Skessuhorn


Skessuhorn - 15.01.2020, Side 10

Skessuhorn - 15.01.2020, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 202010 Frestur til að senda umsagnir til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna samgönguáætlunar rann út síðastliðinn föstudag. Um er að ræða umsagnir um tillögu til þingsályktunar um fimm ára sam- gönguáætlun fyrir árin 2020-2024 en auk þess 15 ára samgönguáætl- un fyrir árin 2020 – 2034. nokk- ur sveitarfélög og fulltrúar þeirra á Vesturlandi gera athugsemdir í ljósi þess að hönnun og undirbún- ingur framkvæmda við stofnveg 54 um Skógarströnd eru ekki á áætl- un stjórnvalda fyrr en eftir fimm ár hið minnsta. Skógarstrandarveg- ur er meðal stofnvega landsins og því hluti af grunnneti samkvæmt samgönguáætlun. Vegurinn er um 57 kílómetra langur malarvegur og nær frá minni Haukadals í Dölum, fyrir Álftafjörð og í Helgafellssveit. Ástand vegarins er mjög bágbor- ið eins og oft hefur komið fram í Skessuhorni á liðnum árum og þar hafa fjölmörg umferðarslys orðið í kjölfar aukinnar umferðar. Hafa sveitarfélög á Vesturlandi stað- ið einhuga að beiðni um að fram- kvæmdum þar verði flýtt og vegur- inn endurbyggður. Þau hafa hins vegar talað fyrir daufum eyrum fjár- veitingarvaldsins og mótmæla nú harðlega að engar áætlanir séu um undirbúning eða hönnun nýs veg- ar næstu fimm árin. Á öðru tíma- bili samgönguáætlunar 2025-2029 er gert ráð fyrir 950 milljónum til undirbúnings og hönnunar, en loks ekki fyrr en á þriðja tímabili áætl- unarinnar 2030-2034 er 3,1 millj- arði ráðstafað í veginn. Líta menn á ástand Skógarstrandarvegar sem alvarlegt vandamál og færa ítarleg rök máli sínu til stuðnings. Að lokið verði við hönn­ un á núverandi tímabili Dalabyggð lagði fram umsögn um málið sem og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Þá var send inn bók- un bæjarstjórnar Stykkishólms en auk þess skilaði Jakob Björgvin Jak- obsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, ítarlegri umsögn um frumvarps- drögin. Stykkishólmsbær telur með umsögn sinni, m.a. á grund- velli byggðasjónarmiða, atvinnu- sjónarmiða, öryggisjónarmiða og sjónarmiða um samvinnu sveitar- félaga og mögulegra sameiningar- kosta á svæðinu, eins og nánar er rekið í umsögn, að óhjákvæmilegt sé að gera aðra kröfu en þá að fram- kvæmdum við Snæfellsnesveg núm- er 54 um Skógarströnd verði hrað- að og að ljúka verði við hönnun vegarins á fyrsta tímabili samgön- guáætlunar þannig að hægt verði að hefja framkvæmdir á fyrsta tímabili samgönguáætlunar, en ekki á öðru tímabili eins og áætlunin gerir ráð fyrir. „Framangreindar áherslur Stykkishólmsbæjar eru í samræmi við sameiginlega sýn allra sveitar- félaga á Vesturlandi, eins og rak- ið er nánar í umsögn þessari, sem og í umsögn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og annarra sveitarfé- laga á Vesturlandi, m.a. í umsögn Dalabyggðar.“ Stykkishólmsbær leggur því þunga áherslu á að auknu fjármagni verði veitt annars vegar til hönnun- ar vegarins um Skógarströnd (skil- greiningu, frumdrög að hönnun, forhönnun og verkhönnun) og hins vegar til framkvæmda á fyrsta tíma- bili samgönguáætlunar þannig að hægt verði að hefja framkvæmdir við veginn sem fyrst og eigi síðar en 2023. Annar hættulegasti vegur á Vesturlandi Í umsögn Kristjáns Sturlusonar, sveitarstjóra Dalabyggðar, er bent á að í markmiðum draga að sam- gönguáætlun sé talað um jákvæða byggðaþróun