Skessuhorn - 15.01.2020, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 2020 11
Sími: 666 5110
smaprent@smaprent.is
www.smaprent.is
Smáprent
Bolir
í mörgum
litum
Við hönnum, prentum og
merkjum fyrir þig og þína
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Sala og ráðgjöf
Sími 540 1100
www.lifland.is
lifland@lifland.is
Reykjavík
Lyngháls
Borgarnes
Borgarbraut
Akureyri
Óseyri
Blönduós
Efstubraut
Hvolsvöllur
Ormsvöllur
Lífland verður með sína árlegu fræðslufundi fyrir bændur á sex
stöðum á landinu dagana 20. til 23. janúar 2020.
Stæðugerð virðist hægt og bítandi vera að ryðja
sér
kostnaði og minnkað plastnotkun á búum.
Fundarfyrirkomulag verður með eftirfarandi sniði:
20. jan
mánudagur
21. jan
þriðjudagur
Kl. 20:30 Verslun Líflands á Hvolsvelli.
Kl. 11:30 Kaffi Sel á Flúðum.
Kl. 20:30 Verslun Líflands í Borgarnesi.
22. jan
miðvikudagur
23. jan
fimmtudagur
Kl. 20:30 Verslun Líflands á Blönduósi.
Kl. 11:30 Hótel Varmahlíð
Kl. 20:30 Verslun Líflands á Akureyri.
ÞORRA
ÞRÆLL����
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Þriðjudagurinn 21. janúar 2020
kl. 20 í Bókhlöðu Snorrastofu
Sama ættin hélt Reykholt
1569–1807. Rakin verður ævi
þeirra presta og sögð á þeim
deili. Einnig verður þess freistað
að segja frá staðnum fyrir og
eftir þeirra tíð.
Kaffiveitingar og umræður
Aðgangur kr. 1000
Athugið breyttan tíma
á fyrirlestrum vetrarins Verið velkomin
Reykhyltingar 1569–1807
Merkismenn í sögu staðar og lands
Sr. Geir Waage sóknarprestur í Reykholti flytur
Félagar í Björgunarsveitinni Brák í
Borgarnesi samþykktu á félagsfundi
sínum í gærkveldi áskorun sem
þeir hafa sent til allra þingmanna
í norðvesturkjördæmi. Í henni
eru þingmenn hvattir til að beita
sér fyrir því að tekið verði að nýju
upp þingmál númer 136 frá 149.
löggjafarþinginu, frumvarp sem
heimilar endurgreiðslur til félaga-
samtaka til almannaheilla vegna
mannvirkjagerðar og annarra fram-
kvæmda. Fyrsti flutningsmaður
frumvarpsins var Jón Gunnarsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
auk 12 meðflutningsmanna. Frum-
varp Jóns dagaði uppi á þingi síð-
astliðið vor m.a. vegna málþófs sem
hafði áhrif á fjölmörg þingmál.
Samkvæmt frumvarpi Jóns Gunn-
arssonar verður ríkinu gert heimilt
að endurgreiða félagasamtökum á
borð við björgunarsveitir fjárhæð
sem nemur virðisaukaskatti sem þær
hafa greitt vegna mannvirkjagerðar
og annarra framkvæmda sem miða
að því að efla starfsemi eða bæta að-
stöðu almannaheillasamtaka eins og
björgunarsveitirnar eru skýrt dæmi
um. „Það er kunnara en frá þurfi að
segja hver nauðsyn íslensku þjóð-
inni er að hafa sterkar og öflugar
björgunarsveitir til að sjá um eða
aðstoða við ýmis verkefni þegar á
bjátar. nægir þar að taka til örfá
nýleg dæmi, svo sem vinnu björg-
unarsveita á norðurlandi að mörg-
um og margvíslegum verkefnum
vegna ofviðris í desember, áþekk
verkefni á Suðurnesjum um síðustu
helgi, leitir að týndum einstakling-
um við Vík og í Hnappadal á síð-
ustu vikum og nú síðast björgun 39
ferðamanna af Kili í umfangsmik-
illi aðgerð. Aukinheldur má minna
á að þjóðin þekkir þessa nauðsyn og
virðir hana og björgunarsveitirnar
með því að hjá fleiri en einum fjöl-
miðli voru sveitirnar valdar „maður
ársins 2019“ í lok síðasta árs.“
Fresta framkvæmdum
þar til málin skýrast
Þá segir í ályktun Brákar í Borgar-
nesi að í umræðum um björgunar-
sveitirnar sé iðulega komið að fjár-
mögnun þeirra, ekki síst upp á síð-
kastið þegar horfur eru á að þrengi
verulega að fjáröflun sem verið hef-
ur aðal tekjulind þeirra. „Björg-
unarsveitin Brák er að hefja fram-
kvæmdir við byggingu nýs húss
undir starfsemina þar sem eldra
húsnæði er á ýmsan hátt óhent-
ugt. Á síðasta ári voru 70 ár síðan
skipuleg björgunarstarfsemi hófst
í Borgarnesi og þá var tekin fyrsta
skóflustungan að nýja húsinu. nú á
næstu vikum stendur til að hefjast
handa við framkvæmdir, jarðvinnu
og sökkla. Það er augljóst mál að
fámenna björgunarsveit munar
verulega um það ef virðisaukaskatt-
ur fæst endurgreiddur af bygginga-
kostnaði. Því verður framkvæmd-
um skotið á frest í bili í þeirri von
að bréf þetta og önnur hvatning
til þings og þingmanna verði til
þess að ofangreint frumvarp verði
að lögum sem allra fyrst, í síðasta
lagi fyrir vorið, og Björgunarsveitin
Brák fái notið þeirrar ívilnunar sem
í lögunum mun felast,“ segir í nið-
urlagi bréfs Björgunarsveitarinnar
Brákar til þingmanna. mm
Fyrsta skóflustungan að nýrri björgunarmiðstöð Brákar var tekin við Fitjar á sjötíu ára afmæli sveitarinnar 20. mars 2019.
Nú hefur sveitin ákveðið að bíða með að hefja framkvæmdir uns fyrir liggur hvort Alþingi taki að nýju upp frumvarp sem
heimilar stuðning ríkisins við mannvirkjagerð almannaheillasamtaka. Ljósm. Skessuhorn/kgk.
Skora á þingmenn að styrkja
björgunarsveitir um virðisauka
skatt af mannvirkjagerð