Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Síða 39

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Síða 39
39 S j ó M a N N a d a G S B l a ð i ð J Ú N Í 2 0 2 0 minnisvarði á fjörusteinum reykjavíkur Styttan „Horft til hafs“ eftir Inga Þ. Gíslason sem stendur á Miðbakka Reykja- víkurhafnar var afhjúpuð við virðulega athöfn árið 1997. Á stöpli hennar kemur fram að sjómannadagurinn í Reykjavík og Hafnarfirði hafi, í virðingu og þökk við íslenska sjómannastétt, reist minnisvarð- ann „á fjörusteinum Reykjavíkur, í tilefni 80 ára afmælis Reykjavíkurhafnar og 60. sjómannadagsins.“ Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi ráðherra og bróðir höfundar styttunnar var fenginn til að afhjúpa hana. Þáverandi borgarstjóri í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, flutti jafnframt ávarp. Guðmundur Hallvarðsson, sem þá var formaður Sjómannadagsráðs, sagði við afhjúpunina að styttan væri meðal annars til að minna borgarbúa á að það hefðu verið fiskimenn frá Reykjavík sem breyttu bænum í borg og komu fótum undir efnahagslíf hennar. Bronslituð afsteypa af styttunni var svo gefin út í tilefni 75 ára afmælis Sjómannadagsráðs árið 2012, en hægt er að festa á henni kaup á skrifstofu Sjómannadagsráðs. Frekari upplýs- ingar eru gefnar í síma 585-9300 og í tölvupósti: sdr@sjomannadagsrad.is. ósérhlífinn og til fyrirmyndar sigurður steinar ketilsson, fyrrv. skipherra og formaður ritnefndar sjómannadagsblaðsins, lést á landspítalanum 27. október 2019. hann hafði látið af störfum hjá landhelgisgæsl- unni 13. apríl 2018 eftir 50 ára starfsferil, upp á dag. hjá land- helgisgæslunni starfaði hann sem háseti og stýrimaður og var skipherra til 30 ára á varðskipum og loftförum. S igurður Steinar var einn þeirra baráttumanna sem komu á fót þyrlubjörgunarsveit Land- helgisgæslunnar og var talsmaður fyrir smíði á nýju varðskipi. Hann tók þátt í fjölda björgunar- og leitarstarfa og lagði á ferli sínum mikla áherslu á menntunar- og þjálfunarmál sjómanna. Hann var fulltrúi í Sjómannadagsráði höfuðborgarsvæðisins í rúm 20 ár og lengi í stjórn hollvinasamtaka Óðins. Þyrlusveitin endurreist Benóný Ásgrímsson, fv. flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni og samstarfsmaður Sigurðar Steinars í áratugi, rifjar upp í samtali við Sjómannadagsblaðið þann tíma sem þeir störfuðu saman. Þeir voru báðir hásetar og stýrimenn á skipum Gæslunnar á yngri árum og áttu síðar, ásamt Páli Halldórssyni flugstjóra, stóran þátt í endurreisn þyrlusveitar Gæslunnar. „Það er hægt að segja margt gott um Sigurð Steinar, en það sem stendur helst upp úr er það hversu duglegur hann var og ósérhlífinn í öllum verkum,“ segir Benóný. „Það mætti segja að allt sem hann skorti hafi hann bætt upp með dugn- aði og var þannig til fyrirmyndar fyrir alla þá sem störfuðu með honum, þá sérstaklega þá sem yngri voru.“ Benóný rifjar upp þann tíma sem fór í hönd eftir að þyrla Gæslunnar, TF-RÁN, fórst ásamt áhöfn hennar í Jökulfjörðum í nóvember 1983. Eðli málsins samkvæmt var Gæslan löskuð eftir þann missi og fyrir Alþingi lágu fyrir hugmyndir um að Íslendingar hættu að reka þyrlusveit og létu Bandaríkjaher eftir að sjá um leit og björgun á hafi úti. „Við lögðum mikið á okkur til að tryggja áframhaldandi uppbyggingu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar og þar sýndi Sigurður bæði dugnað og framsýni,“ segir Benóný. „Við heimsóttum alla ráðherra sem að málinu komu á þessum tíma og kynntum þeim hugmyndir okkar. Það var ekki síst fyrir tilstilli Sigurðar Steinars að á okkur var hlustað og uppbygging þyrlusveitarinnar hófst á ný. Næstu ár á eftir var Sigurður Steinar fremstur í flokki við þróun þjálfunaráætlunar sveitarinnar og er sú áætlun að mestu notuð enn þann dag í dag.“ Áhersla á fagmennsku og öryggi Alma Möller landlæknir tekur í sama streng, en hún starfaði, fyrst kvenna, sem þyrlulæknir frá árinu 1990. Sigurður Steinar var þá stýrimaður í þyrlusveit Gæslunnar. „Það þótti ekki sjálfsagt mál að kona yrði þyrlulæknir á þessum tíma en Sigurður Steinar tók vel á móti mér. Hann ól mig í raun upp í þyrlusveitinni og ég leit mikið upp til hans alla tíð,“ segir Alma. Að hennar sögn lagði Sigurður Steinar mikla áherslu á fagmennsku og öryggi í störfum þyrlusveitarinnar, en öll öryggismál höfðu verið tekin til endurskoðunar í kjölfar þess að TF-RÁN fórst. „Allt sem hann gerðist einkenndist af mikilli fagmennsku, hvort sem það var í störfum þyrlusveitarinnar eða öðrum störfum hans fyrir Landhelgisgæsluna,“ segir Alma. „Ég hef mikið hugsað til hans á liðn- um vetri, enda hefur reynt umtalsvert á almannavarnir og þar á meðal á Landhelgisgæsluna. Hann hefði til að mynda staðið stoltur þegar varðskipið Þór kom til Dalvíkur til að framleiða rafmagn fyrir bæinn, enda var hann einn helsti hvatamaður þess að svo öflugt varðskip yrði keypt til landsins.“ Sigurður Steinar var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálka- orðu 17. júní 2018 fyrir framlag sitt til landhelgisgæslu og björgunarstarfa. - gfv Sigurður Steinar Ketilsson við stýrið á varðskipinu Þór. Hann var einn helsti baráttu- maður þess að smíðað yrði varðskip í gæðaflokki á við Þór og fékk þann heiður að sigla skipinu heim frá Síle árið 2011. Mynd/gassi Olís hefur allt frá stofnun kappkostað að veita fyrirtækjum í sjávarútvegi trausta þjónustu með sölu á eldsneyti og rekstrarvörum til útgerða. Við ætlum að halda þeirri siglingu áfram. Samferða í 93 ár P ip a r\ T B W A • S ÍA

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.