Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 49
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 49
Urtagarðurinn í Nesi var opnaður árið 2010
í minningu þriggja manna sem tengdu
saman ræktun og heilsubót í lífi og starfi.
Þeir voru Bjarni Pálsson (1719-1779) land-
læknir, Björn Jónsson (1738-1798) lyfja-
fræðingur og lyfsali og Hans Georg Schier-
beck (1847-1911) landlæknir.
Áhugafólk um sögu lyfja- og læknis-
fræði hafði lengi haft áhuga á að skapa
vettvang til kynningar á sögu ræktunar í
Nesi. Tímamót í sögu tveggja landlækna
árið 2010 skapaði tækifæri til slíks sam-
starfs. Þá voru liðin 250 ár frá skipun
Bjarna Pálssonar í nýstofnað embætti
landlæknis (1760) og 125 ár frá stofnun
Garðyrkjufélags Íslands (1885). Fyrsti for-
maður þess var Hans Georg Schierbeck
landlæknir. Vilhjálmur Lúðvíksson, þá-
verandi formaður Garðyrkjufélags Íslands,
hafði veg og vanda af að leiða samstarf um
stofnun Urtagarðsins í Nesi með fulltrúum
Seltjarnarnesbæjar, Embættis landlæknis,
Læknafélags Íslands og Lyfjafræðingafé-
lags Íslands auk Lyfjafræðisafns Íslands og
Lækningaminjasafns Íslands sem þá voru
starfandi í Nesi.
Bjarni Pálsson var skipaður fyrsti land-
læknir Íslands árið 1760 og hafði aðsetur á
Bessastöðum. Árið 1763 flutti landlæknir í
reisulegt hús í Nesi við Seltjörn sem byggt
var fyrir embættið og stendur þar enn. Þetta
var upphaf opinberrar heilbrigðisþjónustu
á Íslandi. Bjarni sýndi fljótt vilja til að bæta
næringarástand þjóðarinnar með fræðslu
og nytjarækt. Mataræði landsmanna var
einhæft og skortsjúkdómar algengir. Bjarni
fékk öflugan liðsauka þegar Björn Jónsson
var ráðinn aðstoðarmaður hans árið 1968 en
á þeim tíma var rekstur lyfjabúðar hluti af
starfi landlæknis. Björn hafði lært lyfjafræði
í Vajsenhus-apóteki í Kaupmannahöfn í 6 ár
og starfað sem aðstoðarlyfjafræðingur áður
en hann fluttist til Íslands. Björn byggði upp
matjurta- og lækningajurtagarð í Nesi frá
1768. Samkvæmt heimildum hefur hann ver-
ið um 200 fm, með hlöðnum vegg umhverfis
og lýsa heimildir áhuga Björns á ræktun, til-
raunum á því sviði og hvaða jurtir hafi verið
að finna í garði hans.
Björn var skipaður fyrsti lyfsali á Íslandi
1772. Þá var sett tilskipun um rekstur
apóteka og sama ár kom fyrsta lyfjaskráin
út í Danmörku, Pharmacopoea Danica. Hún
gilti fyrir öll apótek í ríki Danakonungs og
innihélt 640 uppskriftir að lyfjum sem apó-
tekurum bar að fylgja við blöndun lyfja. Á
þessum tíma var það skylda lyfjafræðinga
að hafa sinn eigin lækningajurtagarð og
rækta plöntur til lyfjagerðar.
Urtagarðurinn í Nesi 2010 – tilgátugarður
Urtagarðurinn var settur niður austan við
Nesstofu þar sem í seinni tíð var matjurta-
garður ábúenda í Nesi. Garðurinn hefur
útlit sem minnir á klausturstíl, með hlöðn-
um veggjum úr torfi. Plöntur voru valdar
í fyrstu miðað við árin 1763 til 1834 út frá
skriflegum heimildum um ræktun hér á
landi og hvað mætti reyna að rækta af því
sem tiltekið er í Pharmacopoea Danica 1772.
Sú yfirferð var unnin af Kristínu Einars-
dóttur lyfjafræðingi, Ingólfi Guðnasyni
garðyrkjufræðingi og Erni Bjarnasyni lækni.
