Skessuhorn


Skessuhorn - 26.02.2020, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 26.02.2020, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 202022 Síðastliðinn fimmtudag var boð- ið upp á kaffihús í rýminu framan við Tjörn á hjúkrunar- og dvalar- heimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Íbúum Brákarhlíðar ásamt gestum og gangandi bauðst að koma við og eiga huggulega stund í góðum fé- lagsskap og gæða sér á kökum og brauðtertum. Vignir Helgi Sigur- þórsson spilaði og söng gamla slag- ara. Gestir, íbúar og starfsfólk væru hæstánægðir með framtakið og vel var mætt. Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tilefni. mm Ársþing Knattspyrnusambands Ís- lands var haldið í Klifi í Ólafsvík um síðustu helgi, það 74. í röðinni. Að loknum þingstörfum fór lokahóf þingsins fram en þar voru veittar ýmsar viðurkenningar. Var Lúðvík S. Georgssyni færður Heiðurskross KSÍ fyrir störf sín en líf hans hef- ur verið samofið knattspyrnunni og knattspyrnuhreyfingunni frá unga aldri. Einnig voru fjórar landsliðs- konur heiðraðar fyrir að hafa náð þeim árangri að leika 100 landsleiki með A landsliðinu. Það voru þær Sara Björk Gunnarsdóttir, Hall- bera G. Gísladóttir, Fanndís Frið- riksdóttir og Rakel Hönnudóttir. Þær stöllur eiga þó alveg örugglega eftir að bæta mun fleiri landsleikj- um í safnið enda enn í eldlínunni. Fleiri viðurkenningar voru veittar og hlaut Völsungur jafnréttisverð- laun KSÍ, FH dómaraverðlaun KSÍ og Ungmennafélag Langnesinga hlaut grasrótarverðlaun KSÍ. Í tengslum við ársþingið tilkynnti KSÍ þá ákvörðun sína að gera kröfu um að hlutfall kvenna verði að minnsta kosti 30% í stjórnum og nefndum innan KSÍ innan tveggja ára. Þingið þótti hafa heppnast mjög vel og allir sem komu að því og þinggestir ánægðir með hvernig til tókst bæði hvað varðar skipulag, gistingu og annan aðbúnað í Snæ- fellsbæ. Í tengslum við svona þing þarf að fara fram mikil og góð und- irbúningsvinna en í undirbúnings- nefnd fyrir Víking Ólafsvík voru þau Ólafur Hlynur Steingrímsson, Hilmar Hauksson og Sigrún Ólafs- dóttir og voru þeim færðar þakkir fyrir sitt framlag. þa Samtök iðnaðarins vilja koma á framfæri staðreyndum um sölu á upprunaábyrgðum raforku úr landi í kjölfar þess að forstjóri Landsvirkj- unar beindi spjótum sínum að sam- tökunum þar sem gætir misskiln- ings í málflutningi. „Það er mat SI að með sölu upprunaábyrgða úr landi sé ímynd Íslands sem lands endurnýjanlegrar orku teflt í tví- sýnu en samkvæmt opinberum töl- um um orkusamsetningu mætti ætla að hér á landi væri uppruni raforku 55% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarn- orka og einungis 11% endurnýjan- leg orka þegar staðreyndin er sú að 99,9% raforkuframleiðslunnar er endurnýjanleg orka,“ segir í frétt Samtaka iðnaðarins. „Afstaða SI til sölu uppruna- ábyrgða úr landi hefur verið skýr um árabil og lýtur sú afstaða að heildarhagsmunum enda eru það skýrir hagsmunir allra félagsmanna Samtaka iðnaðarins og raunar út- flutningsgreina almennt að sam- keppnisforskot Íslands sem land endurnýjanlegrar orku sé tryggt. Samtökin taka undir sjónarmið þá- verandi iðnaðarráðherra árið 2016 um að brýnt sé að staðinn sé vörður um þá ímynd og staðreynd að á Ís- landi sé eingöngu framleidd og seld endurnýjanleg orka. Lausnin felst í því að hætta sölu upprunaábyrgða úr landi. Þannig er ímynd Íslands ekki teflt í tvísýnu.“ Árið 2016 gaf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið út skýrslu um upprunaábyrgðir í íslensku samhengi. Í skýrslunni var á það bent að sala upprunaábyrgða úr landi geti skaðað ímynd Íslands, þ.e. þá ímynd að orkuframleiðsla landsins sé hrein og endurnýjanleg (og þar með orkunotkun). Í frétt ráðuneytisins sagði: „Ef markmið stjórnvalda er að tryggja ímynd Ís- lands og að framsetning á raforku- sölu á Íslandi sé með þeim hætti að hér sé eingöngu framleidd og seld endurnýjanleg raforka, þá virð- ist sala orkufyrirtækja á uppruna- ábyrgðum úr landi ekki samræmast því markmiði.“ Samkvæmt því var mat þáverandi iðnaðarráðherra að mikilvægt væri að í eigendastefnu þeirra orkufyrirtækja sem eru í eigu hins opinbera verði lögð áhersla á mikilvægi þess að standa vörð um þá ímynd að á Íslandi sé eingöngu framleidd og seld endurnýjanleg orka, og það sé hluti af markaðs- setningu Íslands og íslenskra fyrir- tækja, sem og almennri orkustefnu. Samtök iðnaðarins hafa árlega frá 2016 varað við hættunni sem felst í því að selja upprunavottun raforku úr landi. „Af hverju að selja græna ímynd frá okkur fyrir brotabrot af árlegum hagnaði orkufyrirtækja,“ hefur verið spurt. mm Boðið á kaffihús í Brákarhlíð Guðni Bergsson forseti KSÍ í ræðustól. Vel heppnað Ársþing KSÍ í Ólafsvík Horft yfir salinn í Klifi. Vilja að hætt verði sölu upprunaábyrgða úr landi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.