Skessuhorn - 26.02.2020, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 20202
Frá Landlæknisembættinu: Hand-
hreinsun og hreinlæti kringum
augu, nef og munn ásamt öruggri
meðhöndlun fæðu eru lykilatriði til
að forðast smit og fækka smitleið-
um í þeim tilgangi að draga úr lík-
um á alvarlegum veikindum. Kórón-
aveiran Novel (COVID-19) hagar sér
í sumu eins og inflúensa, einkenni
eru svipuð og smitleiðir áþekkar.
Ef einstaklingar finna fyrir veikind-
um er þeim bent á að hringja í síma
1700 (fyrir erlend símanúmar +354
544-4113) varðandi nánari upplýs-
ingar og hvernig þeir eigi að nálg-
ast heilbrigðiskerfið.
Á morgun er útlit fyrir austanátt
13-18 m/s og snjókomu með köfl-
um á Suður- og Suðvesturlandi en
annars hægari vindur og stöku él.
Hvessir við suðurströndina síðdegis.
Frost 2-12 stig og kaldast í innsveit-
um norðaustanlands. Á föstudag
er spáð ákveðinni austlægri átt og
snjókomu með köflum, einkum á
Suðaustur- og Austurlandi. Frost 1-8
stig, en hiti um frostmark við suður-
ströndina. Á laugardag er útlit fyrir
austanátt og snjókomu eða slyddu
en síðar rigningu á Suður- og Suð-
austurlandi, annars úrkomuminna
og hlýnandi veður. Á sunnudag er
spáð austlægri átt og snjókomu eða
rigningu austanlands. Hiti 0-5 stig.
Á mánudag er útlit fyrir suðlæga átt
með éljum og kólnandi veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns hvort Landsvirkjun ætti að
lækka raforkuverð til stóriðju. Ná-
kvæmlega helmingur þeirra sem
svöruðu sögðu: „Nei, alls ekki“, 34%
svöruðu „Já, tvímælalaust“ og 15%
sögðust ekki vita það.
Í næstu viku er spurt:
Hversu oft á dag heldur þú að þú
takir upp símann þinn?
Meðan fólk er ungt getur verið
brjáðsnjallt að ferðast um heim-
inn og kynnast framandi slóðum.
Guðný Vilhjálmsdóttir frá Helga-
vatni í Borgarfirði hefur ferðast til
56 landa, 28 ára gömul. Hún segir
brotabrot af ferðasögu sinni í við-
tali í Skessuhorni í dag. Hún er Vest-
lendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Stunginn með
eggvopni
GRUNDARFJ: Fangi á Kvía-
bryggju stakk annan fanga með
eggvopni í lærið eftir deilur
þeirra í millum skömmu fyrir
kl. 19 á fimmtudagskvöld. Að
sögn lögreglu var um stórfellda
líkamsárás að ræða. Árásarmað-
urinn var strax tryggður og egg-
vopnið tekið af honum. Lög-
reglumenn frá Grundarfirði og
Stykkishólmi fóru á staðinn og
sjúkrabifreið úr Grundarfirði.
Þolandinn var færður til að-
hlynningar hjá lækni og síðan
aftur á Kvíabryggju. Árásarmað-
urinn var fluttur á lögreglustöð-
ina á Akranesi til yfirheyrslu og
í framhaldi þess á Hólmsheiði.
Rannsókn málsins stendur enn
yfir en er langt komin, að sögn
lögreglu. -kgk
Fjórgangur í
Faxaborg
VESTURLAND: Fyrsta mót
Vesturlandsdeildarinnar í hesta-
íþróttum á þessu ári fer fram í
Faxaborg í Borgarnesi föstudag-
inn 28. febrúar og verður keppt
í fjórgangi. Húsið verður opnað
kl. 18:30 og byrjar liðakynning
á slaginu 19:00 en mótið hefst
að henni lokinni. -mm
Styrkja bikar
meistarana
BORGARBYGGÐ: Bikar-
meistaratitill Skallagríms var til
umræðu á síðasta fundi byggð-
arráðs Borgarbyggðar. Ráðið
óskaði liðinu til hamingju með
árangurinn og samþykkti gefa
meistaraflokki kvenna 350 þús-
und krónur í tilefni af bikar-
meistaratitlinum. -kgk
Kaupa tvo
pannavelli
STYKKISH: Bæjarstjórn
Stykkishólmsbæjar samþykkti
á fundi sínum 12. febrúar að
keyptir verði tveir pannavellir
og settir upp í bænum. Panna-
vellir eru litlir átthyrndir fót-
boltavellir, þar sem spilað er
einn á móti einum. Bæjarráð
hafði áður samþykkt kaup á
tveimur slíkum völlum og stað-
festi bæjarstjórn þá ákvörðun
ráðsins. -kgk
Undirbúa fram
kvæmdir
DALABYGGÐ: Sveitarstjórn
Dalabyggðar hefur skipað
þriggja manna undirbúnings-
hóp vegna íþróttamannvirkja í
Dalabyggð. Gert var ráð fyrir
því í fjárhagsáætlun að á árinu
2020 verði peningum veitt til
undirbúnings framkvæmdanna.
