Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Page 18
18 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 0
árið 1799 gekk hér yfir mesta fárviðri með þrumum og eldingum
á suðvesturhorni landsins sem sögur fara af með tilliti til af-
leiðinga þess á menn, skepnur, jarðir og húsakost. afleiðinganna
gætti allt frá Þjórsá og vestur til Breiðafjarðar og raunar víðar.
H ér erum við að tala um Básendaflóðið svokallaða sem varð 8. og 9. janúar þegar sjór
tók að ganga á land og er veðrið kennt
við hinn gamalgróna verslunar- og
útróðrarstað Básenda á Miðnesi á
Suðurnesjum. Staðurinn eyddist
gersamlega í veðrinu og var aldrei
endurreistur eftir það. Íbúum staðar-
ins, um tuttugu manns, tókst að koma
sér í burtu áður en sjórinn tók allan
húsakost en ein kona fórst. Lægðin
er talin sú mesta sem heimildir eru
um að komið hafi upp að suðvestur-
landinu samfara stórstreymi.
Fordæmalaust tjón í veðrinu
Aðeins flóðalægðin 9. janúar 1990
þykir líkjast Básendaflóðinu frá 1799,
en þá mældist kennialda á Garð-
skagadufli rúmir sextán metrar og
vildi til happs að lægðin kom að landi
á fjöru þegar ekki var stórstreymt,
að því er segir í áfangaskýrslu Gísla
Viggóssonar, Jónasar Elíassonar
og Sigurðar Sigurðarsonar frá 2016
sem ber heitið Ákvörðun á flóðhæð
í Básendaflóði. Í henni kemur m.a.
fram hversu margir tugir skipa og
báta brotnuðu eða skemmdust, vel
yfir tvö hundruð talsins, auk þess
fjölda bæjar- og verslunarhúsa og
bújarða sem skemmdust eða eyddust.
Hestar og kindur fórust í tugatali, þar
á meðal yfir eitt hundrað fjár í Grinda-
vík auk fjölda hrossa á Eyrarbakka
og Stokkseyri þegar sjórinn braut
varnargarða og flæddi um plássin og
nálægar bújarðir. Á Stokkseyri brotn-
uðu t.d. nálega þrjátíu bátar. Bara á
Suðurlandi er talið að yfir fimmtíu
bæir hafi skemmst, eins og Árni
Árnason sagnfræðingur getur um í
samantekt sinni um Básendaflóðið.
Í höfuðstaðnum, Reykjavík, varð
Seltjarnarnes að einangraðri eyju
og var haft eftir Geir Vídalín biskupi
að flóðið hefði verið þremur metrum
hærra en á venjulegu stórstraumsflóði
enda eyddi það mörgum jörðum og
bátum á svæðinu. Á Akranesi bjarg-
aðist fólk naumlega af Breiðinni og í
Staðarsveit varð gríðarlegt tjón enda
gekk sjórinn þar rúma tvo kílómetra á
land. Hús brotnuðu einnig í Ólafsvík
auk báta á Skógarströnd, en heimildir
eru einnig um tjón í Dölum, innar í
Hvammsfirði.
Slæm sjávarflóð oft komið
að suðvesturlandinu
Sjómannadagsblaðinu lék nokkur
forvitni á að vita hvort það gæti gerst
að „Básendaveður“ riði yfir aftur á
sama svæði og hvort tjónið af völdum
þess yrði í líkingu við það sem varð
1799. Trausti Jónsson veðurfræðingur
hefur rannsakað þróun veðurfars hér
við land í áratugi. Hann segir að þrátt
fyrir að mannvirki hafi verið reist
til varnar flóðum á undanförnum
áratugum, veðurspár nákvæmari og
hús, skip og bátar séu sterkbyggðari
og öruggari sé þess engu að síður
að vænta að verulegt tjón verði á
suðvesturhorninu ef annað sjávarflóð
á borð við Básendaflóðið riði yfir aftur
samfara stórstreymi. „Það hafa út af
fyrir sig oft komið slæm sjávarflóð
upp að suðurströndinni. Því má
ekki gleyma að tjón er háð tveimur
meginþáttum – annars vegar því sem
við köllum tjónmætti, en hins vegar
því sem kallað er tjónnæmi eða húfi.
