Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 16

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 16
16 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 0 Það er ekki hægt að segja að hátíðarhöldin um jól og áramót á Grænlandssundi, hvar áhöfnin dvaldi við veiðar, hafi verið upp á marga fiska. Á aðfangadagskvöld var veðrið svo vont að kokkurinn gat ekki eldað. Menn þurftu því að gera sér að góðu fransbrauð með margaríni og sultu. Á nýju ári var áfram sótt og það var loks um miðjan febrúar sem skipstjórinn tilkynnti áhöfninni að stefnan yrði tekin á Nýfundnaland. „Það kom fát á okkur því við töldum að við hefðum bara verið ráðnir út febrúar. Við komumst þó að því að síðasti túr hefði tekið um tvö ár þannig að þessu var hvergi nær lokið,“ segir Magnús Viðar og hlær. „Við Íslendingarnir um borð tilkynntum honum þá að við vildum fara á Íslandsmið eins og lofað hefði verið við ráðninguna. Það kom ekki til greina að hans mati og áfram hélt siglingin. Til að mótmæla þessu hjuggum við á færin beggja megin þannig að það fór allt í sjóinn. Við gerðum það svo aftur í næsta holli. Þá var tilkynnt að Íslendingarnir hefðu gert uppreisn um borð og stefnan var sett á Godthåb [nú Nuuk],“ segir Magnús Viðar. „Það lá við slagsmálum við Fær- eyingana og við komuna í Godthåb beið lögregla á bryggjunni tilbúin að handtaka okkur uppreisnarseggina. Í fyrri landlegum höfðum við komist upp á kant við pólitíið og nokkrum verið stungið inn. Nú voru þeir komnir með liðsauka, Schäfer-hund og haglabyssu. Á síðustu stundu kom þó skeyti frá útgerðinni um að fara með fjárans vandræðagemlingana til Íslands. Skipið var þá komið inn í höfnina og stefndi á bryggjuna þar sem danska yfirvaldið beið en sneri við um leið. Þegar við komum í land í Reykjavík tók ég dótið mitt og fór frá borði. Nokkrir Íslendinganna voru svo fegnir að vera komnir heim að þeir fóru frá borði án þess að taka dótið sitt með. Hins vegar var karlinn lúmskur og um leið og síðasti maður fór frá borði sleppti hann og sigldi í burtu. Þarna voru nokkrir sem töpuðu öllu sínu. Útgerðin sendi einhverja lágmarkstryggingu en við heyrðum ekkert meira af þeim.“ Næstu misseri starfaði Magnús Við- ar m.a. áfram á Sæborgu RE, Smára SH og Blátindi GK 88. Eftir að hafa loksins náð tökum á sjóveikinni var þó komið að því að feta menntaveginn. Bjuggu til nýtt viðhaldskerfi Magnús Viðar hóf nám í Vélskóla Íslands haustið 1970. Hann segir að fyrra bragði að það hafi verið af hagkvæmnisástæðum sem hann valdi sér það nám, því þrátt fyrir að hafa á þeim tíma ekki haft neinn sérstakan áhuga á vélum leit hann þannig á að með vélstjórapróf í vasanum gæti hann haft val um það hvort hann hygðist starfa á sjó eða landi til framtíðar. Magnús Viðar stundaði sjóinn á sumrin á trollbátum og skipum Eim- skips samhliða námi og í kjölfarið sem háseti á Brúarfossi og síðar sem 3. og 2. vélstjóri. Árið 1977 voru hann og aðrir áhafnarmeðlimir þó staðnir að verki við að smygla inn áfengi og tóbaki á Ísafirði. Þeir voru í kjölfarið látnir hætta störfum. „Brúarfoss sigldi á þessum tíma strandsiglingar og það var