Skessuhorn


Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 2020 25 Sunnudaginn 12. janúar síðastlið- inn voru rétt 40 ár frá því stofnað var til félagsmiðstöðvarinnar Arn- ardals á Akranesi, en starfsemin heyrir í dag undir Frístundamið- stöðina Þorpið. Afmælisins verður minnst með ýmsum viðburðum allt þetta ár. Á heimasíðu Þorpsins er farið létt yfir söguna. Þar segir m.a. að í 28 ár og tuttugu daga hafi Arnar- dalur rekið félagsmiðstöð unglinga við Kirkjubraut 48. Húsið var upp- haflega byggt af Ingimar Magnús- syni trésmið og bjó hann á efri hæð hússins með fjölskyldu sinni á ár- unum 1925-1936 en á neðri hæð- inni var rekið trésmíðaverkstæði. Árið 1936 keypti svo Ytri-Akra- neshreppur, nú Akraneskaupstað- ur, húsið undir rekstur elliheimil- is. Þetta átti að verða bráðabirgða- lausn en svo fór að í húsinu var rek- ið elliheimili næstu 40 árin. Félags- miðstöðin Arnardalur hóf svo starf- semi í húsinu 12. janúar 1980 þegar Dvalarheimilið Höfði hafði leyst elliheimilið í Arnardal af hólmi. „Ef maður er dramatískur þá getur maður sagt að það hafi kostað blóð svita og tár að koma því í gegn að fá Arnardal á sínum tíma undir starfsemi fyrir unglinga. nokkrum sinnum var tillagan felld í bæjar- stjórn en menn voru ekki á því að gefast upp. Þessi barátta fyrir rúm- um 40 árum skipaði Akranesi í hóp með þeim fyrstu utan Reykjavíkur að opna félagsmiðstöð af þessu tagi. Unglingarnir fengu að vera með frá upphafi, m.a. með vinnufram- lagi. Veggir voru rifnir niður og öll sú vinna fór fram í sjálfboðavinnu af unglingum og nefndarmönnum í æskulýðsnefnd. Á meðan upp- byggingu stóð tókst alla tíð að halda verkinu innan fjárhagsáætl- unar meðal annars vegna þess hve margir voru virkir í að vinna verk í sjálfboðavinnu. Húsnefnd, skipuð unglingum var kosin strax í upphafi starfseminnar og allar götur síðan hefur einhvers konar unglingaráð verið virkt í starfseminni,“ segir um sögu Arnardals á síðu Þorpsins. Arnardalur óx og dafnaði og eins og áður hefur verið nefnt flutti starfsemin í Þorpið, Þjóð- braut 13 í janúar 2008, fyrir rétt- um tólf árum. Í frétt í Skessuhorni það sama ár kemur fram að Arn- ardalur hafi verið opinn í síðasta sinn á gamla staðnum föstudaginn 25. janúar og voru nokkrar með- fylgjandi mynda teknar við það til- efni. Þá segir á síðu Þorpsins: „Í starfi Arnardals er unnið út frá hug- myndafræði sem byggir á barna- og ungmennalýðræði og tryggir áhrif barna og ungmenna í starfi. Áhersla er lögð á samvinnu, virð- ingu, reynslunám, félagsfærni, sjálfstyrkingu, samfélagslega virkni og þátttöku. Síðast en ekki síst er verið að vinna að forvörnum og skýr afstaða tekin gegn neyslu vímuefna og annarri neikvæðri hegðun. Félagsmiðstöðvar eru vettvangur þar sem ungt fólk fær tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri og í framkvæmd, vinna að áhugamálum sínum og fást við skemmtileg verkefni.“ nú er dagsstarf Arnardals í gangi alla virka daga milli klukk- an 13.00 og 16.00. Auk þess er opið þriðjudags, og miðvikudags- og föstudagskvöldum kl. 19.30 - 22.00. Í Arnardal er sömuleið- is klúbbastarf og geta klúbbarnir starfað bæði innan sem utan hefð- bundins opnunartíma. mm Háskólaráð samþykkti á fundi sín- um á fimmtudaginn að tilnefna Jón Atla Benediktsson, prófess- or í rafmagns- og tölvuverkfræði, í embætti rektors Háskóla Íslands til næstu fimm ára. Jón Atli hefur gegnt embættinu frá árinu 2015. Embætti rektors Háskóla Íslands var auglýst laust til umsóknar í des- ember og rann umsóknarfrestur út 3. janúar sl. Ein umsókn barst um embættið, frá Jóni Atla Benedikts- syni. Sérstök undirnefnd háskólaráðs metur hvort umsækjendur um starf rektors uppfylli sett skilyrði um embættisgengi. Háskólaráð ákvað á fundi sínum í dag að rita mennta- og menningarmálaráðherra bréf og tilnefna Jón Atla Benediktsson sem rektor Háskóla Íslands fyrir tíma- bilið 1. júlí 2020 til 30. júní 2025. mm Mannamót Markaðsstofa landshlut- anna í ferðaþjónustu verður haldið í Kórnum í Kópavogi á morgun, fimmtudaginn 16. janúar frá klukk- an 12-17. Öll pláss fyrir sýnendur á Mannamóti hafa verið seld, en 270 pláss voru í boði. Ásóknin sýnir hversu mikilvægur viðburður þetta er fyrir íslenska ferðaþjónustu. mm Mannamót á morgun Jón Atli áfram rektor HÍ Meðfylgjandi myndir voru teknar föstudaginn 25. janúar 2008, þegar Arnardalur var opinn í síðasta skipti við Kirkjubraut 28. Ljósm. úr safni Skessuhorns/sók. Félagsmiðstöðin Arnardalur á Akranesi fjörutíu ára Félagsmiðstöðin Arnardalur var til húsa við Kirkjubraut 48 í 28 ár, en 2008 var starfsemin flutt að Þjóðbraut 13. Húsið á nú listakonan Kolbrún Kjarval.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.