Skessuhorn


Skessuhorn - 15.01.2020, Síða 16

Skessuhorn - 15.01.2020, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 202016 Steinunn Inga Óttarsdóttir er nýr skólameistari Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi. Hún var skipuð í embætti snemma desembermán- aðar og hóf störf 2. janúar síðast- liðinn. Skólastarf hefur henni lengi verið hugleikið og kannski má segja að skólastjórnun sé henni í blóð borin. Faðir hennar var kennari og skólastjóri, móðir hennar og systir einnig. Skessuhorn hitti Steinunni að máli á skrifstofu skólameistara síðastliðinn fimmtudag og fékk að kynnast henni örlítið. Starfað lengi við stjórnun Steinunn er ættuð frá Þistilfirði og Langanesi. Foreldrar hennar bjuggu á Þórshöfn og þaðan lá leið- in á Húsabakka í Svarfaðardal, þar sem faðir hennar starfaði sem skóla- stjóri. „Þar bjuggum við í sex ár en fluttum síðan til Akureyrar. Þar var ég til tvítugs, gekk í Mennta- skólann á Akureyri og útskrifaðist úr máladeild 1983,“ segir hún. Að menntaskólagöngu lokinni lá leið- in í Kennaraháskólann. „Ég fór svo í Háskóla Íslands þar sem ég lauk meistaraprófi kennara í íslensku og síðan meistaraprófi í íslenskum bókmenntum. Að svo búnu byrjaði ég að kenna í Menntaskólanum við Sund, árið 1996,“ segir Steinunn. „Ég var í 18 ár í Menntaskól- anum í Kópavogi, þar sem ég var áfangastjóri í tólf ár, lauk samhliða diplómanámi í mannauðsstjórnun og vettvangsnámi í stjórnun fram- haldsskóla. Síðan fékk ég námsor- lof, fór til Tékklands og var í Prag að stúdera hagnýta menningarmiðl- un. Ég kláraði það nám núna í vor,“ bætir hún við. „Haustið 2016 fór ég að vinna fyrir Félag framhalds- skólakennara sem sérfræðingur í kjara- og réttindamálum og hafði umsjón með Vísindasjóðnum, sem er endurmenntunarsjóður kenn- ara,“ segir Steinunn. Má þannig segja að kennsla hafi átt hug hennar allan undanfarin 18 ár? „Stjórnunin í rauninni, ég er búin að starfa tölu- vert meira við stjórnun en kennslu á mínum ferli,“ segir hún. „En kennslan er skemmtilegt starf og mikilvægasta starfið, ég segi það nú bara eins og menntamálaráðherra,“ bætir hún við. Bókaormur Utan skólastarfsins hefur Steinunn einnig starfað sem bókmenntagagn- rýnandi, allar götur frá 1999. Fyrst hjá DV og Morgunblaðinu en síð- ar Kvennablaðinu og Víðsjá. „Það er mjög gaman, illa borgað en mjög skemmtilegt,“ segir hún og bros- ir. „Síðan held ég, ásamt fleiri kon- um, úti vef sem heitir Skáld.is. Þar erum við að safna í gagnagrunn um íslenskar skáldkonur og vinnum í því í okkar frístundum. Það er mjög gefandi og skemmtilegt verkefni,“ segir hún. Það þarf því kannski ekki að koma á óvart að stórum hluta frítíma síns verji Steinunn við bóklestur. „Ég les mikið, ferðast mikið, bæði innan- lands á gömlum fjallatrukk um fjöll og firnindi og erlendis. Svo sinni ég ýmsum félagsstörfum, á stóran vinahóp og frændgarð og er í alls konar klúbbum, sem sumir hverj- ir eru áratugagamlir,“ segir hún. „Ég er til dæmis í leshring og var á leshringsfundi í gærkvöldi. Þar erum við sjö saman sem hittumst að jafnaði á fjögurra til sjö vikna fresti og höfum gert síðan 1994 eða þar um bil,“ segir Steinunn og bætir því við að hún hafi gaman af ýmsu fleiru. Svo sem að hjóla á „ra- cernum“ sínum, elda hollan mat, grúska í gleymdum skáldkonum og bókmenntum 18. aldar, hlusta á góða tónlist og fylgjast með breska