ræður voru þar fluttar. hafa sumir nefnt 6 þúsund, aðrir 10 þúsund. aldrei fyrr hafði viðlíka mannsöfnuður átt sér stað í reykjavík þegar hátíðahöld sjómannadagsins áttu sér fyrst stað árið 1938. Frá því var greint að einhverjir teldu jafnvel 10 þúsund manns hafa komið saman, en hér má sjá mannþröngina við Leifsstyttuna á Skólavörðuholti. Mynd/úr safni sjóMannadagsrÁðs Fyrstu árin var gengið frá Öldugötu um miðbæinn og upp á Skólavörðuholt. Mynd/úr safni sjóMannadagsrÁðs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.