Skessuhorn - 15.01.2020, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 202024
Pennagrein
Pennagrein
Miðhálendi Íslands hefur að geyma
ein stærstu óbyggðu víðerni Evr-
ópu og magnaða náttúru sem fáa
lætur ósnortna. Þar ægir saman
beljandi jökulám, fíngerðum lág-
gróðri, svörtum sandauðnum, úfnu
hrauni og háreistum fjallstindum.
Með stofnun Hálendisþjóðgarðs
getum við verndað þessa einstöku
náttúru sem við Íslendingar erum
svo heppin að hafa í okkar umsjá.
Fólk mun hafa enn frekari tækifæri
til fjölbreyttrar útivistar og hefð-
bundin sjálfbær landnýting verður
áfram leyfð. Þjóðgarðurinn mun
skapa opinber störf úti á landi og
búa nærliggjandi byggðum marg-
vísleg tækifæri til atvinnusköpun-
ar.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar er kveðið á um að stofna skuli
þjóðgarð á miðhálendi Íslands, en
allt frá árinu 2016 hefur verið unn-
ið að þróun þessarar hugmyndar á
vegum stjórnvalda í nánu samstarfi
við fjölmarga hagsmunaaðila.
Frumvarpið byggir á
niðurstöðu þverpóli
tískrar nefndar
Drög að lagafrumvarpi um Há-
lendisþjóðgarð voru sett í samráðs-
gátt stjórnvalda fyrir jól. Frum-
varpið byggir á viðamikilli vinnu
nefndar sem í sátu fulltrúar allra
þingflokka á Alþingi, Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, umhverfis-
og auðlindaráðuneytis og forsætis-
ráðuneytis.
Meðal þess sem nefndin lagði
til var að mörk þjóðgarðsins
myndu miðast við þjóðlendur inn-
an miðhálendis, þ.e.a.s. landsvæði
sem er nú þegar í sameign þjóðar-
innar. Samtals yrði þjóðgarðurinn
um 30% af flatarmáli Íslands, en
þess ber að geta að helmingur þess
landsvæðis er nú þegar friðlýstur.
Hvaða tækifæri felast
í stofnun Hálendis
þjóðgarðs?
Hálendisþjóðgarður yrði stærsti
þjóðgarður í Evrópu og einstakur
á heimsvísu. Hann myndi vernda
ein stærstu óbyggðu víðerni álf-
unnar og afar sérstæða náttúru.
Hálendisþjóðgarður hefur ekki í
för með sér að miðhálendinu verði
lokað eins og stundum er haldið
fram. Eitt af markmiðum þjóð-
garðsins er einmitt að auðvelda
almenningi að kynnast og njóta
náttúru svæðisins, menningu þess
og sögu.
Gert er ráð fyrir að endurheimt
raskaðra vistkerfa verði eitt af
markmiðum þjóðgarðsins og að
m.a. verði unnið að henni í sam-
vinnu og samstarfi við félög og
sjálfboðaliða á viðkomandi svæð-
um, ekki síst bændur sem víða hafa
unnið mikilvægt starf við land-
græðslu á hálendinu. Hefðbundn-
ar nytjar verða áfram leyfðar inn-
an þjóðgarðsins, svo sem búfjár-
beit, fuglaveiði, hreindýraveiði
og veiði í ám og vötnum. Gerð er
krafa um sjálfbæra nýtingu þessara
auðlinda.
Vatnajökulsþjóðgarður, Þjóð-
garðurinn Snæfellsjökull og þjóð-
garðurinn á Þingvöllum hafa
glögglega sýnt að þjóðgarðar hafa
mikið aðdráttarafl. Þeir eru mikil-
vægir til að vernda náttúru, sögu
og menningu, en skila um leið
efnahagslegum ávinningi. Þeir
skapa opinber störf í nærum-
hverfi sínu og ýta undir margvís-
lega þjónustu í kringum ferðafólk.
