Skessuhorn - 26.02.2020, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRúAR 2020 15
Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar:
Skipulags- og umhverfissvið
Störf flokkstjóra við vinnuskólann, fyrir 20 ára og eldri•
Störf við rekstur og umhirðu á opnum svæðum, fyrir 18 ára og eldri•
Skóla- og frístundasvið
Sumarafleysing, karl og kona, í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum•
Sumarafleysing í Guðlaugu á Langasandi•
Sumarstörf hjá Akraneskaupstað
Nánari upplýsingar um störfin ásamt umsóknareyðublöðum má
finna á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is/lausstorf
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Aðalfundur hjá Kúabændafé-
laginu Baulu fór fram miðvikudag-
inn 19. febrúar og voru þar nokkr-
um kúabúum veittar viðurkenning-
ar fyrir ræktunarstörf. Kúabænda-
félagið Baula nær frá sunnanverðu
Snæfellsnesi, um Mýrar og Borg-
arfjörð norðan Skaðsheiðar og var
félagið stofnað árið 2011, en hlut-
verk félagsins er að vinna að sam-
eiginlegum hagsmunum kúabænda
á þessu svæði.
Á fundinum fór Arnar Árna-
son, formaður Landssamband kúa-
bænda, yfir starf samtakanna síðast-
liðið ár og það sem er framundan.
„Á síðasta ári voru endurskoðaðir
búvörusamningar veigamikið verk
og því ekki lokið því nokkur mál
voru sett í nefndir sem eiga að skila
af sér í maí 2020. Hagsmunagæsla
er veigamikið hlutverk samtakanna,
ásamt samskiptum við ríkisvaldið
sem er oft á tíðum lítt sýnileg vinna
en bæði drjúg og mjög mikilvæg
fyrir greinina,“ segir í tilkynningu
frá félaginu. Jóhann Nikulásson
frá Stóru-Hildisey í Landeyjum
kom á fundinn og fór yfir tillögur
að breytingum á félagskerfi bænda,
sem lagt verður fyrir búnaðarþing
í byrjun mars. Þá voru nokkrar til-
lögur samþykktar á fundinum sem
verður síðan beint til aðalfundar
Landssambands kúabænda.
Verðlaun og viðurkenn
ingar 2019:
Afurðahæstu kúabúin 2019:
1. Hvanneyri með 8.262 kg/árskú
2. Furubrekka með 7.696 kg/árskú
3. Glitstaðir með 7.654 kg/árskú.
Afurðahæstu kýr 2019:
1. Baughúfa frá Hvanneyri 11.661
kg mjólk
2. Nöss frá Laxárholti II 11.569 kg
mjólk
3. Gata frá Helgavatni 10.741 kg
mjólk.
Hæst dæmdu kýr 2019:
1. Skeifa frá Steinum með 293,8
stig
2. Leit frá Lundi með 293,4 stig
3. Ferming frá Hjarðarfelli með
292,6 stig.
arg
F.v. Hafþór Finnbogason Hvanneyri, Egill Gunnarsson Hvanneyri, Guðrún Sigurjónsdóttir Glitstöðum, Karítas Hreinsdóttir Helgavatni, Unnsteinn Jóhannsson
Laxárholti, Gunnar Guðbjartsson Hjarðarfelli og Jón Gíslason Lundi. Ljósm. aðsend.
Verðlaun veitt á aðalfundi Kúabændafélagsins Baulu