Læknablaðið - jan. 2021, Blaðsíða 24
24 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
Tíðatengt loftbrjóst vegna
endómetríósu í lunga
Sjúkratilfelli
Á G R I P
Endómetríósa getur verið langvinn orsök verkja, blæðingaóreglu og
ófrjósemi meðal kvenna. Sjúkdómurinn er vanalega í grindarholi, en
getur birst á óvenjulegum stöðum. Hér er lýst tilfelli 39 ára konu með
gamla endómetríósugreiningu sem leitaði á heilsugæslu og sjúkrahús
í þrígang á öðrum degi blæðinga vegna andþyngsla, takverks og mæði.
Myndgreining sýndi loftbrjóst hægra megin í öll skiptin. Við brjósthols-
speglun voru endómetríósu-líkir blettir á yfirborði hægra lunga. Vefja-
greining sýndi merki um endómetríósu. Konan hefur verið einkenna-
laus eftir kemíska fleiðruertingu og hormónameðferð.
Greining tíðatengds loftbrjósts þarf að byggjast á samhliða brjóst-
hols- og kviðarholsspeglun með vefjasýnatöku til að fá staðfestingu á
sjúkdómnum og tryggja grundvöll meðferðar.
Ásdís Kristjánsdóttir1 læknanemi
Gunnar Mýrdal2 læknir
Margrét Sigurðardóttir3 læknir
Reynir Tómas Geirsson4 læknir, próf. em.
✝ Gunnar Mýrdal Einarsson, læknir, lést 10. september 2020.
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2skurðlækningar, aðgerðasviði Landspítala,
3rannsóknastofu í meinafræði, rannsóknasviði Landspítala, 4kvennadeild, aðgerðasviði
Landspítala.
Fyrirspurnum svarar Ásdís Kristjánsdóttir, ask41@hi.is
Inngangur
Loftbrjóst getur átt sér margvíslegar orsakir, svo sem áverka, slys,
sýkingar og undirliggjandi lungnasjúkdóma, en getur komið til án
augljósrar skýringar.1 Minna þekkt er að endómetríósa (endometri-
osis, íslenskt samheiti: legslímuflakk) á yfirborði eða í vefjum
lungna getur valdið endurteknu loftbrjósti hjá konum á frjósemis-
aldri.2,3 Þetta er ástand sem oft er litið framhjá og vill gleymast við
bráðaaðstæður.
Endómetríósa eða legslímuflakk er kvensjúkdómur með al-
gengi sem gæti náð til 1-3% kvenna,4,5 en er stundum sagt vera til
staðar hjá allt að tíundu hverri konu á einhverjum tíma frjósemis-
skeiðsins, þó líklega sé það ofmat.2,5 Samsetning legslímukirtilvefs
og uppistöðuvefs fyrir utan leg skilgreinir endómetríósu, en bólga
þarf einnig að vera til staðar.5 Að ná fullnægjandi vefjasýni getur
verið vandkvæðum háð. Algengt er að sjúkdómurinn sé greindur
án staðfestingar með vefjasýni og klínísk greining með og án kvið-
arholsspeglunar er látin duga.4,5
Einkennin eru tengd tíðablæðingum, þó þau geti líka orðið
Höfundar fengu samþykki sjúklings fyrir þessari umfjöllun og birtingu.
að stöðugri vanlíðan. Þekkja þarf til mismunandi birtingarforma
endómetríósu og muna eftir sjúkdómnum í þeim mörgu geirum
læknisfræðinnar þar sem bráðum veikindum kvenna er sinnt.
Loftbrjóst af völdum endómetríósu hefur verið tilefni nokkurs
fjölda fræðigreina. Einu íslensku tilviki hefur verið lýst svo vitað
sé, í ráðstefnuágripi árið 2007. Ekki var hægt að sýna með vissu
fram á endómetríósu í lunganu, en einkenni voru hins vegar
dæmigerð.6
Við loftbrjóst getur orðið brátt og misalvarlegt, stundum
hættulegt, ástand vegna rofs á yfirborði lungans. Innöndunar-
loft kemst þá inn í fleiðruholið og leiðir til samfalls á lunganu.1,2
Endómetríósan er jafnan staðsett utarlega í lungnavefnum og rétt
undir fleiðrunni (pleura), og leiðir til bólguertingar og vefjahnúða.2
Brjóstholsverkir samfara tíðablæðingum verða vegna blæðinga í
lungnavefinn og inn í fleiðruholið. Þetta form endómetríósu
er gjarnan kallað catamenial (= tíðatengt) loftbrjóst (catamenial
pneumothorax), en er líka nefnt heilkenni legslímuflakks í lungum
✝