Skessuhorn


Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 2020 17 „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á mat og eldmamennsku en ég var aldrei að pæla í að læra kokkinn,“ segir tvítugi Skagamaðurinn Anton Elí Ingason en um þessar mundir er hann að undirbúa sig fyrir Ól- ympíukeppni í matreiðslu sem fram fer á Indlandi í lok þessa mán- aðar. Anton er fæddur og uppalinn á Akranesi og hefur hvergi annars staðar búið. Hann gekk í Brekku- bæjarskóla og fór svo í kokkanám í lok ársins 2015 á veitingastaðnum Galito á Akranesi. „Það var vinur minn, Ari Jónsson, sem sagði mér að skoða kokkanámið því það væri algjör snilld. Hann sagði mér frá skipulagi námsins og mér fannst það bara hljóma vel, en maður er bara að vinna á veitingastað í tvö og hálft ár, á launum, og lærir helling. Svo eru þetta þrjár annir í skóla,“ segir Anton. Snyrtimennska skiptir miklu máli Á Gatlito segist Anton hafa fengið mjög góðan grunn fyrir áframhald- andi nám. „Ég myndi segja að Ga- lito væri alveg frábær veitingastað- ur til að byrja á, maður fær varla betri grunn. Þar er sushi, veislu- þjónusta, hádegismatur með rétti dagsins, hefðbundinn matseðill og í raun bara allt. Ég er mjög sáttur við að hafa byrjað þar en ég vildi svo fara meira út í fínni matargerð, sem ég hef meiri áhuga á,“ segir Anton sem fór næst að starfa á veit- ingastaðnum nostra í Reykjavík og nú vinnur hann hjá nomy veislu- þjónustu. Anton leggur af stað til Indlands 27. janúar næstkomandi. Í fyrstu umferð keppninnar þarf hann að úrbeina kjúkling og gera úr honum fjóra skammta af kjúklinga- rétti. „Ég hef frjálsar hendur með hvað ég geri en mér er skammtað hráefni. Þegar ég ákveð hvað ég ætla að elda horfi ég fyrst í hverj- ir eru að dæma því ég vil að mat- urinn höfði til þeirra,“ segir Anton og bætir því við að maturinn sjálf- ur sé þó ekki það eina sem skipti máli. „Langflest stigin eru gefin fyrir snyrtimennsku í eldhúsinu. Ef ég get verið ótrúlega snyrtileg- ur og unnið í raun bara eins og vél- menni og geri góðan mat ætti mér að ganga mjög vel,“ segir hann. „Ég hef tekið þátt í Bocuse d´Or keppni, sem er stærsta matreiðslu- keppni í heimi, þar sem ég var að aðstoða Bjarna Siguróla Jakobs- son matreiðslumeistara sem var að keppa. Þar var mikið lagt upp úr að vera snyrtilegur í eldhúsinu svo ég ætti alveg að kunna það og fá góð stig þar.“ Opnar matarvagn Aðspurður segist Anton sjálfur vera hrifnastur af því að elda villi- bráð og matreiða úr því sem finnst í nærumhverfinu. „Það er svo gam- an að tína kannski kóngasveppi í Skorradal og elda eitthvað úr þeim og villibráð eða eitthvað svona nor- dic. Ég elska líka að elda fisk. Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu lítinn eldunartíma fiskur þarf en hann þarf kannski bara sjö mínút- ur í ofni á meðan flestar uppskrift- ir segja 20 mínútur. Það er lúmskt að geta eldað fisk alveg rétt,“ segir Anton. En hvað ætlar hann að gera þegar hann kemur heim frá Ind- landi? „Ég er að fara að opna mat- arvagn með Ara vini mínum. Við ætlum að vera með svona djúsí og góðan street food,“ svarar Anton og brosir. „Við fundum vagn á fínu verði með rekstrarleyfi og pláss og aðstöðu í Kolaportinu. Við ætlum því að vera með vagninn þar þegar það er lítið að gera en svo er ætl- unin að fara með vagninn á útihá- tíðar,“ segir Anton og bætir því við að þeir ætli að bjóða upp á einfalda kóngasveppasúpu, vöfflu með rifnu kjúklingakjöti og góðri kjúklinga- sósu og eitthvað fleira einfalt og gott. Auk kokkastarfana er Anton í hljómsveitinni E.c sem er að gefa út nýtt lag næsta föstudag, lagið Free, sem Anton segir að lofi mjög góðu. arg Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir er fædd og uppalin í Borgarnesi og flutti aftur í heimahagana síðastlið- ið haust. Rakel Dögg er við það að opna nýtt heilsueflingarsetur und- ir nafninu Stoð & Styrkur á B59. Hún er dóttir Sigurgeirs Erlends- sonar og Önnubellu Albertsdóttur sem reka Geirabakarí í Borgarnesi, en þar hitti blaðamaður Skessu- horns einmitt Rakel að máli og ræddi við hana um nýja heilsusetr- ið. Rakel