Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 7
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 7
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Science and health care
system - the importance
of The Icelandic Medical
Journal
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
MD, PhD, clinical professor
Landspitali University Hospital
and Faculty of Medicine, Scool
of Health Sciences,
University of Iceland,
Senior consultant at
Laeknasetur Outpatient clinic.
Chief Editor of the Icelandic
Medical Journal
Helga Ágústa
Sigurjónsdóttir
sérfræðingur í lyflækning-
um og innkirtla- og efna-
skiptalækningum, klínískur
prófessor við Landspítala og
Háskóla Íslands.
Sérfræðilæknir Læknasetri.
Ritstjóri Læknablaðsins
Vísindi og heilbrigðiskerfið
– mikilvægi Læknablaðsins
„Vísindin efla alla dáð“ – er fyrsta línan úr ljóði Jónas-
ar Hallgrímssonar, Til herra Páls Gaimard. Ljóð sem
svo gjarnan er vitnað til. Svo satt, viðeigandi og
stenst tímans tönn. Ekki að ástæðulausu að einmitt
þessi lína ljóðsins stendur fyrir ofan hátíðasal Há-
skóla Íslands.
Vísindi eru hornsteinn Læknablaðsins, sem hefur
einnig staðist tímans tönn, lifað af ýmsar kreppur,
er orðið 106 ára og er eldra en Læknafélag Íslands.
Læknafélag Reykjavíkur var útgefandi blaðsins í
upphafi og kom fyrsta tölublaðið út í janúar 1915 og
hefur það síðan verið gefið út óslitið, með læknis-
fræðilegum greinum og viðtölum um heilbrigðismál.
Upphafsmaður blaðsins, Guðmundur Hannes-
son læknir, gaf út handskrifað blað með sama nafni
á Akureyri árin 1902-1904. Hann var fyrsti ritstjóri
Læknablaðsins allt til ársins 1921, lagði grunninn að
blaðinu og kom því í gegnum fyrstu árin með þraut-
seigju og atorku. Blaðið hefur frá upphafi haft áhrif
langt út fyrir raðir lækna og hefur á síðustu árum
tekið nútímalegum breytingum undir dyggri stjórn
fráfarandi ritstjóra, Magnúsar Gottfreðssonar. Hann
á þakkir skildar fyrir fagleg vinnubrögð og óeig-
ingjarnt starf fyrir blaðið og vísast til leiðara hans í
síðasta tölublaði Læknablaðsins 2020; 106: 565.
Það er því með miklu stolti sem ég tek við starfi
ritstjóra Læknablaðsins, fyrst kvenna, sem einnig er
merkilegt þegar svo langt er komið inn í 21. öldina
og íslenskir kvenlæknar hafa fyrir svo löngu stig-
ið merk skref í lækningum og vísindum. Kristín
Ólafsdóttir var fyrsta konan sem útskrifaðist frá
læknadeild Háskóla Íslands, 1917. Það er því við-
eigandi að hún prýði forsíðu fyrsta tölublaðsins í
minni ábyrgð. Fjöldi kvenna í læknadeild Háskóla
Íslands hefur frá útskrift hennar margfaldast og
árið 2020 voru konur 31 af 49 útskrifuðum lækna-
kandídötum frá deildinni. Á Læknadögum, sem
nú verður streymt í fyrsta sinn, verður Margrétar
Oddsdóttur skurðlæknis minnst með málþingi.
Merk kona sem tók þátt í að ryðja braut kvenna í
skurðlæknisfræði á Íslandi. Margrét Guðnadóttir
veirufræðingur var merkur vísindamaður, frábær
kennari og fyrsta konan sem skipuð var í embætti
prófessors við Háskóla Íslands, vorið 1969. Alma D.
Möller er fyrsta konan sem gegnir stöðu landlækn-
is á Íslandi. Þessar konur eru góð dæmi um fyrir-
myndir kvenlækna í læknisfræði, sem skilað hafa
mikilvægu læknastarfi og vísindarannsóknum. Á
21. öldinni halda konur áfram, samhliða og í sam-
vinnu við aðra kollega sína, að marka bjarta framtíð
læknisfræðinnar með vísindin að vopni.
