Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 3. tbl. 23. árg. 15. janúar 2020 - kr. 950 í lausasölu
• 2 STÓ
RAR P
IZZUR
AF M
ATSEÐ
LI
• 2 ME
ÐLÆT
I AÐ E
IGIN V
ALI
• 2 SÓS
UR AÐ
EIGIN
VALI
• 2 L G
OS
AÐEIN
S 5.99
0 KR.
Þrír bankar
í Arion appinu
arionbanki.is
Við opnum Arion appið og bjóðum Landsbankann og Íslandsbanka velkomna.
Nú getur þú skoðað alla reikninga og kort í íslenskum bönkum í appinu.
Opin og þægileg bankaþjónusta fyrir alla.
Icelandic
Hot Dog combo
Pylsu
tilboð
549 kr.
Tilboðið gildir út janúar 2020
Pylsa og pepsi/pepsi max
1/2 l í plasti
sími 437-1600
Nýtt á Sögulofti
Landnámsseturs
Öxin – Agnes og Friðrik
sunnudaginn 12. janúar kl. 14:00
frumsýning
Næstu sýningar
laugardaginn 18. janúar kl. 20:00
sunnudaginn 26. janúar kl. 16:00
miðasala á landnam.is/vidburdir
eða á landnam@landnam.is
UPPSELT
Veðrið hefur ekki beint leikið við Vestlendinga upp á síðkastið. Hafa björgunar-
sveitir og viðbragðsaðilar haft í nægu að snúast sökum veðurs undanfarna viku.
Lesa má um slík verkefni á nokkrum stöðum í blaðinu í dag, m.a. á bls. 13.
Á meðfylgjandi mynd eru félagar í Björgunarsveitinni Berserkjum að festa bát
sem losnaði frá bryggju í Stykkishólmi síðastliðinn miðvikudagsmorgun.
Ljósm. sá.
Síðastliðinn föstudag samþykkti
sveitarstjórn Borgarbyggðar sam-
hljóða viljayfirlýsingu á milli sveit-
arfélagsins annars vegar og þriggja
verktakafyrirtækja í Borgarbyggð
hins vegar um að fara í samstarf
um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í
Bjargslandi í Borgarnesi. Í kjölfarið
verður farið í að útfæra nánara sam-
komulag á milli aðila um útfærslu
á samstarfinu. Um er að ræða heilt
íbúðahverfi með fjölbýlis,- par- og
raðhúsum. Í fyrsta áfanga verða
byggð fjölbýlishús. Að sögn Óskars
Sigvaldasonar, framkvæmdastjóra
Borgarverks, verður sá möguleiki
opinn að fleiri byggingaraðilar geti
fengið úthlutað lóðum innan þessa
verkefnis.
Fyrirtækin þrjú sem um ræðir eru
Steypustöðin/Loftorka, Borgarverk
og Eiríkur J. Ingólfsson. Öll eiga
þessi fyrirtæki það sameiginlegt að
vera rótgróin og traust fyrirtæki
í Borgarnesi. Lilja Björg Ágústs-
dóttir, starfandi sveitarstjóri Borg-
arbyggðar, segir að töluverðu hafi
verið úthlutað af lóðum í Borgar-
byggð síðasta árið, enda hafi sveit-
arfélagið veitt afslátt af gatnagerð-
argjöldum. „Þrátt fyrir það hafa fáir
enn sem komið er farið af stað með
byggingaframkvæmdir. Þetta verk-
efni er viðleitni til þess að hvetja til
framkvæmda og frekari uppbygg-
ingar á svæðinu,“ segir Lilja Björg
í samtali við Skessuhorn. Hún seg-
ir að sveitarfélagið hafi einnig látið
á síðasta ári vinna húsnæðisáætlun
sem leitt hafi í ljós að skortur sé á
litlu og meðalstóru húsnæði í sveit-
arfélaginu. „Leita þarf leiða til að
auka framboð. Þetta samstarf við
fyrirtækin þrjú gengur í grófum
dráttum út á að verktakarnir munu
sjá um uppbyggingu á ákveðnu
svæði þar sem undir eru fjölbýlis-
hús, raðhús og einbýlishús,“ segir
Lilja Björg. Vinna þarf deiliskipu-
lagsbreytingu vegna fyrirhugaðs
byggingarsvæðis, en fyrirhugað er
að framkvæmdir hefjist á þessu ári.
mm
Viljayfirlýsing um samstarf í uppbyggingu í Bjargslandi
Sveitarstjóri, fulltrúar byggðarráðs og fyrirtækjanna þriggja sem nú hyggjast taka
höndum saman um samstarf við byggingu nýs hverfis í Bjargslandi í Borgarnesi.
Ljósm. Borgarbyggð.