nokkur eftirspurn eftir áfengi og tóbaki á landsbyggðinni. Það réttlætir auðvitað ekki smyglið og þarna var sú einfalda regla í gildi að ef maður var gripinn við þessa iðju var maður sendur í land. Ég fékk þó tækifæri til að koma aftur til vinnu nokkrum árum síðar og fyrir það tækifæri er ég afskaplega þakklátur,“ segir Magnús Viðar. Í kjölfar þessa máls settist hann aftur á skólabekk í verknámi og lauk sveinsprófi í vélvirkjun frá Landssmiðjunni árið 1980. Samhliða því starfaði hann hjá Ríkisskipum, á fraktskipunum Heklu og Esju. Að loknu námi var hann ráðinn sem 2. og 1. vélstjóri á togaranum Apríl HF en sneri þó aftur til Ríkisskipa sem yfirvélstjóri og starfaði á á Öskju og Esju. „Þeir Guðmundur Einarsson og Hjörtur Emilsson stýrðu útgerðinni þá. Þeir hugsuðu vel fram í tímann og vildu leiða inn nýjungar til að bæta reksturinn, gera hann öruggari, ódýrari og skilvirkari. Í byrjun árs 1986 og áfram næstu ár þróuðum við í sameiningu, vélstjórar og stjórnendur hjá Ríkisskipum, viðhaldskerfi fyrir Esjuna og lögðum áherslu á fyrirbyggjandi viðhald til að tryggja betur rekstraröryggi skips og vélbúnaðar. Vélstjórarnir fengu frjálsar hendur til að byggja kerfið upp þannig að það myndi virka vel og vera þægilegt í notkun,“ segir Magnús Viðar. „Við vorum sendir á námskeið hjá Sambandi málm- og skipasmiða. Þar var leiðbeinandi Brynjar Haraldsson véltæknifræðingur, nýkominn frá Noregi, og kynnti fyrir okkur norskt flokkunarkerfi, SFI, sem gat haldið utan um og flokkað niður skip og vélbúnað með sérstöku tölusettu númerakerfi þar sem smiðjur, slippir og útgerð gátu talað sama tungumál. Við settum upp upp svokallað spjaldskrárkerfi fyrir fyrirbyggjandi viðhald byggt á þessum flokkunar- númerum þannig að vélstjórar skipasmíðastöðvar, viðgerðastöðvar og áhöfn gátu skilið og vitað hvaða hlut skipsins eða vélarpart var verið að fjalla um. Allir aðilar töluðu þá sama flokkunarmálið til að forðast misskilning eða túlkun á verkefninu sem gæti orsakað mistök og afleiddar bilanir síðar meir. Menn tóku vel í þetta kerfi og Fjarhönnun hf., sem þá var stýrt af Guðlaugi Jósefssyni, forritaði síðan tölvutækt hugbúnaðarkerfi í kringum þetta, Viðhaldsvakann. Þarna voru allar viðgerðir og viðhald skráð vandlega niður þannig að hægt væri að fylgjast vel með ástandi tækja, kostnaði og viðhaldssögu. Með þessum upplýsingum var hægt að lengja notkunartíma milli upptekta og draga úr viðhaldskostnaði.“ Þegar Ríkisskip voru lögð niður var viðhaldskerfið selt og þróað áfram. Það heitir í dag Viðhaldsstjóri, er í eigu Tero ehf. og er nokkuð vinsælt og í mikilli notkun í íslenska flotanum og hjá framleiðslufyrir- tækjum. Lét drauminn rætast Um 62 ára sögu Ríkisskipa lauk í febrúar 1992. Askja var þá seld til Noregs og samið var við Samskip um yfirtöku tveggja skipa Ríkisskipa, Esju og Heklu. Magnús Viðar starfaði áfram á Esju eftir að Samskip tóku við rekstri skipsins og breytti nafni þess í Kistufell. Hann sigldi á Kistufelli í eitt ár þar til hann var ráðinn 2. vélstjóri á Hákoni ÞH, sem var í eigu Gjögurs á Grenivík. Hann starfaði á Hákoni til ársins 1997, þegar hann venti kvæði sínu í kross, fór í land og hóf að starfa sem sölumaður fyrir skipamálningu hjá Slippfélaginu í Reykjavík og síðar hjá Áburðarverk- smiðju ríkisins. „Mig langaði að breyta aðeins til og verja meiri tíma með fjölskyldunni,“ segir Magnús Viðar spurður um það af hverju hann fór í land á þessum tímapunkti. „Þessi þrjú og hálft ár í landi voru mjög gefandi á þeim tíma og það er öllum hollt að breyta til öðru hvoru ef menn eiga þess kost.