Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 9
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 9
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Ólafur Helgi Samúelsson
sérfræðingur í lyf- og
öldrunarlækningum,
Landspítala og
hjúkrunarheimilinu Eir
olafs@landspitali.is
Langlífi og heilbrigðisþjónusta
Ólafur Helgi Samúelsson MD
Spec. Internal Medicine
and Geriatrics, Landspitali
University Hospital Reykjavik
Iceland and Eir Nursing home
Okkur hættir til að skilgreina
ákveðinn aldurshóp sem fyrst og
fremst þjónustuþega en eldra fólk
hefur eins og aðrir borgarar ólíka
getu og þarfir og geta lagt til
samfélagsins á margan hátt.
doi 10.17992/lbl.2021.01.614
Með auknu langlífi stendur mannkynið frammi
fyrir mestu breytingu á samsetningu þjóðfélaga í
sögu sinni. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO hef-
ur undanfarin ár undirbúið fjölþætt verkefni sem
nefnist Áratugur heilbrigðrar öldrunar 2020-2030.
Átakið er hugsað sem tækifæri til að efla samvinnu
stjórnvalda, alþjóðlegra stofnana, fagfólks, vísinda-
samfélags, fjölmiðla, einkafyrirtækja og borgara til
að móta hugmyndir og leiðir til að bæta tilveru aldr-
aðra, fjölskyldna þeirra og samfélaga þar sem þeir
búa. Ennfremur sem átak til hugarfarsbreytinga,
meðal annars til að vinna á útbreiddum aldursfor-
dómum. Þarna kennir ýmissa gagnlegra grasa.1
Fjöldi 70 ára og eldri Íslendinga mun varlega áætl-
að tvöfaldast á næstu 30 árum og þau verða fjórð-
ungur þjóðarinnar. Til að mæta þessu þarf nýjar
áherslur og viðhorfsbreytingu. Ein birtingarmynd
of einfaldrar sýnar á heilbrigðisþjónustu við aldraða
er áratuga reglubundið ákall um að leysa útskriftar-
vanda Landspítala með bráðabirgða plássum í bið eft-
ir hjúkrunarrými. Ævinlega er talað um tímabundið
neyðarástand. Þessi lausn er löngu gjaldþrota og
minnir á sífellt hærri yfirdrátt á bankareikningi. Að-
ferðin hefur skilað vaxandi fjölda eldri einstaklinga
í rýmum sem ekki uppfylla skilyrði um aðstöðu eða
þjónustu. Óskandi væri að ríki, sveitarfélög, félaga-
samtök og einkaframtak gætu sameinast í meira
mæli um aðrar skapandi hugmyndir.
Mikilvægt verkefni er að seinka færniskerðingu.
Vitundaraukning um mikilvægi hreyfingar, fé-
lagslegra tengsla og heilbrigðra lífshátta, jafnvel í
elstu aldurshópum, er grunnur að betri lýðheilsu.2
Heilsufar eldra fólks einkennist oft af langvinnum
og samverkandi flóknum vandamálum. Heilbrigð-
iskerfi sem mæta þessu á samþættan og heildræn-
an hátt eru skilvirkari en kerfi sem fyrst og fremst
bregðast við einstaka sjúkdómsmiðuðum uppákom-
um. Vaxandi þörf verður fyrir menntun sérhæfðs
starfskrafts. Auka þarf möguleika til endurhæfingar
eftir heilsufarsáföll og sjúkrahúsdvöl. Þessi starf-
semi getur verið á ýmsum stigum en þarf að upp-
fylla skilyrði um þekkingu og þjónustu. Heimaþjón-
ustu með áherslu á teymisvinnu og fyrirbyggjandi
vinnubrögð þarf að efla. Reglubundin skimun og
mat atriða eins og færni, geðeinkenna, vitrænnar
getu, næringar og lyfjameðferðar auka möguleika á
inngripum áður en í óefni er komið. Lykilaðilar hér
væru heilsugæsla og heimaþjónusta með greiðan
aðgang að sérhæfðum göngudeildum og sérfræðing-
um. Þetta dregur úr þörf á þjónustu bráðadeilda og
seinkar hjúkrunarheimilisþörf.
Á 21. öldinni þarf að þróa kerfi langtímaumönn-
unar sem er fjölbreytt og fagleg og þar sem viðeig-
andi þjónusta er veitt heima eða á stofnunum eftir
þörfum einstaklinga. Hjúkrunarheimili geta gegnt
fjölbreyttu hlutverki með endurhæfingu og hvíldar-
innlögnum auk heimilishlutverks. Þau þurfa faglega
að ráða við flókin tilfelli, meðan annars vitræna
skerðingu með hegðunartruflunum, eftirlit og með-
ferð bráðra og langvinnra sjúkdóma, reglubundna
yfirferð lyfjameðferðar og aðstöðu til að veita líkn-
andi og lífslokameðferð. Slíkt dregur úr óviðeigandi
og stundum skaðlegri notkun bráðaþjónustu við-
kvæms hóps. Fjármögnun, fagleg mönnun og kröf-
ur um þjónustu þurfa að vera í samræmi við þetta.
Yfirstandandi heimsfaraldur hefur víða dregið mik-
ilvægi þessa fram í dagsljósið.3
Nútímasjúkrahús þarf að taka tillit til þarfa vax-
andi hóps fjölveikra skjólstæðinga og haga þjónustu
sinni og umhverfi þannig að dragi úr skaðlegum
áhrifum sjúkrahúsdvalar og bráðra veikinda. Skipu-
leggjendur starfsemi nýs Landspítala mættu hafa
slíkar áherslur í huga.
Aldrei á æviskeiði er meiri munur milli einstak-
linga en á efri árum og í raun enginn dæmigerður
aldraður. Þessi breytileiki er ekki
tilviljanakenndur heldur háður fé-
lagslegum og efnahagslegum þátt-
um, lífsstíl, kyni og fleiru. Okkur
hættir til að skilgreina ákveðinn
aldurshóp sem fyrst og fremst
þjónustuþega en eldra fólk hefur
eins og aðrir borgarar ólíka getu
og þarfir og getur lagt til samfé-
lagsins á margan hátt. Eðlilegt er
að hlutverk breytist eftir æviskeiðum en þörf fyrir
tilgang og bestu mögulega heilsu er ekki aldursháð.
Ef færni og heilsa eru góð, fylgja ótal tækifæri með
auknu langlífi. Ef efri ár einkennast fyrst og fremst
af hraðri afturför eru áhrif langlífis neikvæð fyrir
einstakling og samfélag.
Íslendingar sem nú eru um eða yfir miðjum aldri
eiga tækifæri til að hafa mótandi áhrif á samfélag
nánustu framtíðar. Áhugavert væri að ímynda sér
hóp aldraðra næstu 20 til 30 ára. Í þeim flokki gætu
reynst kunnugleg andlit. Hvernig samfélag og heil-
brigðisþjónusta viljum við að mæti þeim?
Longevity and Health
Care Services
Heimildir
1. who.int/initiatives/decade-of-healthy-ageing - desember 2020.
2. Gudlaugsson J, Aspelund Th, Guðnason V, et al. Áhrif 6 mánaða
þjálfunar á hreyfigetu, vöðvakraft, þol og líkamsþyngdarstuðul eldri
einstaklinga - Eru áhrif þjálfunar sambærileg hjá konum og körlum?
Læknablaðið 2013; 99: 331-7.
3. O´Neill D, Briggs R, Holmerovå, et al. COVID-19 highlights the need
for universal adoption of standards of medical care for physicians in
nursing homes in Europe. Eur Geriatr Med 2020; 11: 645-50.
Nánari upplýsingar veitir
Júlíus Arnarson
Netfang: julius@fastus.is
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Í GÓÐU JAFNVÆGI
MEÐ WELLION CALLA
Einfaldur blóðsykursmælir ætlaður fólki með sykursýki 2
Wellion Calla
blóðsykursmælir
+ 2 strimlabox
TILBOÐSVERÐ:
8.900 kr