Garðurinn var vígður í ágúst 2010 og
síðar um haustið kom út Plöntuvísir. Þar er
gerð grein fyrir þeim tæplega 130 jurtum
sem í garðinum voru, alþýðulækningajurt-
um, lækningajurtum og matjurtum sem
talið er líklegt að hafi verið nýttar í Nesi á
árunum 1763-1834.
Stjórn Urtagarðsins fékk styrk úr Þjóð-
hátíðarsjóði til að styðja við sagnfræði-
rannsóknir á sögu ræktunar í Nesi. Fyrir-
liggjandi heimildir á þessum tíma höfðu
sýnt bréfasamskipti vegna kaupa Björns
Jónssonar á dýrum fræjum frá Kaup-
mannahöfn. Sú spurning hafði vaknað
hvort Björn hafi mögulega verið fyrstur til
að rækta rabarbara hér á landi. Jóhanna Þ.
Guðmundsdóttir sagnfræðingur leitaði að
heimildum, meðal annars um innkaupin,
en þau gögn reyndust ekki vera tæmandi.
Síðari tíma rannsóknir hafa sýnt bréfa-
skipti milli Björns Jónssonar og Hannesar
Finnssonar biskups 1769, þar sem Björn
segir frá sigrum og ósigrum í ræktunar-
tilraunum sínum. Þannig kom það til að
óskað var eftir stuðningi við að stækka
plöntusýninguna svo að hún endurspegl-
aði betur þekkingu dagsins í dag. Nú hefur
garðurinn því verið stækkaður og það hafa
bæst við eplatré af ýmsum yrkjum, berja-
runnar og sérstakt hvanna- og laukabeð.
Lifandi safn
Frá opnun urtagarðsins 2010 hafa verið
Ö L D U N G A D E I L D I N
Urtagarðurinn í Nesi í 10 ár
Lilja Sigrún Jónsdóttir
liljasj@gmail.com
Lilja Sigrún tók þessa mynd úr Urtagarðinum. Nesstofan
ber uppruna sínum fagurt vitni og rís upp einsog danskur
herragarður.
skipulagðar árlegar leiðsagnir og málstofur
í tengslum við garðinn. Grunnsýningin
er óbreytt en sýning á klausturjurtum var
samþættuð við hana árið 2015, eftir að
fundust leifar af þekktum lækningajurtum
við fornleifarannsóknir á klausturstæðum
hér á landi frá miðöldum. Sumarið 2018 var
safnað fjölbreyttum yrkjum af kartöflum,
bæði sögulegum sem lengi hafa verið hér
á landi og nýrri frækartöflum. Afurðirnar
voru sýndar á fræðsludegi. Stjórn heldur
úti síðu á Facebook fyrir garðinn.
Urtagarðurinn í Nesi hefur nýst al-
menningi og skólum. Gestir geta leitað á
söfnin í Nesi um leiðsögn og fræðslu. Eftir
lokun Lækningaminjasafns Íslands gekk
Þjóðminjasafn Íslands inn í samkomulagið
um garðinn. Frá upphafi hefur stuðningur
Lyfjafræðisafnsins á vettvangi verið mikil-
vægt bakland fyrir starfsemi garðsins.
Markmiðið með starfinu er að Urtagarður-
inn í Nesi sé sjálfstæður áfangastaður þar
sem má fræðast um sögu, ræktun og þróun
þekkingar.
Heimildir
Bjarnason ÁH. Íslensk flóra með litmyndum. Iðunn,
Reykjavík 1983.
Guðmundsdóttir JÞ. Garðrækt í Nesi við Seltjörn á síðari
hluta 18. aldar. Garðyrkjuritið 2010: 28-35.
Guðnason I. munnlegar heimildir.
Jónsdóttir LS. Urtagarður í Nesi: Plöntuvísir. Ritstj.
Seltjarnarnesi 2010.
Kennsluefni í útikennslu: utigrottu.com/copy-of-fjaran-1
Kolbeins ÞE. Urtagarðurinn í Nesi. Lækningajurtir þá og nú.
Ritgerð. Landbúnaðarháskóli Íslands, Reykjum í Ölfusi
2010.
Þórólfsdóttir H. Náttúra og saga í Nesi við Seltjörn.
Verkefnasafn. Menntavísindasvið Háskóla Íslands 2011.