Læknablaðið - Jan 2021, Page 40
40 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
V I Ð T A L
„Í COVID-19 hafa múrar brotnað og fólk
þorað að stíga út fyrir þægindarammann,“
segir Guðrún Ása Björnsdóttir og horfir til
þess hvað tæknilausnir hafa fengið aukið
brautargengi í heimsfaraldrinum. Þær
Berglind Bergmann, sem tók við keflinu
af henni sem formaður Félags almennra
lækna (FAL), halda utan um málþingið
Tækni í heilbrigðisþjónustu: Tæknilausnir
og fjarlækningar, á fyrsta degi Læknadaga.
„Læknar um allan heim hafa byrjað
að nota tæknilausnir sem þeir gerðu ekki
áður. Þeir hafa opnað hugann fyrir öðru
vinnulagi, öðrum lausnum og samskipta-
formi,“ segir Guðrún Ása. Þær segja alla
meðvitaða um mikilvægi tækninnar en
mörgum vaxi í augum að byrja enda
ógrynni af upplýsingum alls staðar. Hlað-
vörp, smáforrit, Twitter.
Berglind segir margt í gangi sem hjálpi
bæði læknum og sjúklingum. „Þessi aukna
tækni og að nýta hana í heilbrigðisþjónust-
unni er komin til að vera og getur hjálpað
okkur.“ Um leið geti hún þvælst fyrir.
Guðrún Ása tekur við og segir oft nóg til
að drepa áhugann að vita ekki hvar eigi
að byrja. „Við ætlum því að fara yfir það
helsta,“ segir hún.
Læknar þrói tæknina
Þær segja mikilvægt að láta ekki þróun
tækninnar alfarið í hendur annarra, held-
ur eigi læknar að taka þátt í henni. „Við
þurfum að vera þátttakendur en ekki
standa á hliðarlínunni,“ segir Guðrún Ása.
En hverjar eru áskoranirnar? Berglind
nefnir að margir óttist að tæknin muni
skaða samband læknis og sjúklings en
aukin tæknivæðing geti hins vegar styrkt
sambandið. „Samskipti lækna og sjúklinga
hafa aðallega verið augliti til auglitis.
Það er ákveðin áskorun í því. Sumir nota
þessar röksemdir gegn aukinni tæknivæð-
ingu.“ Hins vegar megi horfa öðrum aug-
um á tæknina. Hún geti fært lækninn frá
tölvunni og gefið honum meiri tíma með
sjúklingnum.
„Nýútskrifaður læknir talar um að
hann sé mest fyrir framan tölvuna en ekki
með sjúklingnum,“ segir hún. „Með tækn-
inni getum við færst frá því að starf lækn-
is sé helst nýtt í skráningar í að lækna,“
segir hún. „Ég er spennt fyrir þessu.“ Hún
nefnir hættuna á kulnun við mikla skrán-
ingarvinnu lækna.
Þær nefna að margar lausnir hafi verið
kynntar, eins og gervigreind, sem einnig
hafi kallað fram ótta um að tæknin taki
yfir hlutverk læknisins.
„Ég held að það verði aldrei,“ segir
Berglind. „Tæknin á að hjálpa okkur
þótt við verðum að gæta að ýmsu, eins
og öryggi. Við sýslum með mikilvægar
persónulegar upplýsingar og þurfum að
vera meðvituð um það.“
Lausnir sem bæta engu við
Guðrún segir að með nýrri tækni þreifi
fólk fyrir sér. „Það er hægt að vera með
lausnir sem bæta engu við og ýta undir
aukna vinnu og álag. Það er hins vegar
mikilvægt að þær geri það ekki,“ segir
hún. „Læknisfræðin er orðin svo flókin.
Við þurfum að nýta tæknina til að ein-
falda umhverfi okkar og kaupa okkur
tíma. Lausnir geta meðal annars nýst til
að safna upplýsingum og hjálpa okkur að
vinna úr þeim.“ Röng notkun og hönnun
virki fælandi, læknar hætti fljótt að treysta
utanaðkomandi lausnum og fólk nýti sér
þá ekki tæknina.
Á málþinginu verða ýmsir angar og
nýjungar tækninnar rædd og þar með að
sjálfsögðu fjarlækningar. Berglind bendir
á að fjarlækningar hafi verið borðleggjandi
nú í COVID-19 af illri nauðsyn.
„Það hefur verið skemmtilegt að fylgj-
ast með því,“ segir hún. „Vel útfærðar fjar-
lækningar eru nauðsyn fyrir strjábýlt og
stórt land eins og Ísland. Það þarf því að
opna umræðuna og tala meira saman um
raunhæfar útfærslur.“
Guðrún segir tæknilausnir eiga heima
alls staðar í kerfinu og Berglind nefnir að
taki læknar ekki þátt í að þróa tæknina taki
hún og sjúklingarnir framúr þeim. „Við
þurfum að vita hvað er í gangi til þess að
geta svarað spurningum fólksins sem býr
orðið yfir mikilli þekkingu,“ segir hún.
Tæknin færir lækna frá
tölvunni til sjúklingsins
Kófið hefur hjálpað læknum að yfirstíga ótta við tækninýjungar og nýta þær sér til
hagsbóta. Læknarnir Guðrún Ása Björnsdóttir og Berglind Bergmann fara yfir það
mikilvægasta þegar kemur að nýrri tækni í heilbrigðismálum á Læknadögum
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir