Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2021, Síða 9

Læknablaðið - jan. 2021, Síða 9
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 9 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Ólafur Helgi Samúelsson sérfræðingur í lyf- og öldrunarlækningum, Landspítala og hjúkrunarheimilinu Eir olafs@landspitali.is Langlífi og heilbrigðisþjónusta Ólafur Helgi Samúelsson MD Spec. Internal Medicine and Geriatrics, Landspitali University Hospital Reykjavik Iceland and Eir Nursing home Okkur hættir til að skilgreina ákveðinn aldurshóp sem fyrst og fremst þjónustuþega en eldra fólk hefur eins og aðrir borgarar ólíka getu og þarfir og geta lagt til samfélagsins á margan hátt. doi 10.17992/lbl.2021.01.614 Með auknu langlífi stendur mannkynið frammi fyrir mestu breytingu á samsetningu þjóðfélaga í sögu sinni. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO hef- ur undanfarin ár undirbúið fjölþætt verkefni sem nefnist Áratugur heilbrigðrar öldrunar 2020-2030. Átakið er hugsað sem tækifæri til að efla samvinnu stjórnvalda, alþjóðlegra stofnana, fagfólks, vísinda- samfélags, fjölmiðla, einkafyrirtækja og borgara til að móta hugmyndir og leiðir til að bæta tilveru aldr- aðra, fjölskyldna þeirra og samfélaga þar sem þeir búa. Ennfremur sem átak til hugarfarsbreytinga, meðal annars til að vinna á útbreiddum aldursfor- dómum. Þarna kennir ýmissa gagnlegra grasa.1 Fjöldi 70 ára og eldri Íslendinga mun varlega áætl- að tvöfaldast á næstu 30 árum og þau verða fjórð- ungur þjóðarinnar. Til að mæta þessu þarf nýjar áherslur og viðhorfsbreytingu. Ein birtingarmynd of einfaldrar sýnar á heilbrigðisþjónustu við aldraða er áratuga reglubundið ákall um að leysa útskriftar- vanda Landspítala með bráðabirgða plássum í bið eft- ir hjúkrunarrými. Ævinlega er talað um tímabundið neyðarástand. Þessi lausn er löngu gjaldþrota og minnir á sífellt hærri yfirdrátt á bankareikningi. Að- ferðin hefur skilað vaxandi fjölda eldri einstaklinga í rýmum sem ekki uppfylla skilyrði um aðstöðu eða þjónustu. Óskandi væri að ríki, sveitarfélög, félaga- samtök og einkaframtak gætu sameinast í meira mæli um aðrar skapandi hugmyndir. Mikilvægt verkefni er að seinka færniskerðingu. Vitundaraukning um mikilvægi hreyfingar, fé- lagslegra tengsla og heilbrigðra lífshátta, jafnvel í elstu aldurshópum, er grunnur að betri lýðheilsu.2 Heilsufar eldra fólks einkennist oft af langvinnum og samverkandi flóknum vandamálum. Heilbrigð- iskerfi sem mæta þessu á samþættan og heildræn- an hátt eru skilvirkari en kerfi sem fyrst og fremst bregðast við einstaka sjúkdómsmiðuðum uppákom- um. Vaxandi þörf verður fyrir menntun sérhæfðs starfskrafts. Auka þarf möguleika til endurhæfingar eftir heilsufarsáföll og sjúkrahúsdvöl. Þessi starf- semi getur verið á ýmsum stigum en þarf að upp- fylla skilyrði um þekkingu og þjónustu. Heimaþjón- ustu með áherslu á teymisvinnu og fyrirbyggjandi vinnubrögð þarf að efla. Reglubundin skimun og mat atriða eins og færni, geðeinkenna, vitrænnar getu, næringar og lyfjameðferðar auka möguleika á inngripum áður en í óefni er komið. Lykilaðilar hér væru heilsugæsla og heimaþjónusta með greiðan aðgang að sérhæfðum göngudeildum og sérfræðing- um. Þetta dregur úr þörf á þjónustu bráðadeilda og seinkar hjúkrunarheimilisþörf. Á 21. öldinni þarf að þróa kerfi langtímaumönn- unar sem er fjölbreytt og fagleg og þar sem viðeig- andi þjónusta er veitt heima eða á stofnunum eftir þörfum einstaklinga. Hjúkrunarheimili geta gegnt fjölbreyttu hlutverki með endurhæfingu og hvíldar- innlögnum auk heimilishlutverks. Þau þurfa faglega að ráða við flókin tilfelli, meðan annars vitræna skerðingu með hegðunartruflunum, eftirlit og með- ferð bráðra og langvinnra sjúkdóma, reglubundna yfirferð lyfjameðferðar og aðstöðu til að veita líkn- andi og lífslokameðferð. Slíkt dregur úr óviðeigandi og stundum skaðlegri notkun bráðaþjónustu við- kvæms hóps. Fjármögnun, fagleg mönnun og kröf- ur um þjónustu þurfa að vera í samræmi við þetta. Yfirstandandi heimsfaraldur hefur víða dregið mik- ilvægi þessa fram í dagsljósið.3 Nútímasjúkrahús þarf að taka tillit til þarfa vax- andi hóps fjölveikra skjólstæðinga og haga þjónustu sinni og umhverfi þannig að dragi úr skaðlegum áhrifum sjúkrahúsdvalar og bráðra veikinda. Skipu- leggjendur starfsemi nýs Landspítala mættu hafa slíkar áherslur í huga. Aldrei á æviskeiði er meiri munur milli einstak- linga en á efri árum og í raun enginn dæmigerður aldraður. Þessi breytileiki er ekki tilviljanakenndur heldur háður fé- lagslegum og efnahagslegum þátt- um, lífsstíl, kyni og fleiru. Okkur hættir til að skilgreina ákveðinn aldurshóp sem fyrst og fremst þjónustuþega en eldra fólk hefur eins og aðrir borgarar ólíka getu og þarfir og getur lagt til samfé- lagsins á margan hátt. Eðlilegt er að hlutverk breytist eftir æviskeiðum en þörf fyrir tilgang og bestu mögulega heilsu er ekki aldursháð. Ef færni og heilsa eru góð, fylgja ótal tækifæri með auknu langlífi. Ef efri ár einkennast fyrst og fremst af hraðri afturför eru áhrif langlífis neikvæð fyrir einstakling og samfélag. Íslendingar sem nú eru um eða yfir miðjum aldri eiga tækifæri til að hafa mótandi áhrif á samfélag nánustu framtíðar. Áhugavert væri að ímynda sér hóp aldraðra næstu 20 til 30 ára. Í þeim flokki gætu reynst kunnugleg andlit. Hvernig samfélag og heil- brigðisþjónusta viljum við að mæti þeim? Longevity and Health Care Services Heimildir 1. who.int/initiatives/decade-of-healthy-ageing - desember 2020. 2. Gudlaugsson J, Aspelund Th, Guðnason V, et al. Áhrif 6 mánaða þjálfunar á hreyfigetu, vöðvakraft, þol og líkamsþyngdarstuðul eldri einstaklinga - Eru áhrif þjálfunar sambærileg hjá konum og körlum? Læknablaðið 2013; 99: 331-7. 3. O´Neill D, Briggs R, Holmerovå, et al. COVID-19 highlights the need for universal adoption of standards of medical care for physicians in nursing homes in Europe. Eur Geriatr Med 2020; 11: 645-50. Nánari upplýsingar veitir Júlíus Arnarson Netfang: julius@fastus.is Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Í GÓÐU JAFNVÆGI MEÐ WELLION CALLA Einfaldur blóðsykursmælir ætlaður fólki með sykursýki 2 Wellion Calla blóðsykursmælir + 2 strimlabox TILBOÐSVERÐ: 8.900 kr

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.