kóngafólkinu. „Góður sáttamiðlari“ Þegar blaðamaður hitti Steinunni á skrifstofu skólameistara hafði hún aðeins gegnt nýja starfinu í sex daga. Hún lætur afar vel af fyrstu kynnum sínum af skólanum. „Mér líst rosalega vel á þetta. Fyrsta dag- inn mætti mér mjög alúðlegt starfs- fólk og blóm í potti. Allir voru glað- ir að fá mig og ég er glöð að vera hingað komin,“ segir hún og bros- ir. En hvernig kom það til að hún ákvað að sækjast eftir starfinu? „Ég hafði aldrei áður fundið hjá mér neina hvöt til að sækja um skóla- meistarastöðu. Það var einhvern veginn ekkert inni í myndinni hjá mér. Síðan þegar ég sá þessa aug- lýsingu frá FVA, og var náttúrulega búin að heyra um stöðu skólans í gegnum Félag framhaldsskóla- kennara, fjölmiðla og svoleiðis, þá hugsaði ég með mér; „þarna er þörf fyrir mig, mín reynsla og mín- ir hæfileikar geta komið að góðum notum og þarna get ég látið gott af mér leiða“. Enda er það nú einmitt til þess sem við erum hér á jörð,“ segir Steinunn kímin. En hverjir eru þessir hæfileikar Steinunnar sem hún telur að koma muni að góðu notum í starfinu? „Fyrst og fremst er ég leiðtogi og vil fá fólk í lið með mér. Ég góður sáttamiðlari, sanngjörn og raunsæ, sveigjanleg og ég geri ekki veður út af smámunum. Mín mantra í skóla- stjórnun er lýðræði, virðing, traust og samvinna. Mér er mikilvægt að starfsfólkið sé ánægt, vegna þess að ánægja kennara og starfsfólk skilar sér út til nemenda, sem síðan skilar sér út í samfélagið hér á Akranesi og á endanum út í þjóðfélagið allt. Þetta bara breiðist út,“ segir skóla- meistarinn ákveðinn. Blaðamaður hafði haft spurnir af því fyrir fund hans með Steinunni að hún hefði gengið á milli nem- enda fyrsta kennsludaginn, heilsað hverjum og einum og kynnt sig. „Er það ekki bara sjálfsagt?“ spyr Stein- unn. „Mér finnst það. Mig langar að kynnast þeim. nemendur vita þá hver ég er og eiga þá kannski auð- veldara með að leita til mín ef eitt- hvað er,“ bætir hún við. Gleði og kærleikur Aðspurð kveðst Steinunn vonast til að nemendur og kennarar verði varir við að breyttar áherslur fylgi nýjum skólameistara. Hverju vill hún helst breyta? „Ætli fyrsta verk- efnið verði ekki að reyna að hressa upp á launakjörin og þar með mór- alinn. Stofnanasamningur FVA hef- ur ekki verið yfirfarinn í ansi langan tíma,“ segir hún. „Við í samstarfs- nefndinni höfum þegar haldið einn fund til að leggja línurnar. Á morg- un [sl. föstudag; innsk. blm.] för- um við á fund í ráðuneytinu, ég og stjórnendur skólans, til að tala okk- ar máli,“ segir hún. „Síðan þarf að lægja öldur, skapa frið hér á vinnu- staðnum og skapa traust milli skóla- meistara og starfsfólks. Það er mjög mikilvægt,“ bætir hún við. „Fólk verður að hafa farveg fyrir fagleg- an metnað sinn og frumkvæði í vinnunni og líða vel í starfi. Og eitt af því sem verður alltaf að vera fyrir hendi er gleði og kærleikur. Að fólk finni að borin sé umhyggja fyrir því og að það geti treyst skólameistar- anum og samstarfsmönnum sínum. Það er rosalega mikilvægt,“ segir Steinunn Inga að endingu. kgk Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi. Ljósm. úr safni/ kgk. „Fólk verður að hafa farveg fyrir faglegan metnað sinn“ - segir Steinunn Inga Óttarsdóttir, nýr skólameistari FVA Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Ljósm. kgk.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.