Ætla má að það myndi Hálend-
isþjóðgarður líka gera. Þar fyrir
utan yrði hann stærsta framlag Ís-
lands til náttúruverndar í heimin-
um fram til þessa.
Hvað með virkjanir?
Virkjanir hafa verið bitbein stjórn-
málanna og samfélagslegrar um-
ræðu í langan tíma. Með frum-
varpsdrögum um Hálendisþjóð-
garð er gerð tilraun til þess að
sætta sjónarmið um virkjanir inni
á hálendinu.
Lagt er til að þær leikreglur sem
Alþingi setti með lögum um vernd
og orkunýtingu landsvæða (öðru
nafni rammaáætlun) verði virt-
ar, en einnig tekið tillit til þeirra
leikreglna sem þjóðgarður skapar.
Hægt verði að meta þær virkjun-
arhugmyndir inni á miðhálendinu
sem þegar hafa komið fram og eru
til skoðunar í núverandi ramma-
áætlun. Hvort af þeim virkjunum
verður ræðst hins vegar af strang-
ari kröfum en samkvæmt núgild-
andi löggjöf, enda svæðin inn-
an þjóðgarðs. M.a. verði horft til
þess hvort virkjunarhugmynd sé á
röskuðu eða óröskuðu svæði. nýj-
ar virkjunarhugmyndir verði hins
vegar ekki teknar til skoðunar og
þannig dregin lína í sandinn við
þriðja áfanga rammaáætlunar.
Hvernig verður stjórn
fyrirkomulagi þjóð
garðsins háttað?
Stjórnskipulag þjóðgarðsins felur í
sér að ríki, sveitarfélög og hagað-
ilar koma sameiginlega að stefnu-
mótun og stjórnun þjóðgarðsins.
Í áðurnefndum drögum að laga-
frumvarpi er gengið út frá því að
stjórnfyrirkomulag þjóðgarðsins
verði dreift. Meirihluti stjórn-
armanna verði kjörnir fulltrúar
þeirra sveitarfélaga sem ná inn á
miðhálendið og í stjórninni verði
einnig fulltrúar ríkis, ferðaþjón-
ustu, umhverfisverndar- og úti-
vistarsamtaka og Bændasamtaka
Íslands. Gert er ráð fyrir að þjóð-
garðinum verði skipt upp í sex
rekstrarsvæði og svokölluð um-
dæmisráð fari með stefnumótun
hvers svæðis. Fulltrúar sveitarfé-
laga verða í meirihluta í umdæm-
isráðum og aðkoma heimafólks að
stjórnun þjóðgarðsins er því rík.
ný stofnun, Þjóðgarðastofnun,
myndi sinna daglegum rekstri og
þjónusta svæðin.
Það stendur ekki til að fjarstýra
þjóðgarðinum frá Reykjavík, held-
ur dreifa stjórnun hans og umsýslu
um rekstrarsvæðin og að þar verði
starfsstöðvum komið upp.
Hvað með skipulags
ábyrgð sveitarfélaganna?
Með Hálendisþjóðgarði verð-
ur hægt að ná utan um skipulag
miðhálendisins í heild sinni. Því
hefur verið haldið fram að með
stofnun Hálendisþjóðgarðs væri
skipulagsvaldið á hálendinu tekið
af sveitarfélögum á svæðinu. Það
er ekki rétt. Sveitarfélög munu
áfram vera ráðandi í skipulagsmál-
um þessa svæðis. Breytingin yrði
hins vegar sú að skipulagsáætlanir
sveitarfélaga myndu verða bundn-
ar af því sem fram kæmi í stjórn-
unar- og verndaráætlun þjóð-
garðsins. Sú áætlun er unnin af
umdæmisráðum og stjórn þjóð-
garðsins, en þar situr m.a. sveitar-
stjórnarfólk í meirihluta, auk fleiri
hagsmunaaðila.