og stefnt verði að því að auka lífsgæði um land allt með bættum samgöngum og styrkja þann grunn sem nauðsynlegur er til að efla fjölbreytta atvinnu og bæta samkeppnishæfni, svo sem með betri aðgangi að þjónustu. Áherslur til að ná þessum mark- miðum eru m.a. þær að leitast verði við að styrkja samgöngur þannig að sem flestum landsmönnum sé kleift að nálgast nauðsynlega opinbera þjónustu á sem stystum tíma, unnið verði að styttingu ferðatíma innan vinnu- og skólasóknarsvæða. Fram- kvæmdir og þjónusta samgöngu- kerfisins miði að því að auka öryggi og styrkja vinnu- og skólasóknar- svæði, einnig að mótuð verði stefna um vegi sem aðallega þjóna ferða- mönnum. „Það er ljóst að hlutur Dalabyggðar er ekki mikill í sam- gönguáætlun og seint farið í verk- efni og ekki er verið að uppfylla markmið áætlunarinnar varðandi samgöngur innan sveitarfélagsins, en framangreind atriði eru öll lykil- þættir í að auka búsetugæði í Dala- byggð og efla byggðina,“ segir orð- rétt í umsögn Kristjáns. Bent er á að vegakerfið í Dalabyggð sé með því verra sem gerist og er sveitarfélagið í 70. sæti af nær jafn mörgum sveit- arfélögum á landinu yfir hlutfall vega með bundnu slitlagi. „Tíðni umferðarslysa er einnig einna mest í Dalabyggð og er vegakerfið innan sveitarfélagsins það fimmta hættu- legasta á landinu samkvæmt Sam- gönguáætlun Vesturlands sem unn- in var á vegum Samtaka sveitar- félaga á Vesturlandi á árinu 2017. nýlega hafa verið dregnar fram þær upplýsingar að vegur 54 um Skógarströnd sé annar hættulegasti vegur á Vesturlandi.“ Virkar sem hraðahindr­ un á uppbyggingu Jakob Björgvin Jakobsson, bæjar- stjóri í Stykkishólmi, sendir ítar- lega umsögn um frumvarpsdrög- in. Þar segir meðal annars. „Þar sem Skógarstrandarvegur er hluti grunnnetsins samkvæmt samgön- guáætlun mætti ætla að hann væri forgangsatriði við ráðstöfun fjár- muna á samgönguáætlun, líkt og markmið hennar kveða á um, en það endurspeglast hins vegar ekki í fyrirliggjandi samgönguáætlun. Það er því óhjákvæmilegt að gera ekki kröfu um það að fyrirliggjandi samgönguáætlun verði breytt með tilliti til mikilvægis vegarins sem hluta af grunnneti samgöngukerf- isins og framkvæmdum verði flýtt þannig að vegurinn komi til fram- kvæmda á fyrsta tímabili samgön- guáætlunar.“ Jakob Björgvin fær- ir fjölmörg rök máli sínu til stuðn- ings. Meðal annars að núverandi ástand Skógarstrandarvegar sundri byggðum í stað þess að góður veg- ur myndi auka samvinnu og stuðla að sameiningu byggða. Rekur hann samfélagsleg og byggðarleg áhrif vegabóta svo sem á búsetu, at- vinnulíf, loftslagsmál og skóla- sókn. „Vegurinn hefur í raun virk- að sem hraðahindrun á atvinnuþró- un og uppbyggingu á svæðinu, sér í lagi í Dalabyggð, og hefur einn- ig verið það fyrir fjölmörg fyrir- tæki. Ástandið í dag er óboðlegt og hefur verið lengi.“ Þá bendir Jak- ob Björgvin á að út frá öryggissjón- armiðum sé vegurinn um Skógar- strönd meðal hættulegustu vegar- kafla landsins og miðað við núver- andi ástan hamlar hann uppbygg- ingu í ferðaþjónustu og dregur úr framþróun í ferðamálum. mm Núverandi stofnvegur um Skógarströnd er um 57 kílómetra langur malarvegur og nær frá minni Haukadals í Dölum, fyrir Álftafjörð og í Helgafellssveit. Mótmæla því að Skógarstrandarvegur er ekki á samgönguáætlun á næstunni Svipmynd frá Skógarstrandarvegi. Ljósm úr safni/bj.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.