Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 27

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 27
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 27 S J Ú K R A T I L F E L L I og stækkunar á myndfleti (video-laparoscopy), sem gerir greiningu og meðferð á smærri vefjaskemmdum öruggari.2,5 Meðferð loftbrjósts er að fjarlægja loftið úr fleiðruholinu og draga þannig út lungað, en stundum dugar að bíða og sjá til. Hjá einstaklingum með stórt loftbrjóst getur þurft að setja brjósthols- kera eða gera skurðaðgerð og síðan framkvæma fleiðruertingu til að loka viðkomandi hluta fleiðruholsins. Tilgangurinn er að fyrir- byggja endurtekið loftbrjóst.1 Við tíðatengt loftbrjóst þarf að auki að bæla niður tíðablæðingar með hormónum. Mælt er með því að nota GNRH-agónistalyf til þess að stöðva blæðingar.2,8,9 Þessi lyf bæla undirstúku-heiladinguls-eggjastokka öxulinn og þar með vöxt legslímufrumna, eins og reynt var í þessu tilviki með árangri, en lyfin geta einnig valdið tíðahvarfa-líkum einkennum og bein- þynningu. Ef hormónameðferð skilar ekki árangri eða verður ekki við komið, er mælt með skurðaðgerð sem meðferð. Levónorgestrel- lykkjan er góð framhaldsmeðferð til að stöðva tíðablæðingar og hún er getnaðarvörn þar að auki. Brjóstholsspeglun er nú álitin bæði besta aðferðin til grein- ingar og meðferðar á loftbrjósti vegna endómetríósu. Dugað get- ur að „brenna“ blettina, en ef þeir ná lengra inn í lungnavefinn getur þurft að framkvæma brottskurð umhverfis blettina, jafnvel fleygskurð eða blaðnám á lunga sem þó væri alltaf lokaúrræði. Í lok aðgerðar ætti að gera kemíska fleiðruertingu til þess að hindra endurkomu loftbrjóstsins enn betur.2,3,8 Ef grunur er um loftbrjóst af völdum endómetríósu er nú mælt með því að gerð sé samhliða kviðarholsspeglun til að meta út- breiðslu sjúkdómsins og taka vefjasýni í grindarholi og frá lifur og neðanverðri þind. Í öllum kviðsjárspeglunum vegna gruns um endómetríósu í grindarholi ætti líka að skoða þindina neðan frá.2 Endómetríósublettir á þind eru svartir, bláir, fjólubláir eða rauðir á litinn, en oft sjást aðeins hvít örvefssvæði eða samvextir milli þind- ar og lifrar.2 Til þess að þetta gerist með réttum hætti þarf sérþekk- ingu skurð- og kvensjúkdómalækna og vandlegan undirbúning. Þá þurfa heimilislæknar, lungnalæknar og brjóstholsskurðlæknar Catamenial pneumothorax due to pulmonary endometriosis Ásdís Kristjánsdóttir1 Gunnar Mýrdal2 Margrét Sigurðardóttir3 Reynir Tómas Geirsson4 1Faculty of Medicine, School of Health Sciences, University of Iceland, 2Department of Surgery, Landspitali University Hospital, 3Department of Pathology, Landspitali University Hospital, 4Department of Obstetrics and Gynecology, Women´s Clinic, Landspitali University Hospital. Correspondence: Ásdís Kristjánsdóttir, ask41@hi.is Key words: endometriosis, pneumothorax, thoracic complications, pleurodesis. doi 10.17992/lbl.2021.01.617 Endometriosis is a chronic condition causing menstrual pain, irregular bleeding and infertility among women. Although usually in the pelvis, it can manifest in atypical places. We describe a 39-year old woman with a previous endometriosis diagnosis who presented three times on the second menstrual day with dyspnea and chest pain. Imaging showed right-sided pneumothorax on all three occasions. Thoraco- scopy revealed endometriosis-like lesions. Histology was suggestive of endome- triosis. After treatment with chemical pleurodesis and hormonal suppression she has remained symptom-free. Diagnosis should be obtained by concomitant thoraco- and laparoscopy with biop- sies to verify the disease and give a basis for appropriate treatment. E N G L I S H S U M M A R Y Heimildir 1. Guðbjartsson T, Tómasdóttir GF, Björnsson J, el al. Sjálfkrafa loftbrjóst. Yfirlitsgrein. Læknablaðið 2007; 93: 415-24. 2. Nezhat C, Lindheim SR, Backhus L, et al. Thoracic Endometriosis Syndrome: A Review of Diagnosis and Management. JSLS 2019; 23: e2019.00029. 3. Gil Y, Tulandi T. Diagnosis and Treatment of Catamenial Pneumothorax: A Systematic Review. J Minim Invasive Gynecol 2020; 27: 48-53. 4. Gylfason JT, Kristjansson KA, Sverrisdottir G, et al. Pelvic endometriosis diagnosed in an entire nation over 20 years. Am J Epidemiol 2010; 172: 237-43. 5. Kristjánsdóttir Á. Endómetríósa á Íslandi 2001-2015: Nýgengi, staðsetning og aðgerðir. Háskóli Íslands 2018. 6. Tómasdóttir GF, Torfason B, Guðbjartsson T. Tíðaloftbrjóst – snúin greining og meðferð - Sjúkratilfelli. Læknablaðið 2007; 93 (fylgirit 54): 32. 7. Sorino C, Negri S, Spanevello A, et al. The pleura and the endocrine system. Eur J Intern Med 2020; 72: 34-7. 8. Marshall MB, Ahmed Z, Kucharczuk JC, et al. Catamenial pneumothorax: optimal hormonal and surgical management. Eur J Cardiothorac Surg 2005; 27: 662-6. 9. Tsakiridis K, Triantafilopoulou K, Minadakis G, et al. Catamenial Pneumothorax Recurrence Due to Endometriosis. Respir Med Case Rep 2020; 30: 101036. að vera upplýstir um sjúkdóminn svo konur með sjúkdóminn fái kjörmeðferð, bæði í og eftir aðgerðina. Snemmgreining og tíma- bær meðferð eru til þess fallin að draga úr alvarleika og frekari vefjaskemmdum.2,5 Tíðatengt loftbrjóst ætti alltaf að vera hluti af mismunagreiningu loftbrjósts hjá konum á frjósemisaldri með tíðatengda brjóstverki og öndunarerfiðleika.3 Í þessu tilviki var konan með dæmigerð einkenni og hafði gert sér grein fyrir hvað gæti verið að sér, en endurteknar skoðanir lækna þurfti til að fá klínísku greininguna. Aðeins þarf fáeinar legslímufrumur til þess að framkalla mánaðarlega fleiðrublæðingu. Þó legslímufrumur hafi ekki sést með vissu við vefjaskoðun voru merki um fyrri blæðingu og örvef ásamt hormónaviðtökum til staðar sem ekki ættu að vera í lungna- vef. Mismunagreiningin gat þess vegna ekki verið neitt annað en endómetríósa í lunga. Greinin barst til blaðsins 4. nóvember 2020, samþykkt til birtingar 10. desember 2020
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.