Að lokum
Að mínu viti eru ótal tækifæri
fólgin í stofnun Hálendisþjóð-
garðs, hvort sem litið er til nátt-
úruverndar, fjölbreyttrar útivist-
ar eða eflingar opinberra starfa og
ferðaþjónustu á landsbyggðinni.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Höf. er umhverfis- og
auðlindaráðherra
Ráðherra sveitarstjórnarmála hefur
látið það boð út ganga að hann vilji
að sveitarfélögum verði fækkað og
að þau þurfi að vera a.m.k. með eitt
þúsund íbúa árið 2026. Þetta á ekki
að gera með stjórnvaldsboði, held-
ur á að leyfa (ég segi leyfa) íbúum
að kjósa um hvert þeirra sveitarfé-
lag sameinast.
Afhverju? Af hverju áhveður lög-
gjafinn ekki hvernig umdæmum
sveitarfélaga skuli háttað? Jú það
er vegna þess að við ætlum að láta
tilfinningar ráða, frekar en hag-
kvæmni.
Ég sé fyrir mér að Dalabyggð
sameinist sveitarfélögum í báðar
áttir og Búðardalur verði áfram
miðpunkturinn. Eyja- og Mikla-
holtshreppur, Helgafellssveit,
Dalabyggð, Reykhólahreppur,
Strandabyggð, Kaldrananeshrepp-
ur og Árneshreppur, sameinist í
eitt öflugt sveitarfélag! Við náum
jú 1000 manna markinu! Jeyy! Og
hvað svo? Áfram verða reknir 3-4
skólar í þessu sveitarfélagi, þann-
ig að innan við 300 manns standa
að baki hverjum skóla. Áfram rek-
um við hafnir, safnahús, elliheimili
og allt sem við erum að gera í dag,
en... við erum þúsund + íbúar.
nei! Ég vil ekki að við séum að
kjósa um þetta, takk fyrir! Við íbú-
ar eigum ekki að vera sett í þá stöðu
að þurfa að kjósa um þetta. Og til
hvers að kjósa, þegar okkur er sagt
að ef sameiningin verði ekki sam-
þykkt, þá muni ráðuneytið leggja
saman sveitarfélög, hvort sem þau
vilja eður ei, til að ná þúsund manna
markinu. Og það er einmitt kjarni
málsins. Þess vegna á löggjafarvald-
ið að ákveða mörk sveitarfélaga og
þá ekki útfrá mannfjölda, því hann
er jú breytileg stærð, heldur út frá
landfræði, því fjöll og firðir færast
sjaldan úr stað.
Þá er hitt ekki síður mikilvægt.
Hver eiga hlutverk/verkefni sveit-
arfélaganna að vera? Er ekki nær að
byrja á því að vinna skýra stefnu þar
um innan stjórnkerfisins, áður en
farið er í sameiningarvinnu, afþví
bara! Af hverju að fækka sveitarfé-
lögum, ef áfram fæst ekki fjármagn
til reksturs þeirra verkefna sem
sveitarfélögin eru nú þegar með á
sinni könnu?
Er málið kannski að viðhalda
sveitarfélögunum sem samfélags-
einingu og láta þau hafa smá
sporslu til rekstrar, en þess í stað
koma á fót millistigi sem sér um
rekstur á stóru verkefnunum! nei
ég bara spyr!
Þorgrímur Einar Guðbjartsson
Þeir Sigursveinn og Einar Mar-
teinn hjá Íslenska gámafélaginu
voru að losa sorpílát í Stykkishólmi
þegar fréttaritari Skessuhorns hitti
þá að máli. Þeir segja að sorphirða
í fannferginu nú taki tvöfalt lengri
tíma en alla jafnan. Þeir slógu því
ekki slöku við við verk sitt.
sá
Sameining
sveitarfélaga
Sorphirða tvöfalt seinlegri við
þessar aðstæður
Hálendisþjóðgarður – af hverju?