Gott og öflugt heilbrigðiskerfi byggir á öflugu
vísindastarfi og yfirstandandi heimsfaraldur og sú
vísindavinna sem liggur að baki skjótri framleiðslu
nýs bóluefnis gegn áður óþekktri veiru undirstrikar
þetta vel. Það er öllum ljóst að heilbrigðiskerfi verður
ekki rekið án dyggs stuðnings við vísindarannsókn-
ir. Aukið fé til vísinda rannsókna í heilbrigðisvísind-
um þarf að vera forgangsverkefni á Íslandi, landi sem
gjarnan vill bera sig saman við nágrannaþjóðir sem
veita umtalsvert meira fé til vísindarannsókna en
Ísland. Yfirstandandi heimsfaraldur ætti að styrkja
hlut vísindanna við ákvarðana töku um fjárveitingar
frá alþingi og Læknablaðið gegnir veigamiklu hlut-
verki við miðlun vísindanna um ókomna framtíð.
Við þessi áramót bjóðum við velkomna fjóra nýja
félaga í ritstjórn og nýr tölfræðingur kemur til starfa.
Hulda Einarsdóttir skurðlæknir hefur hafið störf
við Landspítala eftir nokkurra ára starf sem sér-
fræðingur við háskólasjúkrahúsið í Yale í Connect-
icut í Bandaríkjunum og starfar nú við Landspítala.
Hulda var ritstjóri Læknanemans 1997-1998 og hefur
skrifað greinar í innlend sem erlend læknatímarit,
birt ágrip, verið ritrýnir og spurningahöfundur fyr-
ir endur- og viðhaldsmenntunarprógramm ASCRS,
CARSEP. Ólaf ur Sveinsson lyflæknir, tauga læknir
og heimspekingur lauk meistaraprófi (MSc) frá
læknadeild Háskóla Íslands 2007 og heimspekideild
(MA) 2009 og síðan doktorsprófi frá Karolinska
institutet, Stokkhólmi, 2020. Hann hefur birt fjölda
greina í erlendum tímaritum sem
og Læknablaðinu. Hann starfar nú
á Landspítala og rekur samhliða
því eigin læknastofu í Lækna-
setri. Theodór Skúli Friðriksson
svæfinga- og gjörgæslulæknir á
Landspítala starfaði til nokkurra
ára sem sérfræðingur við Há-
skólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð
og varði þar doktorsritgerð sína
2020. Hann hefur birt fjölda greina
í erlendum tímaritum. Berglind Jónsdóttir barnainn-
kirtlalæknir starfaði sem sérfræðingur til nokkurra
ára við Skåne-háskólasjúkrahúsið eftir sérfræðinám í
Lundi. Hún varði doktorsritgerð sína í Lundi 2017 og
hefur birt fjölda greina í erlendum tímaritum og er
í alþjóðavísindasamstarfi. Við þökkum einnig Thor
Aspelund sem hefur verið tölfræðingur blaðsins til
fjölda ára og bjóðum velkomna Sigrúnu Helgu Lund
sem tekur nú við því starfi. Hún lauk BS-prófi í töl-
fræði frá Háskóla Íslands 2004 og doktorsprófi í töl-
fræði 2014. Hún starfaði við læknadeild frá 2013 og
fékk prófessorsstöðu 2018 og er nú tölfræðingur hjá
Íslenskri erfðagreiningu.
Mikil eftirvænting fylgir nýja árinu, ekki síst með
tilkomu nýs bóluefnis sem vonandi breytir lífi okkar
allra aftur til eðlilegra horfs. Megi nýtt ár verða okk-
ur öllum gleðilegt og farsælt.
Lengi lifi Læknablaðið! Með tilvitnun í fyrrnefnt ljóð
um mikilvægi vísindanna: „farsældum vefja lýð og láð.“
doi 10.17992/lbl.2021.01.613
Það er því með miklu stolti sem ég
tek við starfi ritstjóra Læknablaðsins
fyrst kvenna, sem einnig er merkilegt
þegar svo langt er komið inn í
21. öldina og íslenskir kvenlæknar
fyrir svo löngu stigið merk skref í
lækningum og vísindum.
helgaags@landspitali.is