Skessuhorn - 15.01.2020, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 202020
„Ég bjóst alls ekki við svona rosa-
legum viðbrögðum. Ég var bara
voða lítill í mér og hugsaði að fólk
myndi ekki vilja mynd frá mér,“
segir Sigurður Mikael Jónsson sem
ákvað að koma landslagsmynd-
um sínum betur á framfæri í upp-
hafi árs með því að opna Facebo-
ok síðu fyrir myndirnar, Smjmynd-
ir. Mikael man nákvæmlega hvenær
hann tók fyrst upp pensilinn en það
var þann 8. janúar árið 2018. Hann
var búinn að starfa sem blaðamað-
ur í tólf ár, tíu ár hjá DV og svo tvö
ár hjá Fréttablaðinu, og var að eig-
in sögn að brenna út í starfi. Í leit
sinni að hugarró fór hann að horfa
á róandi myndbönd á Youtube fyr-
ir svefninn sem var hans leið til að
flýja streitu og kvíða. „Vegna þess
að ég var alltaf að horfa á svona
myndbönd fór ég að fá uppástung-
ur frá Youtube að horfa á mynd-
bönd af manni með afró í blárri
skyrtu að mála landslagsmyndir. Ég
vissi ekkert hver þetta var en ákvað
að smella á þetta. Þetta var þá Bob
Ross, vinsæll sjónvarpslandslags-
málari í bandarísku almennings-
stjónvarpi á níunda og tíunda ára-
tugnum,“ segir Mikael sem er nú
búinn að horfa á öll myndböndin
með Bob Ross.
Málaði fyrstu myndina
Í myndböndunum kennir Bob Ross
aðferð til að mála landslagsmyndir
og talar hann um að allir geti lært
að mála með þeirri tækni sem hann
kennir. „Ég hugsaði þá bara; ókei,
við skulum sjá, og í janúar fyrir
tveimur árum ákvað ég, með mjög
frumstæðum áhöldum, að mála
mína fyrstu mynd,“ segir Mikael
sem málaði fyrstu myndina inni í
herbergi dóttur sinnar. Þar sat hann
á barnastól með striga á teiknitrön-
um fyrir börn fyrir framan sig og
tölvuna til hliðar. „Ég horfði á Bob
Ross og elti það sem hann var að
gera. Ég var búinn að skoða þessa
aðferð vel svo ég náði alveg ákveðn-
um árangri þó þetta hafi ekki ver-
ið fallegasta mynd sem hefur verið
máluð,“ segir Mikael og hlær. „En
ég upplifði svo mikla ánægju og
stolt yfir því að ég hafði búið þetta
til. Svo þetta vatt upp á sig og ég fór
í framhaldinu að mála meira,“ segir
Mikael sem hefur fengið töluverða
athygli fyrir myndirnar sínar.
Langar að prófa
svo margt
„Þegar ég fór svo að gera mitt eig-
ið „stöff“ og fór að setja myndir
inn á Facebook og Instagram sá ég
að fólki fannst þetta bara eitthvað
merkilegt og var til í að kaupa eina
og eina mynd. Svona byrjaði þetta
bara, einhver útbrunninn blaða-
maður í leit að hugarró fann ein-
hvern sjónvarpsmálara á Youtube
og fór að mála á fullu í barnaher-
berginu á heimili sínu í Reykja-
vík,“ segir Mikael og hlær. Síð-
an fyrsta myndin var máluð hefur
Mikael aflað sér frekari upplýsinga
og þekkingar í ýmsum aðferðum
til að verða betri málari. „Ég hef
í raun bara drukkið allt í mig sem
kemur að þessu, nýja tækni og nýja
hluti og er í raun bara að springa
því mig langar að prófa svo margt,“
segir Mikael og bætir því við að
hann sé ekki lengur að fylgja ein-
göngu aðferðinni sem hann lærði
af Bob Ross. „Hann var svona eins
og hjálparadekkin á hjólinu þegar
maður lærir að hjóla. Á einhverj-
um tímapunkti losar maður sig við
hjálparadekkin og fer að gera þetta
sjálfur,“ útskýrir hann.
