Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 55

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 55
Óhætt er að segja að reynsla mín af sjómennsku hafi mótað mig fyrir lífstíð. Ég fór fyrst á sjóinn fyrir rúmum 30 árum síðan, þá 16 ára gamall. Í dag er ég gríðarlega þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast sjómennskunni ungur, enda kem ég af mikilli sjómannaætt úr Sandgerði. Faðir minn slasaðist alvarlega á sjó og gat því miður ekki stundað sjómennsku aftur. Afleiðingar sjóslyssins hafa ennþá mikil áhrif á líf hans. Sú reynsla hefur fylgt mér alla tíð og skýrir kannski af hverju öryggismál sjómanna hafa alltaf verið mér hugleikin. Gjöfult samstarf Síðustu 12 árin hef ég unnið hjá VÍS við að bæta öryggismenningu á sjó með öflugu forvarnasamstarfi við útgerðir og Slysavarnaskóla sjómanna. Undanfarin áratug höfum við hjá VÍS átt í góðu forvarnasam- starfi við Slysavarnaskóla sjómanna. Síðasta haust var svo samstarf VÍS við Slysavarnarskóla sjómanna innsiglað til næstu fimm ára — en allir flotgallarnir sem notaðir eru við björgunarkennslu í skólanum eru gjöf frá VÍS. Ég tel það vera mikil forréttindi að vinna við að bæta öryggi sjómanna og er þakklátur fyrir að geta lagt mitt af mörkum. Samvinna og yfirsýn Með samstilltu átaki tekst okkur að útrýma slysum á sjó. Til þess að hægt sé að stuðla að markvissu og sértæku forvarnastarfi — þarf að greina vandann. Mikilvægt er að fá yfirsýn yfir slysin: Hvernig slys eru þetta, hversu oft gerast þau og hversu alvarleg eru þau? Þess vegna höfum við hjá VÍS þróað skráningarkerfi sem kallast ATVIK-sjómenn. Tilgangurinn með ATVIK er að fækka slysum — og stuðla þar með að öruggari vinnu- umhverfi. Við viljum vera hreyfiafl í íslensku samfélagi og viljum hjálpa viðskiptavinum okkar að lenda sjaldnar í slysum. Sjómenn hugmyndaríkir og skapandi Á undanförnum árum hefur orðið gríðarleg þróun í öryggismálum og ekki síst í sjávarútvegi. Sjómenn og útgerðir eru sífellt að leita nýrra leiða til að útrýma og lágmarka hættuna á slysum. Frábært er að upplifa hversu mikið frumkvæði sjómenn sýna, hversu hug- myndaríkir þeir eru og launsamiðaðir í öryggismálunum. Óhætt er að segja að þeir nýti þekkingu og reynslu sína til þess að efla öryggi og vinnuumhverfi sitt í allri þeirri tæknivæðingu sem á sér stað í sjávarútveginum. Rafræn sjómennska er nefnilega að ryðja sér til rúms og því má segja að margt hafi breyst frá byrjun síðustu aldar þegar langafi minn, Nils Christian Larsen, réri á árabát frá Ísafirði. Rafrænt forvarnastarf Atvikaskráningarforritið ATVIK- sjómenn er hluti af rafrænu forvarnastarfi VÍS. Í dag eru á fjórða tug fiskiskipa og um 800 sjómenn sem nýta sér ATVIK-sjómenn til þess að fá betri yfirsýn yfir öryggis- málin og mögulegar hættur. Þannig skapast tækifæri fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir. Nú er hægt að nota ATVIK- sjómenn í öllum snjalltækjum hvort sem er símum eða spjaldtölvum um borð í fiskiskipum. Sjómenn þurfa bara að leggja snjalltækin upp að QR-kóða og þá birtist forritið í snjalltækinu. Hægt er að skrá atvik og taka myndir, hvar sem er um borð í skipunum. Framundan eru svo fleiri nýjungar í forritinu, til dæmis sjálfvirk úrvinnsla gagna og orsakagreining atvika. Hægt verður að velja fleiri tungumál en íslensku en hlutfall sjómanna með erlent þjóðerni er sífellt að aukast. Ég fyllist mikilli bjartsýni þegar ég horfi til framtíðar því við erum að hefja nýja vegferð með rafrænum lausnum til þess að bæta öryggismenninguna enn frekar og fækka slysum á sjó. Gísli Níls Einarsson, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS KYNNINGAREFNI sjómennskan mótaði mig fyrir lífstíð gísli níls Einarsson. Ég tel það vera mikil forréttindi að vinna við að bæta öryggi sjómanna og er þakklátur fyrir að geta lagt mitt af mörkum. 55 S j ó M a N N a d a G S B l a ð i ð J Ú N Í 2 0 2 0 marel.is TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SJÓMENN Við þökkum samstarf liðinna ára og sendum sjómönnum og landsmönnum öllum heillaóskir í tilefni dagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.