Skessuhorn - 15.01.2020, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 2020 27
Vísnahorn
Gleðilegt ár lesendur
mínir og þökk sé þeim
sem nenna að lesa þessa
pistla mína. Hafandi að
undanförnu notið góðr-
ar þjónustu heilbrigðiskerfisins getur mað-
ur ekki annað en verið þakklátur því góða
fólki sem þar starfar en jafnframt undrað sig
á fjársvelti heilbrigðisgeirans sem og annarra
grunnstoða þjóðfélagsins. Vinur minn Guð-
mundur Kristjánsson var eitt sinn slappur frá
vinnu og þurfti að skila þvagprufu til meina-
tæknis að nafni Margrét. Orti á göngu sinni:
Ekkert þras við Möggu má,
máske lasinn er ég,
heitt í vasa heiman frá
hland í glasi ber ég.
Væntanlega hafa flestir fengið nóg að borða
um hátíðarnar. Sumir jafnvel bætt á sig örfá-
um grömmum. Tekur ekki að tala um það.
Vonandi hafa flestir sloppið við magapest-
ir sem stinga sér þó alltaf niður öðru hverju.
Ólafur Jónsson orti nú í byrjun desember síð-
astliðins:
Að mér sækir æluvofan,
úti sálar friður.
Matarsóun upp og ofan,
þó aðallega niður.
Blessaðir kaupmennirnir okkar hafa vænt-
anlega náð að skrapa eitthvað í kassann fyrir
jólin enda fjölmargt sem við bara vissum ekki
að okkur vantaði fyrr en þeir voru svo elsku-
legir að benda okkur á þessa staðreynd. nátt-
úrlega ásamt því að þeir gætu bjargað okkur
um viðkomandi varning gegn hóflegu gjaldi.
Fyrir nokkrum árum datt kirkjunni í hug að
verðlauna kristilegustu sjónvarpsauglýsinguna
sem aftur framkallaði eftirfarandi hugleiðingu
hjá Hjálmari Freysteinssyni:
Svo kaupæðið verði sem kristilegast
kirkjan samþykkti einróma
að verðlauna þann sem lystilegast
leggur nafn Guðs við hégóma.
Oft og iðulega eru haldnar samkomur um
hátíðarnar. Jólaböll fyrir börn og fullorðna,
gamlársdansleikir og nýjársdansleikir, þrett-
ándagleðir og bara hvað sem hægt er að láta
sér detta í hug. Um unga konu sem starf-
aði grimmt að skemmtanamálum kvað Bragi
Björnsson:
Finnst sér holla heilsubót
heimsins sollur geyma.
Eins og rolla um áramót
aldrei tollir heima.
Hljóðfæraskipan hefur að vísu löngum ver-
ið töluvert breytileg en lengi var nú harmon-
ikkan algeng enda fjölhæf vel. Ekki voru þó
allir jafnhrifnir af því dragspili enda kvað Eli-
voga Sveinn um einhvern músikant sem hon-
um hefur trúlega verið lítið um:
Af þér flái Andskotinn
alla há í rauða kviku.
Listasmái loddarinn;
leiktu þá á harmoniku.
Ísleifur Gíslason orti hins vegar:
Hljóðfæranna sætur sónn,
sjatnaði ekki í viku,
þegar gamall grammófónn,
giftist harmóniku.
Veðrahamurinn fyrir jólin og reyndar að
undanförnu hefur minnt okkur óþægilega
á stöðu okkar á hnattkúlunni og að hér geta
komið allskonar veður. Ýmsir hafa áfellst
hestaeigendur fyrir að hafa ekki gert nóg
hrossum sínum til bjargar en kannske einna
sárast þótti mér að frétta af manninum sem
fór að útbúa skjól fyrir hross sín sem síðan
drápust einmitt í skjólinu þar sem snjórinn
var mun blautari og þyngri en við erum vön.
Það er heldur ekki allt öryggi fengið jafnvel
þó skepnurnar hefðu komist í hús. Hjálmar
Guðmundsson á Kolsstöðum segir í ljóða-
bréfi frá óhappi sem varð í mikilli snjókomu:
Hestar tveir sem hlynur geira átti.
