Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 2020 7
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa um 600 manns
með fjöl breytta menntun og bakgrunn. Norðurál vill stuðla að jöfnu hlutfalli karla og
kvenna innan fyrirtækisins og jöfnum tækifærum til starfsþróunar.
Við leitum að metnaðarfullu fólki í fjölbreytt og eftirsótt
sumarstörf í álverinu á Grundartanga. Í boði eru
störf af ýmsu tagi við framleiðslu, raf- og vélvirkjun
og fleira. Öll störfin henta jafnt körlum og konum.
Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt
og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda.
Árangurstengd laun sumarfólks í vaktavinnu eru um 600.000 krónur á
mánuði fyrir fullt starf. Starfsfólki bjóðast ferðir frá Akranesi, Borgarnesi
og af höfuðborgarsvæðinu.
Sumarstarfsmenn í framleiðslu- og iðnstörfum fara á námskeið vegna
vinnuvélaréttinda. Umsóknir og upplýsingar eru á www.nordural.is og
í síma 430 1000. Öllum umsóknum verður svarað og trúnaði heitið.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Spennandi
sumarstörf
18 ára lágmarksaldur
Dugnaður og sjálfstæði
Bílpróf er skilyrði
Mikil öryggisvitund og árvekni
Heiðarleiki og stundvísi
Góð samskiptahæfni
2019
Jafnlauna úttekt
PwC 2019
Equal pay
management
system
ÍST
85:2012
Quality
Management
ISO
9001
Enviromental
Management
ISO
14001
Occupational
Health and Safety
Management
OHSAS
18001
EQ 698802 FM 582893 EMS 596661 OHS 596662
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Þaktúður•
Hurðastál•
Áfellur•
Sérsmíði•
Viðgerðir•
Málmsuða•
www.blikkgh.is • blikkgh@blikkgh.is • Akursbraut 11b • 431-2288
Ákvæði um keðjuábyrgð sem
sporna á við mögulegri misnotkun
á vinnuafli hér á landi hefur verið
innleitt í lög um opinber innkaup,
en það er þáttur í aðgerðum stjórn-
valda til að vinna gegn félagslegum
undirboðum og brotum á vinnu-
markaði. Jafnframt hafa verið unn-
ar leiðbeiningar þar sem fjallað er
um keðjuábyrgð og hvernig verk-
takar og opinberir aðilar geti upp-
fyllt lagalegar skyldur sem stuðla að
ábyrgum vinnumarkaði á Íslandi.
Hið nýja ákvæði laganna um keð-
juábyrgð á einnig að koma í veg
fyrir undirboð og óeðlilega sam-
keppnishætti á vinnumarkaði. Keð-
juábyrgðin snýr að verklegum fram-
kvæmdum. Hún felur í sér að aðal-
verktaka er gert skylt að tryggja og
bera ábyrgð á að allir starfsmenn,
hvort sem um ræðir starfsmenn
hans, undirverktaka eða starfs-
mannaleigna, sem koma að fram-
kvæmd samnings fái laun, starfs-
kjör, sjúkra- og slysatryggingar og
önnur réttindi í samræmi við gild-
andi kjarasamninga og lög hverju
sinni.
nú ber opinberum aðila sem
kaupanda skylda til að gera grein
fyrir ábyrgð aðalverktaka í útboðs-
gögnum. Honum er einnig heim-
ilt, að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum, að greiða vangoldnar verk-
takagreiðslur til undirverktaka og
annarra starfsmanna, sem svara til
launatengdra greiðslna, á kostn-
að aðalverktaka, standi hann ekki í
skilum með greiðslur. mm
Byggingarframkvæmdir í Borgarnesi.
Ljósm. úr safni, tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Lög um keðjuábyrgð
hafa tekið gildi