Fjölmiðlafulltrúi
UNICEF
Mikael er fæddist árið 1983 og
ólst upp á Akranesi. Hann gekk í
Grundaskóla og því næst fór hann
í Fjölbrautaskóla Vesturlands áður
en hann hélt til Reykjavíkur í há-
skólanám. Hann er giftur Skaga-
konunni Evu Eiríksdóttur og sam-
an eiga þau tvö börn, Rakel Ölbu 7
ára og Eirík Elía 4 ára. Fjölskyldan
býr í Reykjavík og starfar Mikael í
dag sem fjölmiðlafulltrúi UnICEF
á Íslandi og Eva er markaðsstjóri
hjá FlyOver Iceland. „Eva er í mjög
stóru og umfangsmiklu starfi svo ég
dró aðeins saman seglin og hætti í
blaðamennsku og er núna að bjarga
börnum á daginn og mála á kvöld-
in,“ segir Mikael og brosir. „Þetta
er fjölskylduvænn vinnustaður, ég
get sótt börnin mín og hugsað um
heimilið. Svo í staðinn fæ ég nokkra
klukkutíma um helgar til að mála
eins og eina landslagsmynd,“ segir
Mikael og bætir því við að hann sé
búinn að færa sig úr barnaherberg-
inu yfir í hjónaherbergið. „Þar er
ég svo einn sveittur að hlusta á Sig-
urrós og mála íslenskt landslag og
það er bara dásamlegt,“segir hann
og hlær.
Málar það sem hreyfir
við honum
Eins og fyrr segir málar Mikael
landslagsmyndir og með því að
opna Facebook síðu fyrir mynd-
irnar sínar var hann að taka fyrsta
skrefið til að koma sér á framfæri. Í
kjölfarið hefur hann fengið margar
fyrirspurnir. „Fólk er að hafa sam-
band við mig sem er mjög gaman.
En fyrir mér snýst þetta ekki um að
selja myndirnar, þó það sé auðvitað
líka gaman. Ég mála fyrst og fremst
fyrir mig og mála það sem hreyfir
við mér. Ég mála mikið Akrafjall-
ið því ég ólst upp við það. Svo er
gaman að mála Snæfellsjökul en á
heiðskýrum dögum á Akranesi get-
ur maður séð hann og það er eitt-
hvað við hann sem veitir manni
orku. Jöklar og fjöll hafa átt hug
minn allan í því sem ég mála,“ seg-
ir Mikael. Hann segir að ef fólk vill
kaupa myndirnar sé það bara bón-
us. „Ég er ekki að selja mig mjög
dýrt. Þetta er alþýðulist og þú finn-
ur ekki mynd hjá mér á milljón. Ég
vil frekar mála tíu myndir og selja
þær allar en að mála tíu myndir og
selja eina og hinar endi uppi á háa-
lofti hjá mér,“ segir hann.
Allir geta málað
En er það rétt sem Bob Ross segir
að allir geti málað? „Já, ég fullyrði
það. Ég hef séð það gerast,“ svarar
Mikael. „Ég er í nokkrum hópum
sem tengjast þessari ákveðnu tækni
og ég hef séð hvaða árangri fólk
getur náð og ég myndi treysta mér
til að kenna hverjum sem er að mála
alveg ágætis landslagsmynd á frek-
ar stuttum tíma,“ bætir hann við.
Aðspurður segist hann alltaf hafa
haft ákveðna þörf fyrir listsköpun
en þar til fyrir tveimur árum fékk
hann þá útrás fyrst og fremst í tón-
list eða ritlist. „Ég hef alltaf þurft
að skapa, semja ljóð eða skrifa en
ég var ekkert að teikna eða mála.
Ég teiknaði reyndar mjög mik-
ið sem barn og var ágætur í því en
hef ekkert gert það síðan í grunn-
skóla. Það var í raun óvænti hlutur-
inn í þessu öllu, að uppgötva að ég
gæti þetta. Að komast að því á fer-
tugsaldri að ég kann alveg að mála
og fólk tekur vel í það sem ég geri,
ekki bara nánasta fjölskylda sem
verður að skrifa eitthvað fallegt við
myndirnar mínar,“ segir Mikael að
endingu. arg
Sigurður Mikael Jónsson tók fyrst upp pensilinn og byrjaði að mála landslagsmyndir fyrir tveimur árum.
Útbrunninn í leit að hugarró og
fór að mála landslagsmyndir
Rætt við fyrrum blaðamanninn og nú fjölmiðlafulltrúann Sigurð Mikael Jónsson
Þegar Mikael byrjaði að mála var hann með þessa aðstöðu í herbergi dóttur
sinnar. Ljósm. aðsend
Mikael með nokkrar af landslagsmyndunum sem hann hefur málað. Ljósm. aðsend.