Sveitarstjórn lagði til og sam-
þykkti að Einar Jón Geirsson,
Ragnheiður Pálsdóttir og Skúli
Hreinn Guðbjörnsson skipi
starfshópinn. Umsjónarmaður
framkvæmda, skipulagsfulltrúi
og skólastjóri Auðarskóla munu
starfa með hópnum. -kgk
Veðurhorfur
Á þorrablóti Skallagríms, sem
haldið var 15. febrúar síðastlið-
inn í Hjálmakletti, var venju sam-
kvæmt tilkynnt um val á Borgnes-
ingi ársins. Það kom í hlut Þórdís-
ar Sifjar Sigurðardóttur, verðandi
sveitarstjóra í Borgarbyggð, að til-
kynna um valið. Borgnesingur árs-
ins er Ingimundur Ingimundarson
íþróttakennari og frumkvöðull á
sviði íþrótta fyrir almenning.
„Borgnesingur ársins 2019 er
kraftmikill einstaklingur sem hef-
ur til fjölda ára stuðlað að og stutt
íþróttalíf í Borgarbyggð,“ sagði
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra hefur ákveðið að skipa Jó-
hönnu Fjólu Jóhannesdóttur for-
stjóra Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands til næstu fimm ára. Ákvörðun
ráðherra um skipun hennar í emb-
ættið er tekin að undangengnu mati
lögskipaðrar hæfnisnefndar sem
metur hæfni umsækjenda um stöð-
ur forstjóra heilbrigðisstofnana.
Jóhanna Fjóla hefur gegnt emb-
ætti forstjóra stofnunarinnar um
skeið, allt frá því að Guðjón Brjáns-
son fv. forstjóri settist á Alþingi
2017. Jóhanna Fjóla hefur starfað
hjá stofnuninni frá því að hún var
sett á fót. Hún hefur gegnt stöðu
framkvæmdastjóra hjúkrunar og
rekstrar og starfað sem verkefna-
stjóri þróunar- og gæðamála. Á ár-
unum 2000 – 2009 var Jóhanna
Fjóla verkefnastjóri hjúkrunar en
fyrir þann tíma starfaði hún við
Sjúkrahúsið á Akranesi þar sem hún
var m.a. hjúkrunarforstjóri um eins
árs skeið.
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
starfar samkvæmt lögum um heil-
brigðisþjónustu, nr. 40/2007. Stofn-
unin veitir almenna heilbrigðis-
þjónustu í heilbrigðisumdæmi Vest-
urlands sem nær yfir sveitarfélögin
Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit,
Skorradalshrepp, Borgarbyggð,
Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæ-
fellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helga-
fellssveit, Stykkishólmsbæ, Dala-
byggð, Reykhólahrepp, Strand-
abyggð, Kaldrananeshrepp, Árnes-
hrepp og Húnaþing vestra. Þá ann-
ast stofnunin starfsnám í heilbrigð-
isgreinum og starfar í tengslum við
háskóla á sviði fræðslumála heil-
brigðisstétta og rannsókna í heil-
brigðisvísindum. mm
Hér er Ingimundur í hópi vaskra félaga í pútti í Brákarey. Myndin var tekin á æfingu síðastliðinn fimmtudag þar sem um
þrjátíðu spilarar mætti til að pútta undir stjórn Ingimundar. Ljósm. mm.
