Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 40

Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 40
40 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 V I Ð T A L „Í COVID-19 hafa múrar brotnað og fólk þorað að stíga út fyrir þægindarammann,“ segir Guðrún Ása Björnsdóttir og horfir til þess hvað tæknilausnir hafa fengið aukið brautargengi í heimsfaraldrinum. Þær Berglind Bergmann, sem tók við keflinu af henni sem formaður Félags almennra lækna (FAL), halda utan um málþingið Tækni í heilbrigðisþjónustu: Tæknilausnir og fjarlækningar, á fyrsta degi Læknadaga. „Læknar um allan heim hafa byrjað að nota tæknilausnir sem þeir gerðu ekki áður. Þeir hafa opnað hugann fyrir öðru vinnulagi, öðrum lausnum og samskipta- formi,“ segir Guðrún Ása. Þær segja alla meðvitaða um mikilvægi tækninnar en mörgum vaxi í augum að byrja enda ógrynni af upplýsingum alls staðar. Hlað- vörp, smáforrit, Twitter. Berglind segir margt í gangi sem hjálpi bæði læknum og sjúklingum. „Þessi aukna tækni og að nýta hana í heilbrigðisþjónust- unni er komin til að vera og getur hjálpað okkur.“ Um leið geti hún þvælst fyrir. Guðrún Ása tekur við og segir oft nóg til að drepa áhugann að vita ekki hvar eigi að byrja. „Við ætlum því að fara yfir það helsta,“ segir hún. Læknar þrói tæknina Þær segja mikilvægt að láta ekki þróun tækninnar alfarið í hendur annarra, held- ur eigi læknar að taka þátt í henni. „Við þurfum að vera þátttakendur en ekki standa á hliðarlínunni,“ segir Guðrún Ása. En hverjar eru áskoranirnar? Berglind nefnir að margir óttist að tæknin muni skaða samband læknis og sjúklings en aukin tæknivæðing geti hins vegar styrkt sambandið. „Samskipti lækna og sjúklinga hafa aðallega verið augliti til auglitis. Það er ákveðin áskorun í því. Sumir nota þessar röksemdir gegn aukinni tæknivæð- ingu.“ Hins vegar megi horfa öðrum aug- um á tæknina. Hún geti fært lækninn frá tölvunni og gefið honum meiri tíma með sjúklingnum. „Nýútskrifaður læknir talar um að hann sé mest fyrir framan tölvuna en ekki með sjúklingnum,“ segir hún. „Með tækn- inni getum við færst frá því að starf lækn- is sé helst nýtt í skráningar í að lækna,“ segir hún. „Ég er spennt fyrir þessu.“ Hún nefnir hættuna á kulnun við mikla skrán- ingarvinnu lækna. Þær nefna að margar lausnir hafi verið kynntar, eins og gervigreind, sem einnig hafi kallað fram ótta um að tæknin taki yfir hlutverk læknisins. „Ég held að það verði aldrei,“ segir Berglind. „Tæknin á að hjálpa okkur þótt við verðum að gæta að ýmsu, eins og öryggi. Við sýslum með mikilvægar persónulegar upplýsingar og þurfum að vera meðvituð um það.“ Lausnir sem bæta engu við Guðrún segir að með nýrri tækni þreifi fólk fyrir sér. „Það er hægt að vera með lausnir sem bæta engu við og ýta undir aukna vinnu og álag. Það er hins vegar mikilvægt að þær geri það ekki,“ segir hún. „Læknisfræðin er orðin svo flókin. Við þurfum að nýta tæknina til að ein- falda umhverfi okkar og kaupa okkur tíma. Lausnir geta meðal annars nýst til að safna upplýsingum og hjálpa okkur að vinna úr þeim.“ Röng notkun og hönnun virki fælandi, læknar hætti fljótt að treysta utanaðkomandi lausnum og fólk nýti sér þá ekki tæknina. Á málþinginu verða ýmsir angar og nýjungar tækninnar rædd og þar með að sjálfsögðu fjarlækningar. Berglind bendir á að fjarlækningar hafi verið borðleggjandi nú í COVID-19 af illri nauðsyn. „Það hefur verið skemmtilegt að fylgj- ast með því,“ segir hún. „Vel útfærðar fjar- lækningar eru nauðsyn fyrir strjábýlt og stórt land eins og Ísland. Það þarf því að opna umræðuna og tala meira saman um raunhæfar útfærslur.“ Guðrún segir tæknilausnir eiga heima alls staðar í kerfinu og Berglind nefnir að taki læknar ekki þátt í að þróa tæknina taki hún og sjúklingarnir framúr þeim. „Við þurfum að vita hvað er í gangi til þess að geta svarað spurningum fólksins sem býr orðið yfir mikilli þekkingu,“ segir hún. Tæknin færir lækna frá tölvunni til sjúklingsins Kófið hefur hjálpað læknum að yfirstíga ótta við tækninýjungar og nýta þær sér til hagsbóta. Læknarnir Guðrún Ása Björnsdóttir og Berglind Bergmann fara yfir það mikilvægasta þegar kemur að nýrri tækni í heilbrigðismálum á Læknadögum ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.