Tvö veður sem eru svipuð að ætt og
afli (tjónmætti þeirra er svipað) geta
valdið mjög mismunandi tjóni vegna
þess að tjónnæmið er mismunandi,“
segir Trausti, sem bendir jafnframt á
að kaupstaðurinn á Básendum hafi
eiginlega beðið eftir því að lenda
í sjávarflóði og trúlega hafi ámóta
flóð komið þar síðan. „Það var bara
ekkert eftir til að eyðileggja. Það varð
líka mikið tjón á Akranesi; þar hefur
síðan orðið verulegt tjón í sjávargangi
hvað eftir annað og er ekki svo langt
síðan síðast.“ Trausti segir sjávarflóð
viðvarandi vandamál víða á landinu.
„Þar sem þau eru algengust er ekkert
að eyðileggja og því fáir sem frétta af.
En þar sem nægilega langur tími líður
á milli flóða til að hægt sé að byggja
hús (en ætti ekki að gera það) verður
tjón mikið – og stöku sinnum mjög
mikið.“
Sjávarflóð eru viðvarandi
vandamál víða á landinu
Eins og Trausti bendir á hafa oft
komið slæm sjávarflóð upp að
suðurströndinni. Sjómannadags-
blaðið leit því í skýrslu frá 2017 um
sjávarflóð á Íslandi sem Guðrún
Elín Jóhannsdóttir tók saman fyrir
Veðurstofuna, en hún inniheldur lista
yfir vel á þriðja hundrað sjávarflóð sem
heimildir eru um, allt frá árinu 1191 til
2015. Greinilegt er af upptalningunni
að mjög oft hafa orðið veruleg tjón
í áranna rás þar sem jarðir hafa
eyðilagst og búfénaður farist. Ekki
virðast þó viðlíka afleiðingar hafa
orðið og raunin var í veðrinu 1799 og
ekkert manntjón utan þess sem varð
að Básendum. Nær ekkert tjón varð
t.d. í Reykjavík, enda ölduhæð þar að
minnsta kosti einum metra lægri en
að Básendum samkvæmt því er fram
kemur í áfangaskýrslu Gísla, Jónasar
og Sigurðar sem að ofan var getið.
Hins vegar er eins og flestir vita vel
þekkt í borginni að flæði reglulega
í kjallara húsa þegar niðurföll hafa
ekki undan í stórrigningum, ekki síst
þegar stórstreymt er á sama tíma. Ekki
er þá um eiginleg flóðaveður að ræða,
sem bæjarbúar hafa þó orðið fyrir, t.d.
í desember 1832 þegar Austurvöllur
varð eins og stöðuvatn yfir að líta.
Trausti segir að áður fyrr hafi einnig
hent að Austurvöllur flæddi vegna
leysinga þegar lækurinn stíflaðist af ís.
Það átti sér t.d. stað í febrúar 1881 án
þess að um sjávarflóð væri að ræða.
má eiga von á öðru Básendaflóði?
Trausti Jónsson veður-
fræðingur hefur rann-
sakað þróun veðurfars
hér við land í áratugi.
Hann segir óhætt að
gera ráð fyrir áfram-
haldandi tjóni af völd-
um sjávarflóða hér við
land. Þar spili inn í bæði
hækkandi sjávarborð
vegna hnattrænnar
hlýnunar og landsig um
landið suðvestanvert.
Mynd/Hreinn Magnússon
Svona var umhorfs á Siglufirði í sjávarflóði sem þar varð árið 1934.
Mynd/síldarMinjasafn íslands
við höfum notið fremur
góðra sumra og mildra
vetra. Það hafa ekki verið
nema kannski tveir til þrír
vetur á þessari öld sem
tölfræðin skilgreinir sem
kalda. kannski var ófærðin
síðasta vetur nýlunda fyrir
einhverja, því við erum
orðin svo góðu vön og
munum ekki vel það sem
liðið er.