Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 44

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 44
44 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 ents við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands. Hún starfaði einnig við Johns Hopkins háskóla. „Við lærðum bæði þar og fengum svo stöður. Hún við há- skólann og ég sjúkrahúsið.“ Rannsóknir á dýrum mikilvægar Hans Tómas vill sjá tilraunadýrainnviði rísa í Vatnsmýrinni. „Setja þarf meiri kraft í þessa hugmynd.“ Þar verði gerðar erfðarannsóknir á músum með CRISPR/ Cas9-erfðatækninni. Nóbelsverðlaun voru veitt fyrir uppgötvunina 2020 þar sem náttúrulegt kerfi baktería er nýtt til að breyta frumum eða músum mjög hratt. „Margar siðferðilegar vangaveltur hafa kviknað í kjölfar þessarar tækni en á sama tíma tel ég að þetta sé grundvöllur að næstu líftæknibyltingu. Við getum núna fært okkur hraðar að meðferðum við sjaldgæfum erfðasjúkdómum og kannski öðrum algengum sjúkdómum,“ segir hann. „Það er frábær dýraaðstaða hjá Arct- icLAS uppá Höfða en hún er ekki í eigu Landspítala eða Háskólans þótt lang- tímasamstarf sé þar á milli. Mér finnst að þessar stofnanir komist ekki á næsta stig án þess að vera með slíka aðstöðu inni á háskólasvæðinu. Ég hef því barist fyrir því að þessi aðstaða verði færð í námunda við vísindamenn.“ Þjónustan hér á landi sé líka of dýr og ekki samkeppnishæf. Þetta séu dæmigerðir innviðir, nauðsyn- legir nútímavísindamönnum og mikil- vægir til þess að draga til Íslands góða vísindamenn. „Í augnablikinu strandar þetta á skipulagi og peningum. Hafa verður í huga að þetta eru innviðir sem hjálpa mörgum,“ segir hann og nefnir auk akademíunnar sprotafyrirtæki. „Ísland stendur framarlega í heilbrigðissprotum. Ég tel að við ættum að lækka alla þrösk- ulda þar til að verða enn betri í þeim geira.“ Seinagangur í stjórnsýslunni Hans Tómas bendir á gróskuna sem orðið hafi í lyfjaiðnaði hér á landi og hjá Íslenskri erfðagreiningu. „Það margfald- ar verðgildi hugmyndar að geta tekið hana áfram í tilraunadýr.“ Hann áréttar að tilraunir á dýrum séu gerðar hér eftir skýrum sameiginlegum Evrópureglum en yfirvöld séu ekki á tánum. „Sem dæmi sendi ég inn umsókn um rannsókn á músum í apríl en ég heyrði af því að nefndin sem tekur umsóknina fyrir hafi verið skipuð núna í desember. Í svona rannsóknarstarfi getur hver vika skipt máli. Viðhorfið hér er því mjög gamaldags og það er fáránlegt að leyfa skriffinnsku að seinka vísindum,“ segir hann. En gæt- um við þá verið í fremstu röð? „Við erum það á sumum sviðum eins og í erfðafræði,“ bendir hann á. „Og lífvísindi á Íslandi standa ekki illa. Það þyrfti ekki mikið til þess að við værum samkeppnishæf við þá bestu.“ Staðan fari eftir fjárhagsstöðu stofnananna. „Bæði Háskólinn og Landspítali eru fjársveltar stofnanir og það mætti alveg koma inn meiri fjármunum hjá báðum.“ Hann bendir á að Háskólasjúkrahús sinni þremur jafngildum hlutverkum: Lækningum, kennslu og rannsóknum. Það síðastnefnda sé hins vegar skorið niður meira en það fyrsta. „Það er því á mörkunum að við getum kallað okkur há- skólasjúkrahús eins og staðan er í dag.“ Vísindi dragi fólk heim En kostar mikið að laga þetta? Hans Tómas segir ávinninginn ríkulegan. „Vís- indi eru góð leið til að draga heim fólk með nýja þekkingu og til að hjálpa þeim sem eru heima til að vera á tánum varð- andi nýjar meðferðir fyrir sjúklinga. Þetta er líka tól til að draga úr kulnun,“ segir hann. „Í faginu mínu og krabbameinslækn- ingum er töluverð hætta á kulnum því slíkir sérfræðingar sinna einstaklingum með alvarlega sjúkdóma sem oft valda minnkuðum lífslíkum. Ég held að rann- sóknarvinna sé ein leið til að koma í veg fyrir kulnun hjá þessum sérfræðingum.“ Hans Tómas segir að það virki ekki alltaf að stóla á að íslenskir læknar sæki á endanum heim bara til að vera á Íslandi. Æ algengara sé að fólk horfi í aðstöðuna til að geta flutt rannsóknir sínar heim. „Það eru að verða kynslóðaskipti. Margir læknar hugsa að þeir hafi það gott ytra.“ Tækninni fleygi svo hratt fram og Ísland þurfi að tryggja nauðsynlega innviði til að læknar haldi áfram að koma heim að námi loknu. Erfðatækni geti tekið á þroskaskerðingu „Alls konar vígi hafa fallið með erfða- fræðinni,“ segir Hans Tómas Björns- son, yfirlæknir í klínískri erfðafræði við Landspítala. „Þroskaskerðing hefur verið vígi þar sem fólk hefur trúað að ekkert sé hægt að gera. Í læknisfræði var okkur kennt að skerðingin yrði á fósturskeiði og skaðinn skeður. En niðurstöður rannsókna á Kabuki-heilkenninu og nokkrum öðrum skyldum sjúkdómum benda til þess að þar sé hópur sem hægt sé að meðhöndla.“ Vel hafi gengið í til- raunum á dýrum og leiða sé leitað til að yfirfæra það til manna. „En þetta hefði aldrei verið hægt að gera án dýratilrauna og við höfum verið í samvinnu við lyfjafyrirtæki að koma þessari þekkingu í klínískar prófanir og við vonumst til að það gerist á næstu árum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.