Skessuhorn - 26.02.2020, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 202024
Það var bókstaflega allt á fullu í
Kallabakaríi á Akranesi á mánu-
dagsmorgun þegar blaðamaður
Skessuhorns leit við. Staðið var við
öll borð og sett á vatnsdeigsboll-
ur sulta, rjómi og glassúr. Fram-
leiðslunni var svo ekið í fyrirtæki
og stofnanir, auk þess sem til sölu
var í bakaríinu. Að sögn Alfreðs
Karlssonar bakara mættu fyrstu
fimm bakararnir á vakt klukkan
1:30 um nóttina og síðan bættust
fleiri við undir morgun. Alfreð seg-
ir að á bolludaginn hafi verið fram-
leiddar 4000 bollur, um tvö þúsund
á sunnudeginum og annað eins á
laugardeginum. Helgina áður var
hins vegar byrjað á bollubakstrin-
um því margir vilja taka bolludag-
inn snemma, eða öllu heldur bollu-
vikuna. Meðfylgjandi myndir tala
sínu máli. mm
Laugardaginn 29. febrúar kl. 13.00
verður opnuð sýning í Hallsteins-
sal í Safnahúsi Borgarfjarðar sem
ber yfirskriftina „Landslag væri
lítils virði...“ Á sýningunni verða
landslagsmyndir úr safneign Lista-
safns ASÍ eftir Ásgrím Jónsson, Jón
Þorleifsson og Jón Stefánsson auk
verks í eigu Nýlistasafnsins eftir
hollenska listamanninn og Íslands-
vininn Douwe Jan Bakker. Verk
Douwe Jan Bakker (1943-1997)
ber heitið ,,A Vocabulary Sculpture
in the Icelandic Landscape‘‘ - Þrí-
víddarorðasafn í íslensku landslagi
frá 1976-77 og samanstendur af 72
ljósmyndum af ákveðnum þáttum
úr landslagi og jarðfræði Íslands.
Douwe Jan Bakker kynntist
fyrst íslenskum myndlistarmönn-
um (SúM-urum) í Amsterdam um
1970. Hann tók miklu ástfóstri við
Íslandi og íslenska menningu og
kom margar ferðir hingað til lands
bæði til að sýna og til að vinna hér
verk. Honum var umhugað um
með hvaða hætti íslenskt landslag
endurspeglaði eitthvað sem kalla
mætti persónueinkenni íslensku
þjóðarinnar. Hann var djúpt snort-
inn af sterkum rótum menningar-
innar í umhverfinu, í sjálfu land-
inu. Verkið á sýningunni snýst um
tengsl tungumálsins - orða, heita
og hugtaka - við landslagið.
Landslagsmálverkin á sýning-
unni, olíumálverk og ein vatnslita-
mynd, eru hluti af stofngjöf Ragnars
í Smára til Listasafns ASÍ. Þau eru
eftir Ásgrím Jónsson (1876-1958),
Jón Stefánsson (1881-1962) og Jón
Þorleifsson (1891-1961) og flest
unnin í Borgarfirði á fyrri hluta síð-
ustu aldar. Sýningarstjóri er Elísa-
bet Gunnarsdóttir safnstjóri Lista-
safns ASÍ.
Hallsteinssalur er í Safnahúsinu
að Bjarnarbraut 4-6 í Borgarnesi.
Opið er til kl. 17.00 á opnunardag-
inn og eftir það 13.00-18.00 virka
daga og 13.00 - 17.00 um helgar.
Ókeypis aðgangur er að sýningunni
en söfnunarbaukur er á staðnum.
mm
Árshátíð miðstigs Grunnskóla Snæ-
fellsbæjar var haldið í félagsheim-
ilinu Klifi síðastliðinn fimmtudag.
Þar sýndu börnin leikritið Bláa
hnöttinn eftir Andra Snæ Magna-
son fyrir fullu húsi gesta. Alls tóku
55 börn þátt í leikritinu og að sögn
kennara tók undirbúningurinn um
einn mánuð og föndruðu börnin
ásamt kennurum leikmuni.
Leikritið Blái hnötturinn hefur
verið þýtt á um 30 tungumál en það
fjallar um að lengst úti í geimnum
búa ótal börn sem fullorðnast ekki.
Þetta eru eiginlega villibörn því eng-
inn segir þeim fyrir verkum. Börn-
in sofna þar sem þau verða þreytt
og borða þegar þau eru svöng, en
leika sér þar sem þeim dettur í hug.
Eitt kvöldið þegar Brimir og Hulda
eru stödd í Svörtufjöru birtist
stjarna á himni sem stefnir beint á
þau! Stjarnan lendir í fjörunni með
mikilli sprengingu en í reyknum
mótar fyrir skuggalegri veru sem
starir út í myrkrið. Þá hefst hættu-
legt ævintýri sem leiðir börnin um
myrka skóga, djúpa dali og loftin
blá. Reynir þá sem aldrei fyrr á vin-
áttu og ráðsnilld barnanna á bláa
hnettinum. Meðfylgjandi mynd var
tekin á sýningu miðstigs GSNB á
fimmtudaginn. af
Í gær voru gerðar gasmælingar við
Eldvörpin á Reykjanesskaga. Slík-
ar mælingar eru nú gerðar vikulega
sem hluti af viðbragði vegna land-
riss við Þorbjörn. Breytinga hefur
orðið vart og vilja Veðurstofan og
Almannavarnadeild Lögreglunn-
ar vara við hellaskoðun á svæð-
inu en mælingar sýndu lífshættu-
leg gildi á koltvísýringi og súrefn-
isleysi í helli. Margir hellar eru á
svæðinu, en hellirinn sem um ræð-
ir er við bílstæði þar sem vinsælt
er að leggja upp í skoðun á Eld-
vörpunum.
Enghlish:
Yesterday gasses were measured
near the volcanic cones and craters
at Eldvörp on the Reykjanes pen-
insula. Gas levels are now monito-
red and weekly measurements are
carried out as a part of the cont-
ingency plan implemented in res-
ponse to unrest and uplift of gro-
und around the MT. Thorbjörn.
Changes in gas levels have been de-
tected. The Icelandic MET Office
and the Department of Civil Pro-
tection and Emergency Manage-
ment and strongly advice aga-
inst visiting and exploring caves
in the area. Yesterday’s measure-
ments shoved deathly levels of car-
bon dioxide (CO2) and lack of ox-
ygen in a cave. Numerous caves are
in the area, the cave in question is
close to a parking lot that is a po-
pular stop to embark on exploring
the volcanic cones and craters.
Líf og fjör á bolludeginum
í Kallabakaríi
Landslag væri lítils virði...
Opnuð sýning landslagsmynda úr safneign Listasafns Íslands
Miðstig GSNB sýndi Bláa hnöttinn
Varað við hellaskoðun á Reykjanesi