Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 6

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 6
6 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 0 A llt byggir þetta á aukinni fræðslu, vel skipulögðum forvörnum, æfingum og bættum öryggisbúnaði svo fátt eitt sé nefnt. Samhliða aukinni öryggisvit- und hefur átt sér stað jákvæð þróun þegar kemur að heilsufari sjómanna, hvort sem er með heilsufarsskoðun- um, forvörnum eða úrræðum sem eru til þess fallin að sjómenn nái bata eftir að hafa lent í slysum eða orðið veikir. Flestar útgerðir eru í dag með öryggisstjóra og tryggingafélög horfa í auknum mæli til öryggismála og heilsufars við mat á iðgjöldum útgerða. Guðni Arinbjarnar bæklunarlæknir hefur í um 20 ár einnig starfað sem sjómannalæknir. Hann rekur fyrirtækið Sjómannaheilsa ásamt eiginkonu sinni, Svanlaugu Ingu Skúladóttur hjúkrunarfræðingi. Fyrirtækið þjónustar fjölda útgerðar- félaga, sinnir heilsufarsmælingum bæði fyrir sjómenn og starfsmenn í landvinnslu og fylgir þeim eftir sem hafa lent í slysum við vinnu á sjó, í frítíma eða veikindum. Fleiri snúa aftur til vinnu Guðni segir í samtali við Sjómanna- dagsblaðið að hér á landi hafi náðst góður árangur, ekki bara í því að meta og fylgjast með heilsufari sjómanna heldur einnig að fyrirbyggja óhöpp og bjóða upp á úrræði fyrir þá sem lent hafa í óhöppum. Ástæðan er sú vitundarvakning sem hefur verið bæði meðal sjómanna og útgerðar- manna um að huga meira að öllum öryggismálum um borð í skipum. Það er mjög mikilvægt að fylgja þeim sem lent hafa í óhöppum vel eftir, alveg frá því að þeir slasast eða veikjast og þangað til þeir fara aftur til vinnu. Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn miklar framfarir í heilsumælingum sjómanna íslendingar hafa náð góðum og mikilvægum árangri í öryggis- málum og forvarnastarfi á sjó. Það hefur skilað sér í færri slysum og færri dauðsföllum og nú er svo komið að enginn hefur látið lífið á sjó síðustu þrjú ár. samhliða hafa einnig orðið framfarir í mælingum á heilsufari sjómanna og vitundarvakn- ing þegar kemur að úrræðum til að bæta enn heilsu þeirra. guðni arinbjarnar bæklunarlæknir hefur starfað sem sjómannalæknir í um tvo áratugi. Hann og eiginkona hans, Svanlaug inga Skúladóttir, reka saman fyrirtækið Sjómannaheilsu sem sinnir heilsufarsmælingum jafnt fyrir sjómenn og starfsfólk landvinnslu og fylgir þeim eftir sem hafa lent í slysum við vinnu á sjó, í frítíma eða veikindum. Mynd/Hreinn Magnússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.