Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 47
eftir tæp fimmtán ár við
bryggju var varðskipinu óðni
siglt á ný á lokadaginn 11. maí
þegar hollvinasamtök óðins, í
samvinnu við landhelgisgæsl-
una, létu úr höfn á skipinu
með aðstoð dráttarbáts áður
en aðalvélar þess voru ræstar
á ný eftir langt hlé.
Þegar út á ytri höfnina var komið voru aðalvélarnar tvær ræstar í fyrsta sinn frá 2006 og
gekk það nokkurn veginn samkvæmt
áætlun fyrir utan smávægilegan
olíuleka við einn af stimplum
bakborðsvélarinnar, sem var lagaður
á örfáum mínútum. Báðar vélarnar
ruku í gang með sínum hætti enda
hefur miklum tíma verið varið í það
undanfarin misseri að gera skipið
klárt á ný. Skipið var látið ganga
áfram á um fimm mílna hraða, síðan
var bakkað og fleiri kúnstir gerðar
áður en snúið var til baka til hafnar.
Alls tók prufusiglingin rúmar tvær
klukkustundir.
Á fjórða tug einstaklinga kom að
viðburðinum 11. maí, m.a. fyrrver-
andi áhafnarmeðlimir í hópi vélstjóra
sem þekkja vel til í vélarrúminu
ásamt öðrum vélstjórum sem tekið
hafa þátt í viðhaldsvinnu um borð
undanfarin misseri. Einnig tóku þátt
fulltrúar frá Hollvinasamtökunum,
Sjóminjasafninu, Faxaflóahöfnum
og Landhelgisgæslunni ásamt öðrum
sem tengst hafa Óðni til margra ára.
Að sögn Guðmundar Hallvarðssonar,
formanns Hollvinasamtaka Óðins,
er ætlunin að gera það að árlegum
viðburði að leysa festar Óðins og sigla
skipinu á sundunum við Reykjavík til
að liðka það og halda því í æfingu.
Varðskipið Óðinn er þriðja varð-
skipið með þessu nafni, smíðaður í
Álaborg í Danmörku fyrir Landhelgis-
gæslu Íslands 1959 og afhentur hér
á landi í Reykjavík 27. janúar 1960.
Skipið tók þátt í öllum þorskastríðum
Íslendinga á tuttugustu öldinni
auk þess að vera eitt afkastamesta
björgunarskip landsmanna í áratugi.
Síðasta formlega sigling Óðins var
farin 2006 þegar siglt var í kurteis-
isheimsókn til Bretlands. Á leiðinni
utan greip áhöfn skipsins togara að
ólöglegum veiðum og fylgdi honum
til hafnar. Meðal þeirra sem sigldu
með Óðni til Bretlands var forstjóri
Landhelgisgæslunnar, Georg Kr.
Lárusson, sem „lenti þar með í vinnu
við skýrslugerð og lögfræðilegum
ráðleggingum vegna atviksins“, en
skipherrann í síðustu embættisferð
Óðins var Sigurður Steinar Ketilsson,
síðar skipherra á Tý og stjórnarmaður
í Sjómannadagsráði um árabil.
Sigurður Steinar lést 27. október 2019.
- bv
47 S j ó M a N N a d a G S B l a ð i ð J Ú N Í 2 0 2 0
óðinn sigldi á ný á lokadaginn
óðinn mætir Viðey á siglingunni á sundunum við reykjavík. Mynd/Hreinn Magnússon
á leið úr höfn með aðstoð dráttarbáts. Mynd/Hreinn Magnússon Hluti þess hóps sem koma að siglingu óðins 11. maí síðastliðinn. Mynd/bV
Bograð yfir vélinni eftir að upp kom olíu-
leki sem lagaður var á nokkrum mínútum.
Mynd/bV
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
VÖNDUÐ OG FALLEG RÚM
Rafdrifin hjúkrunarrúm með mörgum stillimöguleikum og úrvali aukahluta.
Sölufólk okkar hefur áratuga reynslu í þjónustu og ráðgjöf við val á rúmum og fylgihlutum.