Skessuhorn


Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 2020 29 Grundarfjörður - fimmtudagur 16. janúar Umf. Grundarfjarðar mætir HK B í blaki kvenna.Leikurinn hefst kl. 20:00 í íþróttahúsinu í Grundarfirði. Borgarbyggð - föstudagur 17. janúar Föstudagurinn Dimmi verð- ur haldinn í fjórða sinn. Upp- brot hversdagsins og samlif- un á umhverfinu með öðrum hætti. Þemað verður samvera fjölskyldunnar. Auk fastra liða er blásið til viðburðar sem er opinn frá föstudegi til sunnu- dags og ætlaður allri fjölskyld- unni, þar sem reynir á útsjón- arsemi og samskipti fjölskyld- unnar. Fjölbreytt dagskrá með ýmsum viðburðum. Sjá nánar í frétt í blaðinu og Facebook- síðu Föstudagsins Dimma. Snæfellsbær - föstudagur 17. janúar Leiksýningin Ókunnugur sýnd í Frystiklefanum í Rifi kl. 20:00. Verkið er samstarfsverkefni Frystiklefans og Kvennaat- hvarfins. Að sýningu lokinni verða stuttar umræður með aðstandendum verkefnisins. Ókeypis aðgangur en tekið við frjálsum framlögum sem renna beint til Kvennaathvarfsins. At- hugið að sýningin er ekki við hæfi barna undir 10 ára aldri. Reykhólahreppur - föstudagur 17. janúar Svavar Knútur, söngvaskáld og sagnamaður, heldur tónleika og kvöldvöku í Báta- og hlunn- indasýningunni að Reykhól- um frá kl. 20:00. Fjölbreytt dag- skrá ætluð öllum aldurshóp- um. Aðgangseyrir er kr. 2.000 en ókeypis fyrir börn á grunn- skólaaldri. Fyrr um daginn mun Svavar heimsækja eldri kyn- slóðina í hreppnum. Dalabyggð - laugardagur 18. janúar Bingó Kvenfélagsins Fjólu í Ár- bliki kl. 14:00. Sjoppa á staðn- um. Spjaldið kostar kr. 1.000 og allur ágóði rennur til góðra málefna í heimabyggð. Athug- ið að ekki er posi á staðnum. Borgarbyggð - laugardagur 18. janúar Öxin - Agnes og Friðrik, á Sögu- lofti Landnámsseturs Íslands kl. 20:00. Magnús Ólafsson sagna- maður segir frá síðustu aftök- unni á Íslandi, en fjölskylda hans tengist þeim atburðum persónulega. Miðasala á www. landnam.is. Borgarbyggð - laugardagur 18. janúar Árshátíð Samtaka ungra bænda verður haldin í Þing- hamri kl. 20:00. Matur, skemmt- un og ball. Veislunni stjórnar Gísli Einarsson og Megin- streymi leikur fyrir dansi. Nán- ar á Facebook-viðburðinum Árshátíð SUB 2020, þar sem einnig má finna upplýsingar um miðapantanir. Snæfellsbær - laugardagur 18. janúar Hipsumhaps halda tónleika í Frystiklefanum í Rifi kl. 21:00. Fyrstu tónleikar Hipsumhaps á nýju ári og jafnframt þeirra fyrstu tónleikar á Snæfellsnesi. Miðasala á www.thefreezer- hostel.com. Grundarfjörður - sunnudagur 19. janúar Spilakvöld Hjónaklúbbs Eyrar- sveitar kl. 20:30. Spilað verð- ur í Eyrbyggju Sögumiðstöð. Aðalvinningur kvöldsins eru tveir miðar á þorrablót hjóna- klúbbsins. Aðgangseyrir er kr. 1.000 fyrir félagsmenn en 1.500 kr. fyrir þá sem eru utan félags. Íbúð í Borgarnesi Erum fimm manna fjölskylda að leita að húsnæði, 3-4 svefn- herbergja íbúð, til leigu í Borg- arnesi. Ef þú hefur eitthvað handa okkur máttu endilega hafa samband í síma 618-7879, Hrund. Óska eftir íbúð Óskum eftir íbúð á leigu í Borgarnesi, þarf að vera 3-4 herbergja. Helst langtímaleiga. Erum reglusöm. Sími: 780-7989, Guðný Gísladóttir. Á döfinni Nýfæddir Vestlendingar Markaðstorg Vesturlands Getir þú barn þá birtist það hér, þ.e.a.s. barnið! www.skessuhorn.is LEIGUMARKAÐUR 5. janúar. Stúlka. Þyngd: 3.782 gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Bára Daðadóttir og Karl Jóhann Haa- gensen, Akranesi. Ljósmóðir: Jó- hanna Ólafsdóttir. All levels 1-4 We are teaching Icelandic 2 on line Register now https://simenntun.is/nam/ Icelandic courses are starting SK ES SU H O R N 2 01 9 6. janúar. Drengur. Þyngd: 3.228 gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Þor- katla Inga Karlsdóttir og Eiríkur Þór Theodórsson, Hvanneyri. Ljós- móðir: Hafdís Rúnarsdóttir. 7. janúar. Drengur. Þyngd: 4.022 gr. Lengd: 49 cm. Foreldrar: Sylvía Björg Runólfsdóttir og Eerikki P. M. Elovirta, Reykjavík. Ljósmóðir: Hrafnhildur Ólafsdóttir. 4. janúar. Stúlka. Þyngd: 3.642 gr. Lengd: 50 cm. Móðir: Anna Þor- steinsdóttir, Danmörku. Ljósmóð- ir. G. Erna Valentínusdóttir. 9. janúar. Drengur. Þyngd: 4.700 gr. Lengd: 53 cm. Foreldrar: Berghild- ur Pálmadóttir og Kári Gunnars- son, Dalabyggð. Ljósmóðir: Hrafn- hildur Ólafsdóttir. Berugata 20, 310 Borgarnes 54.900.000 kr SKIPTI MÖGULEG Á MINNI OG ÓDÝRARI FASTEIGN! 234,8 m², raðhús, 7 herbergi Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, Sími: 588-4477 og Rakel Árnadóttir löggiltur fasteignasali S:895-8497, kynna: Fallegt og vel viðhaldið sex herbergja raðhús við Berugötu, Borgarnesi með einstöku útsýni út á Borgarfjörð og til Hafnarfjalls. Húsið er á tveimur hæðum með rúmgóðum (42 fm) innbyggðum bílskúr. Sjá nánar á fasteignavef mbl.is.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.