Í kafalds stinnu köfunum
köfnuðu inni á dögunum.
Meðan séra Hjálmar Jónsson var á þingi
skoraði hann eitt sinn á sjávarútvegsráðherra
að beita sér fyrir auknum þorskvóta enda
skipstjórar í vandræðum vegna þorsks sem
meðafla. Páll Pétursson gerði auðvitað grín
að þessu en Hjálmar svaraði með sínum hætti
og vitnaði í Lúkasarguðspjallið:
Lítt af þekking lýsti þar
lokaðir viskubrunnar.
Vita þeir fátt um fiskveiðar
og fræði Biblíunnar.
Skipið fyllt af fiski var
fagnað kvótum stærri.
Þá voru fiskifræðingar
og Framsókn hvergi nærri.
Friðrik Steingrímsson var eitt sinn á ferð
með ökumanni sem fræddi hann um Aust-
fjarðaþokuna og hegðan hennar jafnframt því
sem hann kvaðst aldrei gera vísu nema kennd-
ur auk þess sem skrykkdans blandaðist í um-
ræðurnar. Rétt í þeim svifum gerði ökumaður
mjög skammlífa vísu sem aftur varð Friðriki
tilefni þessarar:
Hjólabykkju brá á skrykk
búinn drykk að hýsa,
tafði stykkjótt þokan þykk,
þá varð – hikk – til vísa.
Ekki verður það ofbrýnt fyrir fólki að gæta
vel að hollustu þess sem það lætur ofan í sig.
Alls konar gerlar innlendir sem innfluttir
menga mat vorn grimmilegar en orð fá að
inna og óvíst hvort inntökur á fornum sótt-
hreinsandi vökvum duga til fullnustu enda
orti Þórarinn M Baldursson:
Aftansól á sundin skín,
sær við Skjólin merlar.
Skáldvatnsbólin menga mín
melankólígerlar.
Það hefur dugað okkur lengi að tala illa um
ríkisstjórnina. Skiptir litlu hver ríkisstjórnin
er. Reyndar má segja að það sé sígilt umræðu-
efni ásamt því náttúrlega að tala um hvað allt
var gott í „Gamla daga.“ Guðmundur E Geir-
dal orti á sinni tíð:
Illt hefur hlotið ámælið,
illa notað völdin –
af sér brotið gæfu og grið
glappaskotaöldin.
Mörgum hefur reynst erfitt að svara spurn-
ingunnni „Hvað er menning,“ svo óyggjandi
sé. Hvað þá þegar á að greina milli hámenn-
ingar og lágmenningar. Þórarinn Eldjárn
hafði þetta til mála að leggja:
Ég leita svo mikið í lágkúru
-að launum ég hlýt marga ákúru-
Þetta er aldeilis hreint
ekki af áhuga beint
heldur af andúð á hákúru.
Margt hafa menn ort á skólaárum þó ýmsir
leggi þann sið niður með auknum þroska. Jó-
hann Gunnar Sigurðsson og Friðrik Sigurðs-
son frá Reistará voru félagar á skólaárum sín-
um. Eitt sinn byrjaði Jóhann:
Hangir Kristur hátt á vegg.
Hann var listamaður.
Friðrik botnaði:
Hafði fyrstur hökuskegg
höldur þistlkrónaður.
Sú hágöfga og flughagmælta skáldlæða Jós-
efína Meulengracht Dietrich gaf út Jósefínu-
bók á dögunum og ætli við leyfum okkur ekki
að grípa aðeins niður í hana að lokum. Ort við
andlát Osama bin Laden:
Dindilmenni dásama
að dauður er hann Ósama
en mér stendur ásama
og ætla að fá mér dósama-
t
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Skáldvatnsbólin menga mín melankólígerlar
Fyrirlestrar í héraði í Snorrastofu
hefjast á nýju ári með fyrirlestri sr.
Geirs Waage, sóknarprests í Reyk-
holti, þriðjudaginn 21. janúar kl.
20. Þar fjallar hann um forvera sína
á Reykholtsstað og staðinn sjálfan
frá árinu 1569 til 1807, þegar stað-
urinn var setinn af svonefndum
Reykhyltingum.
