Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 15

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 15
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 15 R A N N S Ó K N hjúkrunarheimilum.29 Mikilvægt er að íslensk hjúkrunarheimili nýti sér slíkar leiðbeiningar. Einnig er þörf á að rannsaka hvaða þættir hafa áhrif á geðlyfjanotkun á íslenskum hjúkrunarheimil- um því tíðni geðlyfjanotkunar, og því að líkindum ástæður henn- ar, er mismunandi eftir löndum og á milli hjúkrunarheimila innan hvers lands.14 Mikilvægt er að þekkja þá þætti sem stuðla að óþarfa geðlyfjanotkun til að unnt sé að draga úr henni. Það krefst einstaklingsbundinnar nálgunar og varúðar að draga úr geðlyfjanotkun og gott er að bjóða upp á önnur með- ferðarúrræði samhliða því og einnig til að fyrirbyggja óþarfa geðlyfjanotkun. Ýmis sálfélagsleg inngrip gagnast öldruðum og mörg meðferðarúrræði hafa verið þróuð til draga úr hegðunar- og geðrænum einkennum meðal fólks með heilabilun, meðal annars hreyfing, nudd-, ilm- og birtumeðferð og endurminninga-, tónlist- ar- og gæludýrameðferð. Árangur þessara úrræða er misvel studd- ur rannsóknum – sumar þeirra eru þó gagnreyndar30 – en þær eru skaðlausar og oft ódýrar í framkvæmd. Þakkir Rannsakendur vilja þakka styrk til rannsóknarinnar frá Vísinda- sjóði Landspítala og Vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga. dregið úr óróleika og hegðunarvanda heilabilaðra, sérstaklega ef þau eru alvarleg, en árangur er of lítill til að mæla með þeim, ekki síst vegna hættunnar á skaðlegum áhrifum.23 Rannsóknir benda til að geðrofslyf auki hættu á dauðsföllum, sykursýki, sljóleika, föllum og mjaðmagrindarbrotum og hafi skaðleg áhrif á hjarta- og æðakerfi, þar með talið blóðtappamyndun.24 Einnig eru vís- bendingar um að hefðbundin geðrofslyf valdi frekar skaðlegum áhrifum en óhefðbundin. Þetta á sérstaklega við um áhrif á hjarta og æðakerfi, sykursýki, sljóleika24 og hættu á dauðsföllum.25 Þær rannsóknir sem hér er vísað til náðu til almenns þýðis, en nýleg safngreining26 bendir til að óhefðbundin geðrofslyf auki hættu á dauðsföllum þegar þau eru gefin vegna hegðunar og sálfélagslegs vanda eldra fólks með heilabilun. Rannsóknargögnin veita ekki upplýsingar um hlutfallslega tíðni á milli notkunar hefðbundinna og óhefðbundinna geðrofslyfja á íslenskum hjúkrunarheimilum. Ályktanir Gæta þarf meiri nákvæmni í greiningum á geðrænum vanda íbúa íslenskra hjúkrunarheimila með því að aðlaga greiningaraðferðir að þörfum þeirra. Sérstaklega þarf að hafa í huga að þunglyndis- einkenni, óróleiki og hegðunarvandi fólks með heilabilun get- ur stafað af líkamlegum óþægindum og sársauka.27 Árangur af geðlyfjanotkun aldraðra er óviss og þau geta haft skaðleg áhrif. Því er mikilvægt að draga úr notkun þeirra. Mikil geðlyfjanotkun á öldrunarheimilum er hluti stærri vanda fjöllyfjanotkunar, sér- staklega þegar óæskilegar samlegðaraukaverkanir vega þyngra en ábatinn af einstaka lyfi. Ýmsar leiðbeiningar hafa verið þróaðar til að draga úr fjöllyfjanotkun aldraðra og Embætti landlæknis mælir með Stop-Start-viðmiðunum.28 Einnig hafa verið þróað- ar árangursríkar leiðbeiningar til að draga úr geðlyfjanotkun á Páll Biering1 Ingibjörg Hjaltadóttir1,2 1Faculty of Nursing, University of Iceland, 2Division of Clinical Services Landspítali, National University Hospital. Correspondence: Páll Biering, pb@hi.is Key words: older people, mental health care, psychiatric diagnoses, psychotropic medication. E N G L I S H S U M M A R Y The prevalence of psychiatric diagnoses and psychotropic medication in icelandic nursing homes from 2003 to 2018 INTRODUCTION: Research shows a high prevalence of mental disorders and psychotropic medication among older people, especially in nursing homes. Knowledge of this concerning issue among Icelandic nursing homes residents is limited, despite its importance for mental health policymaking. Therefore, the aim of this study was to investigate the prevalence of psychiatric diagnoses and psychotropic medication in Icelandic nursing homes, the relationship between these factors and how they have evolved from 2003 to 2018. MATERIAL AND METHODS: The research data comes from interRAI MDS 2.0 assessments for nursing home residents in Iceland, for the period 2003-2018. The study uses the last assessment of each year (N=47,526). RESULTS: Approximately half of the residents were diagnosed with anxiety and/or depression; 49.4% in 2003 and 54.5% in 2018. The use of psychotropic drugs increased from 66.3% to 72.5%. Antidepressants were most commonly utilized, with an increase from 47.5% to 56.2%. The use of antipsychotics drugs has remained nearly unchanged, at around 26%. Inconsistency was found between psychotropic medication and psychiatric diagnoses; on average, 18.2% of the residents took psychotropic drugs without being diagnosed and 22.3% took antipsychotics in other cases than recommended. CONCLUSION: Age related changes influence the effect of psychotropic drugs and studies have not supported their positive long-term effects for older people who are also sensitive to associated adverse effects, especially in cases of polypharmacy. Therefore, it is important that psychotropic drugs use is based on accurate mental health assessment. To reduce psychotropic medication, other mental health interventions need to be developed. doi 10.17992/lbl.2021.01.615 Greinin barst til blaðsins 9. september 2020, samþykkt til birtingar 23. nóvember 2020.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.