“ Eins og með Ríkisskip var Áburðarverksmiðjan seld og hugur Magnúsar Viðars leitaði aftur á sjóinn. Honum stóð til boða að snúa aftur á Hákon en fyrir tilviljun rakst hann á gamlan vin og vinnufélaga sem þá starfaði í skiparekstrinum hjá Samskipum. Sá bað hann um að fara nokkra túra á Arnarfellið. „Úr varð að ég ílengdist á Arnarfellinu, og síðar á Helgafell- inu frá 2005, eða allt þar til ég lét af störfum árið 2018,“ segir Magnús Viðar. Á sjómannadaginn 2008 var Magnúsi Viðari veitt viðurkenn- ingin Neistinn fyrir fyrirmyndar yfirvélstjórastörf. Það var í sext- ánda sinn sem sá gripur var veittur af VM og Tryggingamiðstöðinni hf. Vegna fjarveru á sjó gat hann ekki tekið við gripnum en eiginkona hans, Stella Hauksdóttir, bjargaði málinu eins og svo oft áður og veitti gripnum viðtöku. Saman eiga þau Stella þrjú uppkomin börn. Það er gaman að segja frá því að þau hittust fyrst um borð í Bakkafossi árið 1969 en leiðir þeirra lágu þó ekki aftur saman fyrr en þremur árum síðar. Magnús Viðar lét gamlan draum um landbúnaðarstörf rætast. Á jörð sinni á Vestfjörðum stundar hann kartöflu- og grænmetisrækt, lítils háttar skógrækt og trilluútgerð fyrir soðningu og harðfisk auk útivistar. Árið 2008 tók Magnús Viðar pungaprófið svokallaða, skip- stjórnarréttindi á 30 rúmlesta báti, og stundaði strandveiðar á eigin báti, Mjallhvíti ÍS 73, í tvö sumur frá Þingeyri. Það gekk á ýmsu með útgerðina, en meðeigandi hans var Eiríkur Eiríksson, bóndi á Felli. Mikill sjógarpur til hálfrar aldar. Í kjölfar hrunsins 2008 skorti þá fjármagn til að halda áfram en sóttu þó stíft til að ná skammtinum og tíminn var tæpur. Í einni brælunni, NA 13 m, fór Mjallhvít einn báta út úr firðinum til að ná skammtinum, 850 kg úti af Nesdal. Síðar var haft var eftir þekktum listmálara sem þá var staddur á kaffihúsi á Þingeyri og kallaði ekki allt ömmu sína að götustrákur úr Reykjavík væri orðinn aflahæstur á Þingeyri og um leið var spurt hvað orðið hefði af vestfirsku sjógörpun- um. Eðli málsins samkvæmt voru heimamenn ekki glaðir með þessa yfirlýsingu. „Þetta eru reyndar afburða sjómenn og klárir. Þetta var þó ágætt innlegg fyrir mig í byrjun strandveiðanna. Allt er þetta búið að vera góður tími en það er aldrei of seint að láta drauma sína rætast,“ segir Magnús Viðar að lokum. - gfv árið 2008 tók magnús Viðar pungaprófið svokallaða, skipstjórnarréttindi á 30 rúmlesta báti, og stundaði strandveiðar á eigin báti, mjallhvíti íS 73, í tvö sumur frá Þingeyri. Mynd/Hreinn Magnússon allt er þetta búið að vera góður tími en það er aldrei of seint að láta drauma sína rætast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.