Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 53

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 53
þennan hátt í heiminum og er hún nánast aðeins notuð á Íslandi. Í dag eru fjölmörg togskip að nota þessa vörpu og nefna skipstjórar að það sé sparnaður í olíu og tíma að nota þvernetsvörpuna, þar sem hún sé léttari í drætti og virðist rifna sjaldnar,“ segir Haraldur.    Þá bendir hann á að þróun poka á vörpum hafi einnig tekið stakkaskiptum. „Allar vörpur, bæði flotvarpa og botnvarpa, eru með poka þar sem aflinn safnast saman þegar togað er, oft í nokkra klukkutíma. Það er reginmunur á pokum flot- og botnvörpu, þar sem flotvörpupokar eru alla jafna miklu stærri, enda veiðarfærið allt miklu stærra og meiri afli tekinn í hverju hali. Þessir pokar geta verið allt að 90 metra langir á flotvörpum og tekið nokkur hundruð tonn í einu. Það er því mjög mikilvægt að pokarnir séu níðsterkir en um leið að það flæði vel í gegnum þá þannig að fiskur safnist ekki saman framan við pokann. Möskvar eru oftast smáir í flotvörpupokum þar sem veiðitegundir eru ekki stórar. En möskvarnir eru oft notaðir þvert í þessum flotvörpupokum, svokallaðir straumpokar.“ Netaverkstæði G. Run Þekking á þessari mikilvægu hönnun á flotvörpupokum barst síðan yfir í botnvörpupoka. Hefðbundinn botnvörpupoki er gerður úr tveimur samsíða byrðum saumuðum saman og mynda þau þannig hálfgert rör eða poka. „Þennan hefðbundna poka höfum við mælt til kjörhæfni í flestum nytjategundum. Með kjörhæfni er átt við hvernig stærðardreifing á veiðitegund er úr viðkomandi poka og þá um leið hversu hátt hlutfall sleppur af smáfiski út um möskva pokans. Við mælingu á þessum hefðbundnu gamalreyndu pokum kom í ljós að afar lítið hlutfall af smáfiski slapp út. Þá er gripið til þess ráðs að reyna skiljur eða stækka möskva, með ágætum árangri en ekki gallalausum, þar sem það kom niður á gæðum eða of mikið af smærri tegundum eins og ýsu slapp út þótt hún væri yfir settum lengdarmörkum.“ Haraldur segir að þegar hér var komið sögu hafi netaverkstæði Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði verið að prófa poka í fjórum byrðum líkt og notað er á flotvörpum og því með fjórum saumum í hefðbundnu neti og sett á venjulega botnvörpu. Pokinn virkaði vel og var eftir því tekið að gæði fisksins voru mun meiri en úr hefðbundnum pokum. Þetta þótti athyglisvert. Samtímis voru fleiri og fleiri að nota þvernetsvörpu og vildu nota þvernetspoka við hana, en það hafði ekki gengið vegna reglugerðar um hvernig mæla skyldi möskva sem eru með skilgreinda lágmarksstærð. „Reglugerðinni var breytt og fljótlega varð til poki hannaður af Guðmundi Gunnarssyni á netaverk- stæði Hampiðjunnar í samvinnu við Eirík Jónsson skipstjóra á Sturlaugi sem settur var upp í þverneti, fjórum byrðum og með stuttum leisislínum, sem eru reipi, sett með saumum pokans og venjulega aðeins lengra, en strekkt netið og hugsað sem öryggislína ef netið í pokanum rifnar. Í þessum poka var línan höfð styttri en netið þannig að pokinn var með slöku neti og allt togaflið á línunum.“ Til varð poki með nær 30 prósentum minna neti en samt jafn stór, í fjórum byrðum og því opnari þannig að fiskur átti greiðari leið út um slakt netið og vel opna möskva. „Reynslan sýndi að netið skildi betur út smáfisk og gæði fisksins virtust í það minnsta ekki minni. Núna eru mjög margir að nota þessa poka og þá jafnvel með stærri möskva en gefið er upp sem lágmarksstærð.“ Góð reynsla breytti reglugerð Haraldur segir að svipaða sögu megi segja um poka á rækjuvörpu. Góð reynsla af bolfiskveiðapokanum hafi kveikt þá hugmynd hjá netagerðar- meistaranum Snorra Sigurhjartarsyni hjá Hampiðjunni á Ísafirði að þarna væri mögulega tilvalin leið til að minnka magn smárækju í afla. Hann fékk því Hermann Hrafn til liðs við sig og saman hönnuðu þeir poka í þverneti með fjórum byrðum og stuttum línum og var pokinn prófaður við innfjarðarækjuveiðar frá Ísafirði. „Útkoman var mjög góð og í fram- haldinu var óskað eftir reglugerðar- breytingu svo nota mætti pokann án undanþágu. Við fórum þá í að mæla kjörhæfni á þessum nýja rækjupoka á sama hátt og bolfiskpokinn var mældur. Til samanburðar við þennan poka voru síðan mældir hefðbundinn síðunetspoki og svokallaður leggpoki sem menn urðu að nota samkvæmt reglugerð.“ Skanni greinir tegundir Netagerðarmeistarar eru, að sögn Haraldar, óþreytandi að þróa veiðarfæri til betri vegar. „Hins vegar hefur mér lengi fundist tæknistig veiðarfærisins í flot- og botnvörpuveiðum vera lágt. Flest fiskiskip eru útbúin með alls kyns há- tæknibúnaði en þrátt fyrir það hafa menn ekki mikið annað en veiðireynslu til að segja sér hver sé líklegasta aflasamsetning að safnast í veiðarfærið þegar togað er. En það er verkefni á góðri siglingu núna til að reyna að leysa þetta. Tækniþróunarsjóður hjá Rannís veitti styrk til Hafrannsóknastofnunar í samvinnu við Stjörnu-Odda og Hampiðj- una að hanna svokallaðan Fiskiskanna, sem setja á fyrir framan vörpupoka með beintengingu með ljósleiðara upp í brú skipsins.“ Skanninn greinir síðan með gervigreind fiskitegundir, lengdarsamsetningu og aflamagn og sendir niðurstöðurnar samtímis beint upp í brú. „Við stefnum að því að það verði hægt að vita nákvæmlega stærðasamsetningu, fjölda og magn í þyngd af hverri tegund jafnharðan og veitt er þannig að heildarniðurstaðan verði þekkt áður en híft er. Hönnun Fiskiskannans gengur vel og verður hann vonandi prófaður á þessu ári en áætlað er að ljúka hönnun á því næsta. Þetta yrði í besta falli bylting fyrir skipstjórann á veiðum og myndi gera veiðar nákvæmari. Búnaðurinn mun einnig kalla á næsta stig að geta valið aflasamsetningu og sleppa öllu sem menn vilja ekki,“ segir Haraldur. - bv 53 S j ó M a N N a d a G S B l a ð i ð J Ú N Í 2 0 2 0 allar vörpur, bæði flotvarpa og botnvarpa, eru með poka þar sem aflinn safnast saman þegar togað er, oft í nokkra klukkutíma. mynd af Hemmer-botntrolli í tankferð Hampiðjunnar. Mynd/HaMpiðjan Haraldur við störf á Bahamaeyjum eftir að fellibylurinn dorina reið þar yfir. Mynd/Haraldur a. einarsson Ágætu sjómenn, til hamingju með daginn! C M Y CM MY CY CMY K sjomannadagur20.pdf 1 2.6.2020 13:13:04
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.