Ingimundur er Borgnesingur ársins 2019
Þórdís Sif í ávarpi sínu. „Hann
hefur einnig verið þátttakandi í
því á landsvísu að stuðla að öflugu
íþróttastarfi og komið að stórum
sem smáum viðburðum hjá íþrótta-
hreyfingunni. Hann hefur tekið
þátt í því sem þjálfari að byggja upp
gott starf í kringum frjálsar íþrótt-
ir, sund, boccia og pútt. Ef stór-
mót hafa verið haldin í héraðinu er
Borgnesingur ársins mættur, hann
var formaður framkvæmdanefndar
fyrir Landsmót UMFÍ í Borgarnesi
árið 1997, þegar mikil uppbygg-
ing átti sér stað í kringum íþrótta-
mannvirki í Borgarnesi. Til hans
er ávallt leitað þegar mikið liggur
við í mótahaldi og íþróttalífi í hér-
aðinu og hægt að sækja í hafsjó af
þekkingu og reynslu. Seinustu árin
hefur Borgnesingur ársins stuðlað
að því að byggja upp fjölmennan
hóp hressra púttara. Verkefnið hef-
ur Borgnesingur ársins tekið alvar-
lega, hann fylgist með og skráir ár-
angur allra þeirra sem taka þátt og
hvetur þá áfram til árangurs. Nú er
hann nánast búinn að sprengja utan
af hópnum húsnæðið í Brákarey því
þvílík er þátttakan. Það má ætla að
hann hafi nú þegar sett hópnum
metnaðarfull markmið fyrir Lands-
mót 50+ sem haldið verður í Borg-
arnesi í sumar og þar verður hann
án efa að miðla af þekkingu sinni
og reynslu, ásamt því að hvetja og
styðja sitt fólk sem kemur til með
að taka þátt í mótinu,“ sagði Þórdís
Sif, sem afhenti að endingu Ingi-
mundi blóm og verðlaunagrip fyr-
ir nafnbótina Borgnesingur ársins
2019. mm
Ingimundur Ingimundarson Borgnes-
ingur ársins. Ljósm. hi.
Jóhanna Fjóla skipuð forstjóri HVE
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir.
Ljósm. Skessuhorn/kgk.
Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir
nýsköpunarráðherra kynnti í
ríkisstjórn í gær áform sín um
að leggja niður Nýsköpunar-
miðstöð Íslands (NMÍ) um
næstu áramót. Rúmlega 80
manns starfa hjá stofnuninni
í 71 stöðugildi. Þeim verkefn-
um sem þar hefur verið sinnt
verður fundinn annar stað-
ur. Með breytingunum segist
ráðherra vilja stuðla að öflug-
um opinberum stuðningi þar
sem hans er þörf í núverandi
umhverfi. „Í haust kynntum við til
sögunnar nýsköpunarstefnu fyrir
Ísland og aðgerðir í kjölfarið. Þetta
er næsta skref. Framhaldið krefst
samtals við fjölda hagsmunaaðila
og við gefum okkur góðan tíma til
að gæta þeirra mikilvægu verkefna
sem við viljum forgangsraða og
standa vörð um,“ segir Þórdís Kol-
brún í tilkynningu.
Niðurstaða greiningarvinnu er sú
að hluta verkefna NMÍ megi fram-
kvæma undir öðru rekstrarformi.
„Hluti verkefnanna geta verið
framkvæmdir af aðilum á markaði
og hluti verkefnanna er ekki for-
gangsverkefni hins opinbera í ný-
sköpun vegna þroskaðra umhverf-
is nú og því hætt. Nýsköpunarráð-
herra hefur mótað áætlun um fjög-
ur meginsvið stofnunarinnar, greint
helstu verkefni og næstu skref
eru að finna þeim farveg eftir
þörfum í nýju rekstrarformi.
Þetta eru verkefni sem falla
undir byggingarannsóknir,
nýsköpunargarðar fyrir frum-
kvöðla og sprotafyrirtæki,
efnagreiningar og mengun-
armælingar fyrir stóriðju.“
Nýsköpunarmiðstöð Ís-
lands var sett á fót árið 2007
með sameiningu Iðntækni-
stofnunar og Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðar-
ins. Bein framlög úr ríkissjóði til
NMÍ eru nú rúmlega 700 milljónir
króna á ári, að undanskildum kostn-
aði við húsnæði NMÍ í Keldnaholti,
sem fært verður til ríkiseigna. Ráð-
gert er að tæplega helmingur þess
fjármagns verði notaður til að fylgja
eftir þeim verkefnum stofnunarinn-
ar sem framhald verður á.
mm
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
verður lögð niður