Skessuhorn


Skessuhorn - 26.02.2020, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 26.02.2020, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 202030 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Ætlar þú að fá þér saltkjöt og baunir í dag? Spurni g vikunnar (Spurt á sprengidaginn á Akranesi) Emelía Elín Magyar „Ég ætla að fá mér saltkjötið en má ekki borða baunirnar“ Guðmundur Hannesson „Já, er á leiðinni í það“ Sigvaldi Loftsson „Já“ Breki Harðarson og Friðrika Ína Hjartardóttir Breki: „Nei, held ekki“ Friðrika Ína: „Örugglega ekki“ Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Hlutverk og ábyrgðarsvið: • Ber ábyrgð á íþrótta-, æskulýðs- og tómstunda- málum í Snæfellsbæ • Hefur umsjón með íþróttamannvirkjum í Snæfellsbæ og sér um starfsmannahald í íþróttahúsi, sundlaug og félagsmiðstöð • Fjárhagsáætlanagerð og fjárhagslega umsýsla • Skipulag hátíða á vegum Snæfellsbæjar í samvinnu við markaðs- og kynningarfulltrúa • Situr fundi íþrótta- og æskulýðsnefndar og ungmennaráðs • Stendur einstaka vaktir í íþróttahúsi og sundlaug Menntunar- og hæfniskröfur: • Æskilegt að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hafi háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af sambærilegum verkefnum • Reynsla af stjórnun verkefna og starfsmannahalds • Frumkvæði og metnaður er kostur • Reynsla og þekking á stjórnsýslu og málefnum sveitarfélaga er kostur • Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni • Góð almenn tölvukunnátta Snæfellsbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í 100% starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu, reynslu og áhuga á íþrótta- og æskulýðsmálum, forvörnum og ungmennastarfi. Við hvetjum alla, óháð kyni, til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, eigi síðar en 1. apríl. Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu. Umsækjendur eru beðnir að senda umsókn á neðangreind netföng. Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsækjendur eru beðnir að tilgreina a.m.k. tvo umsagnaraðila í umsókn sinni. Öllum umsóknum verður svarað. Snæfellsbær áskilur sér rétt til að taka eða hafna öllum umsóknum. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri, kristinn@snb.is Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, lilja@snb.is Snæfellsbær | Klettsbúð 4 | 433 6900 | snb.is Opin fundur undir yfirskriftinni „Gerum Ísland heilt á ný - kvót- ann heim,“ var haldinn á Sker res- taurant í Ólafsvík síðastliðinn laug- ardag. Þokkalega var mætt á fund- inn en að honum stóðu Gunn- ar Smári Egilsson blaðamaður og Ögmundur Jónasson fv. ráðherra. Gunnar Smári fjallaði um kvóta- kerfið en hann talar fyrir róttækri uppstokkun á því og að kvóta verði skilað heim í byggðir landsins. Var Kristinn Jón Friðþjófsson fenginn til að segja frá því hvernig veiðum var háttað áður en kvótakerfið var sett á. Miklar umræður sköpuðust á fundinum og ekki allir sammála um málefnið eins og við var að bú- ast. þa Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu- kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, komst ekki í gegnum niðurskurðinn á fyrsta móti ársins á Evrópumótaröðinni sem hófst í Ástralíu á fimmtudag. Gengi Valdísar var upp og ofan báða hringina sem hún spilaði í mótinu. Fyrri hringnum lauk hún á fimm höggum yfir pari og þeim síðari á fjórum yfir pari. Samtals lék hún því á níu yfir pari og komst ekki í gegnum niðurskurðinn í mótinu. kgk Eftir fjögurra stiga tap gegn sterku liði Vestra í Borgarnesi síðastið- inn fimmtudag léku Skallagríms- menn aftur í 1. deild karla í körfu- knattleik á mánudaginn þegar þeir tóku á móti liði Selfyssinga. Borg- nesingar voru betri framan af fyrri hálfleik, en þá var komið að Sel- fyssingum að leiða leikinn. Spenna var á lokamínútunum en að end- ingu fór svo að gestirnir höfðu sjö stiga sigur, 78-85. Skallagrímsmenn voru miklu betri í upphafi leiks. Þeir skoruðu fyrstu ellefu stig leiksins og héldu Selfyssingum stigalausum fyrstu fimm mínútur. Gestirnir skoruðu aðeins ellefu stig í upphafsfjórð- ungnum gegn 26 stigum Borg- nesinga. Taflið snerist við í öðrum fjórðungi. Borgnesingar áttu erf- itt uppdráttar og skoruðu bara 13 stig í leikhlutanum. Selfyssingar minnkuðu muninn jafnt og þétt og komust síðan yfir á lokamínútum fyrri hálfleiks og leiddu í hléinu, 40-39. Gestirnir höfðu yfirhöndina eftir hléið, leiddu allan þriðja leikhlut- ann en Borgnesingar gættu þess að missa þá ekki of langt fram úr sér. Selfoss hafði átta stiga forskot fyr- ir lokafjórðunginn, 65-57. Borg- nesingar voru ákveðnir í lokafjórð- ungnum. Þeir minnkuðu muninn í eitt stig en Selfyssingar sigu fram úr að nýju. Aftur gerðu Borgnes- ingar smá atlögu að forystu gest- anna undir lokin, en komust ekki nær en sem nam fimm stigum. Sel- foss sigraði að lokum með sjö stiga mun, 78-85. Marinó Þór Pálmason var stiga- hæstur Skallagrímsmanna í leikn- um með 20 stig og sex fráköst. Kenneth Simms skoraði 16 stig, reif niður 20 fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Kristján Örn Óm- arsson var með 16 stig og sex frá- köst, Davíð Guðmundsson skoraði tíu stig, Kristófer Gíslason skoraði sjö stig, Isaiah Coddon var með fjögur stig, Bergþór Ægir Rík- harðsson skoraði þrjú og Hjalti Ás- berg Þorleifsson skoraði tvö stig. Christian Cunningham var at- kvæðamestur Selfyssinga með 21 stig og 17 fráköst. Kristijan Vlado- vic skoraði 20 stig og stal átta bolt- um, Arnór Bjarki Eyþórsson var með 16 stig, Maciek Klimaszewski skoraði ellefu og Alexander Gager var með tíu stig og sjö fráköst. Skallagrímur situr í sjöunda sæti deildarinnar með sex stig, tveimur stigum meira en Sindri og Snæfell í sætunum fyrir neðan en átta stigum á eftir Selfyssingum. Skallagrímur og Selfoss mætast aftur í deildinni næstkomandi fimmtudagskvöld, 27. febrúar. Sá leikur verður spil- aður á Selfossi. kgk/ Ljósm. úr safni/ Skallagrímur. Frummælendurnir Ögmundur og Gunnar Smári. Héldu fund um kvótamál í Ólafsvík Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur. Ljósm. úr safni. Komst ekki áfram í Ástralíu Tvö töp í vikunni

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.