Skessuhorn


Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 2020 31 Gleðilegt heilsuræktarár 2020 Morguntrimm • spinning • hádegispúl • átakstímar • sundleikfimi • leiðsögn í þreksal Opið alla virka daga kl. 6.00 – 22.00 • Laugardaga og sunnudaga kl. 9.00 – 18.00 Verið velkomin Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi - www.borgarbyggd.is S K E S S U H O R N 2 02 0 Snæfellingar máttu játa sig sigraða á heimavelli gegn Hetti þegar lið- in mættust í 1. deild karla í körfu- knattleik á sunnudag. Gestirnir frá Egilsstöðum höfðu undirtökin all- an leikinn og sigruðu að lokum örugglega, 68-93. Höttur byrjaði betur og skoraði fyrstu níu stig leiksins en Snæfell- ingar fundu sig ekki í fyrsta leik- hluta. Mest höfðu gestirnir 15 stiga forskot í upphafsfjórðungnum. Heimamenn komu til baka þegar leið á leikhlutann en Höttur hafði tíu stiga forskot að honum loknum, 15-25. Gestirnir voru áfram sterk- ari í öðrum fjórðungi en Snæfell- ingar fundu sig engan veginn. Þeir skoruðu aðeins átta stig allan leik- hlutann og Höttur jók forskotið í 25 stig áður en flautað var til hálf- leiks, 23-48. Snæfellingar komu ákveðnir til síðari hálfleiks og voru betri í þriðja leikhlutanum. Þar skoruðu þeir 25 stig gegn 22 stigum gestanna og löguðu stöðuna lítið eitt fyrir loka- fjórðunginn, 48-70. Munurinn var hins vegar of mikill og gestirnir frá Egilsstöðum sigldu sigrinum örugglega heim í fjórða og síðasta leikhlutanum. Höttur sigraði með 93 stigum gegn 68 stigum Snæ- fells. Brandon Cataldo var atkvæða- mestur í liði Snæfells með 22 stig og átta fráköst. Guðni Sumarliða- son skoraði 14 stig og tók fimm frá- köst, Anders Gabriel Andersteg var með ellefu stig og tólf fráköst, Ísak Örn Baldursson skoraði tíu stig, Benjamín Ómar Kristjánsson var með níu stig og Aron Ingi Hinriks- son lauk leik með tvö stig og fimm fráköst. Dino Stipcic fór fyrir liði Hatt- ar með 19 stig, sex fráköst og fimm stoðsendingar. Marcus Jermaine Van skoraði 19 stig og reif niður 20 fráköst, Matej Karlovic skoraði 14 stig og David Guardia Ramos var með ellefu stig og sjö fráköst. Snæfellingar hafa fjögur stig í átt- unda sæti deildarinnar, jafn mörg stig og Skallagrímur í sætinu fyrir ofan en tveimur stigum meira en botnlið Sindra. næsti leikur Snæ- fells er útileikur gegn Álftanesi föstudaginn 17. janúar næstkom- andi. kgk Eftir góðan heimasigur á Breiða- bliki síðastliðinn miðvikudag biðu Snæfellskonur lægri hlut gegn Keflavík, 75-84, þegar liðin mætt- ust í Domino‘s deild kvenna í körfu- knattleik á sunnudag. Leikið var í Stykkishólmi og fengu áhorfendur æsispennandi leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framleng- ingu. Gestirnir höfðu heldur yfirhönd- ina í upphafi og leiddu með sex stigum um miðjan fyrsta leikhulta. Þá tóku Snæfellskonur góða rispu og komust í 15-14 áður en við tók góður kafli Keflavíkur sem leiddi 15-23 eftir upphafsfjórðunginn. Annar leikhluti var jafn og spenn- andi, gestirnir leiddu en Snæfells- konur fylgdu fast á hæla þeirra. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 40-42, gestunum í vil. Snæfellskonur voru mjög öflugar í upphafi síðari hálfleiks. Þær jöfn- uðu metin snemma í þriðja leik- hluta og liðin fylgdust að næstu mínúturnar. Þá náðu þær góðum kafla og sjö stiga forskoti seint í leikhlutanum, 55-48. En Keflvík- ingar svöruðu fyrir sig og jöfnuðu metin fyrir lokafjórðunginn, 57-57 og leikurinn í járnum. Fjórði leikhluti var æsispennandi. Snæfell hafði tveggja stiga forystu framan af leikhlutanum. Þá náði Keflavík góðri rispu og fimm stiga forskoti í stöðunni 62-67. Snæfells- konur komust stigi yfir þegar tæpar tvær mínútur lifðu leiks en Kefla- vík sneri taflinu við með tveim- ur vítaskotum í næstu sókn. næst var komið að Snæfelli á vítalínunni en aðeins annað skotið fór niður og staðan jöfn, 72-72 þegar innan við hálf mínúta lifði leiks. Spennu- stigið var hátt og bæði lið áttu eft- ir að tapa boltanum einu sinni áður en lokaflautan gall. Staðan var þá 72-72 og því varð að grípa til fram- lengingar. Þar skoruðu Snæfells- konur aðeins þrjú stig, gegn tólf stigum Keflvíkinga og því fór sem fór. Keflavík sigraði með 84 stigum gegn 75 stigum Snæfells. Amarah Coleman var stigahæst í liði Snæfells með 20 stig og ellefu fráköst að auki. Vera Prttinen skor- aði 19 stig, Rebekka Rán Karls- dóttir var með 13 stig, Emese Vida skoraði tíu stig, tók 15 fráköst og gaf sex stoðsendingar, Anna Soffía Lárusdóttir var með níu stig og níu fráköst og Helga Hjördís Björg- vinsdóttir skoraði fjögur stig. Í liði Keflavíkur var Dani- ella Morillo atkvæðamest með 24 stig, 13 fráköst, sex stoðsending- ar og fimm varin skot. Anna Ing- unn Svansdóttir skoraði 18 stig og tók fimm fráköst, Þóranna Kika Hodge-Carr var með 14 stig og sjö fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdótt- ir skoraði ellefu stig og Salbjörg Ragna Sævarsdóttir var með tíu stig og átta fráköst. Eftir leikinn á sunnudag sitja Snæfellskonur í sjötta sæti deildar- innar með átta stig. Þær hafa fjög- urra stiga forskot á Breiðablik en eru tíu stigum á eftir Haukum í sætinu fyrir ofan. næst leika Snæ- fellskonur í dag, miðvikudaginn 15. janúar, þegar þær mæta Íslands- meisturum Vals á útivelli. kgk Skallagrímskonur lyftu sér upp í fjórða sæti Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með góðum sigri á Haukum í Borgarnesi á miðviku- dagskvöld. Borgnesingar höfðu yf- irhöndina allan leikinn og unnu að lokum öruggan sigur, 73-59. Skallagrímskonur voru mun sterkari í upphafsfjórðungnum og leiddu 19-9 að honum loknum. Þær héldu uppteknum hætti í öðr- um leikhluta, voru komnar með 18 stiga forskot um hann miðjan en leiddu með 16 stigum þegar flautað var til hálfleiks, 43-27. Áfram voru Skallagrímskonur betri eftir hléið og stjórnuðu gangi mála inni á vellinum. Þegar þriðji leikhluti var allur var staðan 61-41 og Borgnesingar komnir í ansi væn- lega stöðu. Gestirnir úr Hafnarfirði náðu aðeins að bíta frá sér í loka- fjórðungnum. Haukakonur höfðu minnkað muninn niður í tíu stig þegar þrjár mínútur lifðu leiks en það var of seint í rassinn gripið því nær komust þær ekki. Sigur Skalla- grímskvenna var aldrei í neinni raunverulegri hættu og þær sigruðu að endingu með 14 stigum, 73-59. Emilie Hesseldal átti stórleik fyr- ir Skallagrím á báðum endum vall- arins, skoraði 27 stig, reif niður 17 fráköst og stal hvorki fleiri né færri en sjö boltum. Keira Robinson var með 19 stig, fimm fráköst og fimm stolna bolta, Sigrún Sjöfn Ámunda- dóttir skoraði ellefu stig og tók 13 fráköst, Maja Michalska skoraði ell- efu stig og Mathilde Colding-Poul- sen skoraði fimm stig og gaf fimm stoðsendingar. Randi Brown skoraði 31 stig fyr- ir Hauka og tók fimm fráköst, Lov- ísa Henningsdóttir skoraði tólf stig og tók sex fráköst en aðrar höfðu minna. Sem fyrr segir sitja Skallagríms- konur í fjórða sæti deildarinnar eft- ir sigurinn gegn Haukum. Þær hafa 18 stig, jafn mörg og Haukar í sæt- inu fyrir neðan en tveimur stigum minna en Keflavík í sætinu fyrir ofan. Skallagrímskonur leika næst í kvöld, miðvikudaginn 15. janú- ar, þegar þær fá lið Grindvíkinga í heimsókn. kgk Skagamennirnir Stefán Teitur Þórð- arson og Tryggvi Hrafn Haraldsson hafa verið valdir í hóp A landsliðs karla í knattspyrnu sem leikur tvo vináttuleiki í Bandaríkjunum nú í janúar. Fyrri leikurinn verður gegn Kanada 15. janúar og sá síðari gegn El Salvador 19. janúar. Báðir voru þeir lykilmenn í liði ÍA í Pepsi Max deildinni á liðnu sumri. Tryggvi á að baki þrjá leiki með A landsliðinu og eitt mark, en þetta er í fyrsta sinn sem Stefán Tei- tur er valinn í hópinn. Hann hefur hins vegar leikið tólf leiki með U21 árs landsliðinu og skoraði í þeim eitt mark. kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh. Öruggur sigur Skallagríms Emilie Hesseldal átti stórleik þegar Skallagrímskonur sigruðu Hauka. Ljósm. Skallagrímur. Tryggvi Hrafn Haraldsson í leik með ÍA í sumar. Stefán og Tryggvi valdir í landsliðið Stefán Teitur Þórðarson tekur aukaspyrnu síðasta sumar. Ísak Örn Baldursson í baráttu við liðs- menn Hattar. Ljósm. sá. Háspenna í Hólminum Gestirnir of stór biti Amarah Coleman sækir hart að körfu Keflvíkinga. Ljósm. sá.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.