Skessuhorn


Skessuhorn - 26.02.2020, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 26.02.2020, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 2020 31 Gleðilegt heilsuræktarár 2020 Morguntrimm • spinning • hádegispúl • átakstímar • sundleikfimi • leiðsögn í þreksal Opið alla virka daga kl. 6.00 – 22.00 • Laugardaga og sunnudaga kl. 9.00 – 18.00 Verið velkomin Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi - www.borgarbyggd.is S K E S S U H O R N 2 02 0 Nýkrýndum bikarmeisturum Skallagríms var kippt rækilega nið- ur á jörðina síðastliðið miðviku- dagskvöld, þegar liðið steinlá gegn Íslandsmeisturum Vals á útivelli, 107-41. Keira Robinson, Emilie Hesseldal og Maja Michalska gátu ekki leikið með Skallagrími í leikn- um, en þær hafa verið lykilmenn í liði Borgnesinga í vetur og fasta- menn í byrjunarliðinu. Hafði það sitt að segja um úrslit leiksins. Skallagrímskonur höfðu yfir- höndina í upphafi leiks, komust mest fjórum stigum yfir og leiddu 8-9 þegar fyrsti leikhluti var hálfn- aður. Þá komust Valskonur yfir og létu forystuna ekki af hendi það sem eftir lifði leiks. Valur hafði 14 stiga forskot eftir upphafsfjórðung- inn, 28-14 og liðið var komið 30 stigum yfir í hálfleik, 52-22. Skallagrímskonur fundu sig eng- an veginn í leiknum, skoruðu að- eins átta stig í öðrum leikhluta, níu í þeim þriðja og tíu í fjórða leik- hluta. Á meðan skoruðu Valskonur nánast að vild og forysta þeirra óx jafnt og þétt allt til leiksloka. Þeg- ar lokaflautan gall munaði hvorki meira né minna en 66 stigum á lið- unum. Valur sigraði með 107 stig- um gegn 41 stigi Skallagríms. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var atkvæðamest í liði Skallagríms með 17 stig og níu fráköst. Gunnhildur Lind Hansdóttir skoraði tólf stig og tók sex fráköst, Árnína Lena Rúnarsdóttir var með sex stig, Ingi- björg Rósa Jónsdóttir skoraði fjög- ur stig og Mathilde Colding-Poul- sen skoraði tvö. Helena Sverrisdóttir skoraði 27 stig fyrir Val og tók fimm fráköst. Kiana Johnson var með 16 stig, sex stoðsendingar, fimm fráköst og fimm stolna bolta. Dagbjört Dögg Karlsdóttir skoraði 14 stig og þær Hallveig Jónsdóttir og Dagbjört Samúelsdóttir skoruðu tólf stig hvor. Skallagrímskonur hafa 24 stig í fjórða sæti deildarinnar, jafn mörg og Keflvíkingar í sætinu fyrir neð- an en tveimur stigum á eftir Hauk- um. Skallagrímur og Haukar áttu að mætast síðastliðinn laugardag, en leiknum var frestað til 1. mars vegna veikinda sem herjuðu á leik- mannahóp Skallagríms. Borgnes- ingar leika því næst gegn Grinda- vík á útivelli í kvöld, miðvikudaginn 26. febrúar. kgk/ Ljósm. Skallagrímur. Skagamenn unnu nauman sigur á liði Hrunamanna þegar liðin mætt- ust í 2. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Akra- nesi. Eins mjótt var á mununum og hægt er, því þegar lokaflautan gall höfðu Skagamenn skorað 80 stig gegn 79 stigum gestanna og fóru því með eins stigs sigur af hólmi. Eftir leikinn situr ÍA í tíunda sæti deildarinnar með tíu stig. Liðið hefur fjögurra stiga forskot á Leikni R. en er tveimur stigum á eftir Stál- úlfi og Njarðvík B í sætunum fyr- ir ofan. Næst leikur ÍA gegn Val B á útivelli föstudaginn 28. febrúar næstkomandi. kgk/ Ljósm. úr safni/ jho. Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Hamri, 108-79, þegar lið- in mættust í 1. deild karla í körfu- knattleik á föstudagskvöld. Snæfellingar voru öflugri í upp- hafi leiks, komust í 4-11 en þá tóku heimamenn við sér. Þeir náðu for- ystunni í stöðunni 18-17 og leiddu með fjórum stigum eftir fyrsta leik- hluta, 29-25. Snæfellingar byrjuðu betur í öðrum fjórðungi. Þeir kom- ust yfir í stöðunni 31-32 áður en Hvergerðingar náðu forystunni að nýju. Um miðbik leikhlutans náðu heimamenn yfirhöndinni í leikn- um og stjórnuðu ferðinni eftir það. Hamar leiddi með 15 stigum í hálf- leik, 61-46. Snæfellingar náðu nokkrum sinnum að minnka muninn í ná- lægt tíu stigum í þriðja leikhluta, en komust ekki nær. Hamar leiddi með 13 stigum eftir þrjá leikhluta, 79-66 og þeir juku forskot sitt jafnt og þétt í lokafjórðungnum. Þeg- ar lokaflautan gall höfðu Ham- arsmenn skoraði 108 stig gegn 79 stigum Snæfellinga. Ísak Örn Baldursson var at- kvæðamestur í liði Snæfells með 20 stig og sjö fráköst. Brandon Ca- taldo skoraði 17 stig og tók ellefu fráköst, Aron Ingi Hinriksson var með 16 stig, Guðni Sumarliðason skoraði tólf stig, Benjamín Ómar Kristjánsson var með sjö stig, Vikt- or Brimnir Ásmundarson fjögur og Eiríkur Már Sævarsson þrjú. Ragnar Jósef Ragnarsson var at- kvæðamestur heimamanna með 24 stig, sex stoðsendingar og fimm fráköst. Pálmi Geir Jónsson skor- aði 22 stig og tók átta fráköst, Björn Ásgeir Ásgeirsson var með 22 stig einnig og fimm stoðsend- ingar, Michael Philips skoraði 19 stig og tók níu fráköst og Ísak Sig- urðarson var með ellefu stig og fimm stoðsendingar. Snæfellingar verma botnsæti deildarinnar með fjögur stig, jafn mörg og Sindri í sætinu fyr- ir ofan en tveimur stigum á eft- ir Skallagrími. Næsti leikur Snæ- fells er gegn Hetti á föstudaginn, 28. febrúar. Hann verður leikinn í Stykkishólmi. kgk Snæfellskonur unnu góðan útisig- ur á Breiðabliki, 77-91, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á föstudag. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku Snæfells- konur stjórn leiksins í sínar hendur í þeim síðari og sigruðu að lokum örugglega. Snæfell skoraði fyrstu sjö stig leiksins en Breiðablik jafnaði met- in snemma leiks. Eftir það fylgd- ust liðin að og skiptust á að leiða. Heimakonur voru tveimur stigum yfir þegar upphafsfjórðungurinn var úti, 24-22. Snæfellskonur jöfn- uðu snemma í öðrum leikhluta og náðu síðan fjögurra stiga forskoti. Blikar náðu smá rispu um miðj- an leikhlutann, komust stigi yfir en Hólmarar áttu lokaorðið í fyrri hálfleik og leiddu með fimm stigum í hléinu, 38-43. Snæfellskonur héldu nokkurra stiga forskoti lengst af í þriðja leik- hluta. Undir lok hans bættu þær aðeins við forskot sitt og höfðu átta stiga forystu fyrir lokafjórðung- inn, 56-64. Þar juku þær forystuna hægt en örugglega. Snæfell lék vel í fjórða leikhluta og sigri liðsins var aldrei ógnað. Lokatölur urðu 77-91, Snæfelli í vil. Amarah Coleman var atkvæða- mest í liði Snæfells með 30 stig og fimm fráköst. Emese Vida skoraði 14 stig og tók 13 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir var með tólf stig og sex fráköst, Gunnhild- ur Gunnarsdóttir skoraði tólf stig einnig og gaf fimm stoðsending- ar, Veera Pirrtinen skoraði ellefu stig, Anna Soffía Lárusdóttir var með átta stig og þær Tinna Guð- rún Alexandersdóttir og Rebekka Rán Karlsdóttir skoruðu tvö stig hvor. Danni Williams átti stórleik í liði Breiðabliks. Hún skoraði 38 stig og tók níu fráköst. Fanney Lind Thomas skoraði ellefu stig en aðrar höfðu minna. Snæfell siglir lygnan sjó í sjötta sæti deildarinnar með 14 stig, átta stigum meira en Breiðablik en tíu stigum á eftir Skallagrími. Næsti leikur Snæfells er gegn Íslands- meisturum Vals í Stykkishólmi í kvöld, miðvikudaginn 26. febrú- ar. kgk Bikarmeistararnir fengu skell Eins stigs sigur ÍA Amarah Coleman fór fyrir liði Snæfells sem vann góðan útisigur á Breiðabliki. Ljósm. úr safni/ sá. Tóku stjórnina í síðari hálfleik Ísak Örn Baldursson var atkvæðamestur Snæfellinga í tapinu gegn Hamri. Ljósm. úr safni/ sá. Snæfell tapaði í Hveragerði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.