lauk sjúkraþjálfaranámi í Danmörku árið 2007 og hefur síð- an þá bætt við sig ýmissi sérþekk- ingu, þar á meðal í kvenheilsu, meðgöngu, nálastungum, bak- og verkjameðferðum, íþróttasjúkra- þjálfun og stoðkerfis-, hreyfi- og göngugreiningu. Hún hefur lokið jógakennaranámi, er flotþerapisti og nuddari og er með sérþekkingu í ráðgjöf við val á spelkum, hjálpar- tækjum og stuðningsvörum. Starfar utan Sjúkra­ trygginga Íslands Rakel Dögg bjó í tólf ár í Hafnar- firði og vann í tæp átta ár hjá Ás- megin sjúkraþjálfun áður en hún fór að vinna hjá Eirberg í um tvö ár. Hún hefur unnið sem sjúkraþjálfari á einkastofu, sjúkrahúsi og hjúkr- unarheimili og hefur þannig öðl- ast víðtæka reynslu í faginu. Rak- el ákvað nú að opna eigin stofu og starfa utan Sjúkratrygginga Íslands. „Mig langar að starfa meira fyrir- byggjandi og leggja meiri ábyrgð á þá sem leita til mín, veita stuðn- ing og aðhald að breyttum lífsstíl til framtíðarheilsu. Sjúkraþjálfur- um eru settar ákveðnar skorður af Sjúkratryggingum Íslands og það er mín tilfinning að þær skorð- ur hafi of mikil áhrif á gæði þjón- ustunnar. núna kemur fólk beint til mín og ég verð að veita góða og skilvirka þjónustu,“ segir Rak- el Dögg. Fyrirbyggjandi meðferð Rakel segir mikinn hraða í starfi sjúkraþjálfara í dag. „Við erum í raun alltaf bara að slökkva elda en ættum að vera að vinna mikið meira fyrirbyggjandi. Kerfið í dag veitir bara ekki svigrúm til þess, bæði vegna þess hversu stuttan tíma við fáum með hverjum ein- staklingi og vegna þess að fólk er að koma of seint til okkar,“ segir Rakel en almennt þarf fólk fyrst að leita til heimilislæknis og fá beiðni til sjúkraþjálfara og þá getur tek- ið við löng bið. „Ég hugsa þetta þannig, að fólk kemur til mín og fær klukkustund í viðtal, líkams- og hreyfigreiningu og helstu heilsu- farsmælingar ef á við. Síðan setj- um við saman upp ákveðið hrey- fiplan sem fólk verður svo sjálft að taka ábyrgð á. Ég vil helst ekki að fólk komi oft til mín heldur ætla ég að gefa því verkfærin til að hjálpa sér sjálft, svo er hægt að koma í eft- irfylgni eftir einhvern tíma,“ segir Rakel. Áður en líkaminn æpir Aðspurð segist Rakel binda von- ir við að hún fái fólk til sín fyrr, áður en vandamálin verða of stór. „Ég vil hugsa þetta heildrænt, bak- verkur er ekki bara bakverkur, ég vil hjálpa fólki að finna út hvað veldur þessum bakverki og hvern- ig megi koma í veg fyrir hann. Ég myndi vilja að fólk komi til mín um leið og einkenni koma fram, áður en líkaminn er farinn að æpa. Lík- aminn gefur okkur skilaboð við öllu en því miður erum við oft að hundsa þessi skilaboð og heyrum þau ekki fyrr en komið er í óefni,“ segir hún. Stoð & Styrkur verður staðsett í heilsulind Lóu Spa á neðri hæð Hótel B59 í Borgarnesi þar sem Rakel Dögg er með góða aðstöðu og aðgang að fullbúnum tækja- sal. Hún er þar til halds og trausts fyrir korthafa líkamsræktar Lóu Spa á mánudögum og fimmtudög- um frá kl. 12-13 og korthafar geta bókað tíma hjá Rakel Dögg til að fá aðstoð við að útbúa æfingaplan í tækjasal. Til að hafa samband við Rakel Dögg er hægt að finna hana á Facebook undir nafninu Stoð og Styrkur, senda tölvupóst á stodog- styrkur@gmail.com eða hringja í síma 698-0076. Ráðleggingar á vinnustaði Rakel mun einnig bjóða upp á fræðslu og ráðgjöf við líkamsbeit- ingu á vinnustöðum. „Ég myndi þá koma á vinnustaðinn, taka út vinnuaðstöðuna og veita fólki ráð- leggingar um líkamsbeitingu,“ seg- ir Rakel og bætir því við að þetta gæti skipt sköpum fyrir fólk. „Þetta er eitthvað sem er mjög auðvelt fyrir mig að sjá þegar ég kem inn á vinnustaði en fólk áttar sig kannski ekki á því sjálft. Margir eru bara fastir í ákveðinni rútínu sem er kannski bara alls ekki góð fyrir lík- amann,“ segir Rakel. arg Sjúkraþjálfari opnar heilsueflingarsetur í Borgarnesi Rakel Dögg opnar heilsueflingarsetur í Borgarnesi. Ljósm. Gunnhildur Lind Photography. Skagamaðurinn Anton Elí Ingason er nú á leið á Ólympíukeppni í matreiðslu. Heldur út til Indlands að keppa í matreiðslu

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.