Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 44
44 S j ó M a N N a d a G S B l a ð i ð J Ú N Í 2 0 2 0
með samvinnu sjómannadagsráðs, heilbrigðisyfirvalda
og reykjavíkurborgar er nýr og einstakur lífsgæðakjarni,
sléttan, óðum að taka á sig mynd í Fossvogsdalnum með nýju
hjúkrunarheimili fyrir níutíu íbúa, þjónustumiðstöð og fjölda
leiguíbúða.
S léttan er fjórði lífsgæða-kjarninn sem Sjómanna-dagsráð hefur komið að
uppbyggingu á í þágu aldraðra. Að
uppbyggingu lokinni má gera ráð
fyrir að vel á annað þúsund manns
eigi kost á að njóta þjónustu á
Sléttunni, íbúar hjúkrunarheimilisins
og leiguíbúðanna, auk fólks sem býr í
nálægum hverfum.
Allar rekstrareiningarnar
tengjast miðlægt
Þjónustumiðstöð Sléttunnar
gegnir miðlægu hlutverki gagnvart
hjúkrunarheimilinu og leiguíbúðum
Naustavarar, sem endurspeglast
m.a. í því að inngangurinn er
sameiginlegur með öllum rekstrar-
einingunum. Hjúkrunarheimilið er í
eigu ríkis og borgar, sem sömdu við
Sjómannadagsráð um að það yrði
rekið undir merki Hrafnistu. Þjón-
ustumiðstöðin var hins vegar byggð
af Sjómannadagsráði, sem jafnframt á
hana og rekur, m.a. með samningum
við Reykjavíkurborg og fjölbreyttan
hóp þjónustuveitenda. Einnig
kemur Naustavör að verkefninu með
byggingu 60 leiguíbúða á Sléttunni í
fyrri áfanga. Þær eru fyrir þá sem búa
sjálfstætt en vilja þó nýta sér aðgang
að þeirri fjölbreyttu þjónustu sem
veitt er á svæðinu,“ segir Sigurður
Garðarsson, framkvæmdastjóri
Sjómannadagsráðs.
Um margt einstakt verkefni
Sigurður segir hugmyndafræði
og framkvæmd verkefnisins um
margt einstakar, sem hafi skilað
miklum og víðtækum árangri. „Það
var t.d. farsæl ákvörðun að ríki og
borg ættu samvinnu við reyndan
fagaðila á sviði öldrunarþjónustu
um þessa miklu framkvæmd, fá
Sjómannadagsráð og Hrafnistu að
hönnun verkefnisins, fela þeim
umsjón með öllum verkþáttum og
samningum við verktaka og birgja og
fylgja byggingarverkefninu eftir frá
fyrstu skóflustungu til þeirrar síðustu
þegar íbúarnir flytja inn. Sléttan er
því um margt einstakt verkefni sem
aðrir framkvæmdaaðilar á þessu sviði
gætu tekið mið af í sambærilegum
verkefnum til að hámarka nýtingu
opinbers fjármagns, hagkvæmni
reksturs og lífsgæði þeirra sem
eiga að njóta þjónustunnar,“ segir
Sigurður.
Samlegðin forsenda hámarks-
hagkvæmni á færri fermetrum
Frá því að fyrsta skóflustungan að
byggingu hjúkrunarheimilisins var
tekin í nóvember 2017 liðu einungis
um 27 mánuðir þar til fyrstu íbúar
fluttu inn á heimilið. „Ástæðan er
lífsgæðakjarni
sjómannadagsráðs
tekinn til starfa
Mikill áhugi á nýjum leiguíbúðum Naustavarar í Fossvogi
n Naustavör hefur lokið við byggingu
sextíu leiguíbúða fyrir sextíu ára
og eldri á Sléttunni í Fossvogsdal.
Íbúðirnar eru þétt við þjónustumið-
stöðina og er stefnt að því að hefja
úthlutun fyrstu íbúðanna í næsta
mánuði. Frá íbúðunum er innangengt
til þjónustumiðstöðvarinnar eins og
frá hjúkrunarheimili Hrafnistu. Hjá
Naustavör er nú verið að undirbúa
framkvæmd við síðari áfanga fram-
kvæmdanna með byggingu áttatíu
leiguíbúða í viðbót en alls verða þær
eitt hundrað og fjörutíu á Sléttunni,
samtengdar þjónustumiðstöðinni.
„Við erum afskaplega þakklát fyrir
þau góðu viðbrögð sem fólk hefur
sýnt nýju leiguíbúðunum. Við höfum
fengið fjölmörg símtöl og tölvupósta
frá fólki sem hefur skráð sig á lista yfir
þá sem vilja kynna sér íbúðirnar og
þessi áhugi kviknaði talsvert áður en
við hófum að kynna þær opinberlega,“
segir Sigurður Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannadagsráðs.
Hann segir að margir hafi komið í maí
og skoðað tilbúna sýningaríbúð við
Sléttuveg.
Vandaðar íbúðir nálægt
fjölbreyttri þjónustu
Þeim sem höfðu samband og skráðu
sig á lista fyrir 9. maí hjá Naustavör
var boðið í heimsókn til að kynna
sér fullbúna sýningaríbúð sem gefur
góða mynd af gæðum íbúðanna og
þeim greiða aðgangi sem verður að
fjölbreyttri þjónustu í þjónustumið-
stöð Sléttunnar. „Kynningin tókst
afar vel þrátt fyrir óvenjulega verk-
ferla sem nauðsynlegt var að fylgja
á heimsóknardögunum í samræmi
við leiðbeiningar Almannavarnaráðs
vegna veirufaraldursins. Gerð leigu-
samninga er þegar hafin af miklum
krafti enda hefjast afhendingar
innan skamms,“ segir Sigurður.
Fjölbreytt stærð íbúða í boði
Íbúðirnar 60 sem nú er verið að
úthluta í fyrri áfanga eru í þremur
meginstærðarflokkum, þ.e. 50-70
fermetra íbúðir, 71-85 fermetrar og
loks íbúðir stærri en 85 fermetrar.
Sigurður segir flestar íbúðirnar vera
í flokki minnstu íbúðanna og fækka
síðan eftir því sem fermetrum fjölgi.
„Eins og við gerðum ráð fyrir er mesta
eftirspurnin eftir íbúðum í flokki eitt
en það er líka talsverð eftirspurn eftir
hinum stærðarflokkunum,“ segir
Sigurður, en hægt er að kynna sér
leiguíbúðirnar á vefslóðinni https://
naustavor.is/slettan.Sigurður garðarsson, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs, í nýrri og
stórglæsilegri leiguíbúð naustavarar í Fossvogi. Mynd/Hreinn Magnússon
Svona er um að litast fyrir utan nýjan íbúðakjarna naustavarar við Sléttu-
veg í Fossvogi. Mynd/Hreinn Magnússon
sléttan er því um margt
einstakt verkefni sem aðrir
framkvæmdaaðilar á þessu
sviði gætu tekið mið af í
sambærilegum verkefnum
til að hámarka nýtingu
opinbers fjármagns,
hagkvæmni reksturs og
lífsgæði þeirra sem eiga að
njóta þjónustunnar.