Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 47

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 47
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 47 V I Ð T A L ekki? Ég lét mér hvergi bregða, horfði ámóta fast og ákveðið í augu hans og svaraði: Að sjálfsögðu – opnaðu nú munn- inn. Ekki veit ég hvort hann trúði mér en hann opnaði munninn og ég deyfði hann. Deyfingin tókst vel, líklega byrjanda- heppni, og svo hófst sjálf athöfnin. Greip töngina, kom henni vandlega fyrir á tönn- inni, hnúarnir hvítnuðu, hélt úlnliðnum stífum samkvæmt leiðbeiningum og byrj- aði að reyna að losa um tönnina. Leyfði mér að gjóa augunum á andlit bóndans og var ekki viss um að honum litist á blikuna. Beitti þolinmæðinni, hélt áfram með hægum en öruggum hreyfingum og allt í einu var tönnin laus. Nú stóð ég fyrir framan bóndann, við störðum báðir á tönnina í tönginni eins og naut á nývirki og mátti ekki á milli sjá hvor var meira hissa. Náði fljótt áttum og lauk þessu með kæruleysislegu yfirbragði. Fyrstu tanntök- unni lokið. Leið nú fram á þorra. Þorrablót í sveitinni voru skemmtanir sem áttu sér engar líkar og að sjálfsögðu vorum við mætt á svæðið. Eftir frábæran þorramat, skemmtiatriði og í góðri stemningu losn- aði um borðhaldið. Ég var varla staðinn á Gamla réttin á Geirseyri. Handan Patreksfjarðar sést fremst í Örlygshöfn og utar í Hænuvík. Fyrir neðan er Vatneyri og svo Blakkurinn við sjónarrönd. Myndina tók Daníel Bergmann og er birt í Árbók Ferða- félags Íslands 2020: Rauðasandshreppur hinn forni. Gísli Már Gíslason og Ólafur B. Thoroddsen. fætur þegar bóndinn sem ég dró tönnina úr um haustið kom til mín og sagðist endilega þurfa að tala við mig í trúnaði. Ég vissi ekki á hverju ég átti von. Ekki óvenjulegt að fólk tæki mann afsíðis á ýmsum stöðum, til dæmis í kaupfélaginu, og segði manni sjúkrasögur og vildi fá úrlausn sinna mála. Var hann óánægður með síðustu samskipti okkar við tann- tökuna? Hvað vissi ég? Hann hafði ekki kvartað. Það var hins vegar ekki heiglum hent að finna eitthvað prívat í félagsheim- ilinu á þorrablóti til að ræða trúnaðarmál. Bændur og búalið fylltu hvern krók og kima og fólk naut stundarinnar. Loks tókst okkur að finna lausan kima. Það var undir stiganum upp á loft og þangað dró hann mig á fjórum fótum inn í hornið undir stiganum. Þetta hlaut að vera eitt- hvað mjög alvarlegt. Þarna húktum við á hækjum okkar, hann leit flóttalega út úr horninu og sagði í hálfum hljóðum: Það tókst svo andsk... vel hjá þér að rífa úr mér tönnina í haust, ertu ekki til í að hreinsa á mér kjaftinn? Ég segi kannski síðar frá afrekum mín- um í dýralækningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.