Umbroti siðaskiptanna lýkur í
Reykholti með því að síra Jóni Ein-
arssyni var falinn staðurinn árið
1569. Með honum hefst tímabil
er sama ættin hélt staðinn óslitið í
185 ár, afkomendur síra Jóns. Allir
voru Reykhyltingar miklir merkis-
menn sinnar samtíðar. Frægastur
þeirra síra Finnur Jónsson, sem fór
úr Reykholti til að gegna biskups-
dómi í Skálholti, sonur síra Jóns
Halldórssonar í Hítardal, mesta
fræðamanns 17. aldar og faðir herra
Hannesar Finnssonar, síðasta Skál-
holtsbiskupsins. Allir voru þeir ná-
tengdir Skálholti. Rakin verður
ævi þessara presta og sögð á þeim
deili. Einnig verður þess freistað að
segja frá staðnum í þeirra tíð og far-
ið nokkrum orðum um hann bæði
fyrir og eftir.
Til viðbótar segir sr. Geir:
„Skjalasöfnun Reykhyltinganna er
við brugðið. Þegar konungur stofn-
aði Þjóðskjalasafnið lagði hann
til safnsins biskupsskjalasöfnin úr
Skálholti og frá Hólum og lands-
skjölin úr fórum embættismanna
konungs. Að auki keypti hann
skjalasafn kirkjustólsins í Reyk-
holti sem frú Valgerður, ekkja herra
Hannesar, hafði undir höndum og
lagði til Landsskjalasafnsins. Hún
giftist herra Steingrími Jónssyni
biskupi í Laugarnesi við Reykjavík.
Hjá honum byrjaði Jón Sigurðsson
forseti það nám þekkingar á sögu
og rjettindum Íslendinga er hann
smíðaði úr vopnin sem skilaði oss
að lyktum sigri í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar. Gildir þræðir sögu og
þjóðmenningar liggja um hlöðin í
Reykholti. Reynt verður að rífa ein-
hverja þeirra upp úr for gleymsk-
unnar í bili, ef veður og færð leyfir
fundinn.“
Sr. Geir er fæddur á Hrafnseyri
við Arnarfjörð 10. desember árið
1950. Hann lauk embættisprófi í
guðfræði haustið 1978 og vígðist
á sama hausti til Reykholts, sem
hann hefur setið æ síðan. Eins og
fyrr segir í tilynningunni verður
auðnan að ráða, hvort fært verður
til fundarins, sem áætlað er að hefj-
ist kl. 20. Boðið verður til kaffiveit-
inga og umræðna og aðgangseyrir
er kr. 1000.
-fréttatilkynning
Mjög góð þátttaka lesenda var í
að senda inn lausnir á myndagátu
og krossgátu sem birtist í Jóla-
blaði Skessuhorns 18. desember
síðastliðinn. Vel á þriðja hundr-
að lausnir bárust, öllu fleiri lausn-
ir við krossgátunni. Dregið var úr
réttum innsendum lausnum og fá
tveir heppnir þátttakendur pen-
ingaverðlaun sem nægja á til að
fara út að borða í heimabyggð,
eða 15.000 krónur hvor. Pening-
ur hefur verið lagður inn á banka-
reikning viðkomandi.
Rétt lausn á myndagátunni var:
„Einmuna veðurblíða vermdi
íbúa Vesturlands síðasta sumar.“
Harpa Jóhanna Reynisdóttir á
Hæl í Flókadal er heppinn vinn-
ingshafi.
Rétt lausn fyrir jólakrossgátuna
var: „Ljósgjafi.“ nafn Þórhildar
Magnúsdóttur, Hjallatanga 22 í
Stykkishólmi var dregið úr pok-
anum.
Skessuhorn óskar þeim Hörpu
Jóhönnu og Þórhildi til hamingju
og þakkar jafnframt öllum sem
þátt tóku.
mm
Lausnir á krossgátu og
myndagátu í Jólablaði
Skessuhorns
Öllum innsendum lausnum, bréfum og útprentuðum tölvupóstum, var komið
fyrir í svörtum sorpsekk sem dregið var úr.
Fyrirlestur um
Reykhyltingana 15691807
Séra Geir Waage á hálsinum ofan við Reykholt. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson