Skessuhorn - 26.02.2020, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 2020 9
Þaktúður•
Hurðastál•
Áfellur•
Sérsmíði•
Viðgerðir•
Málmsuða•
www.blikkgh.is • blikkgh@blikkgh.is • Akursbraut 11b • 431-2288
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra hef-
ur staðfest tillögur að fimm nýj-
um verndarsvæðum í byggð. „Til-
gangur slíkra svæða er að stuðla að
verndun byggðar vegna svipmóts,
menningarsögu eða listræns gild-
is þeirra,“ eins og segir í tilkynn-
ingu frá ráðuneytinu. Tillögur um
verndarsvæði koma frá viðkomandi
sveitarfélagi, en Minjastofnun veit-
ir sveitarfélögum ráðgjöf við und-
irbúning tillagna og skilar einnig
umsögn sinni til ráðherra. Svæð-
in sem um ræðir nú eru framdal-
urinn í Skorradal, gamli bæjarhlut-
inn á Sauðárkróki, vesturhluti Vík-
ur í Mýrdal, Þórkötlustaðahverfi í
Grindavík og bæjarhlutarnir Pláss-
ið og Sandurinn á Hofsósi í Skaga-
firði.
„Menningararfur okkar Íslend-
inga er fjölbreyttur og byggð svæði
eru hluti hans. Verndarsvæði í
byggð geta meðal annars haft sögu-
legt, félagslegt eða fagurfræðilegt
gildi fyrir fyrri, núlifandi og kom-
andi kynslóðir. Fyrstu verndar-
svæðin voru staðfest árið 2017 og
nú eru þau orðin tíu talsins. Ég hvet
landsmenn til þess að heimsækja
þessi svæði og kynna sér merkilega
sögu þeirra og þýðingu – bæði þá
og nú,“ segir ráðherra.
Um framdalinn í Skorradal seg-
ir í umsögn: „Svæðið afmarkast við
heimatún bæjanna Háafells, Fitja,
Sarps, Efstabæjar, Bakkakots og
Vatnshorns. Einnig nær verndin
til gömlu þjóðleiðanna sem liggja
um lönd fyrrgreindra bæja. Um er
að ræða fornar þingleiðir, biskupa-
og prestaleiðir m.a. tengdar Fitja-
kirkju og Þingvöllum, gamlar ver-
leiðir milli landshluta og leiðir til
aðdrátta sem lengst af lágu til Hval-
fjarðar.“
mm
Straumi var hleypt á nýjan jarð-
streng milli Ólafsvíkur og Grund-
arfjarðar í fyrsta sinn í síðustu viku.
Sem kunnugt er bilaði rafmagns-
línan milli Vegamóta og Ólafsvíkur
þegar staurastæða í henni brotnaði
í Bláfeldarhrauni í Staðarsveit, eftir
að hún fékk á sig 50 m/s hvassa vind-
hviðu rétt fyrir kl. 7:00 á fimmtu-
dagsmorgun. „Þá fórum við strax í
að setja varavélar í gang og tengja
dreifilínuna milli Grundarfjarðar
og Ólafsvíkur. Þannig komum við
rafmagni á Snæfellsbæ með tak-
mörkuðu varaafli og erum með alla
notendur tengda inn á jarðstreng-
inn núna,“ segir Björn Sverrisson
í samtali við Skessuhorn, en hann
er deildarstjóri netreksturs hjá Ra-
rik á Vesturlandi. „Nú fær Snæfells-
bær því rafmagn um nýja strenginn
frá Grundarfirði, en að öllu jöfnu
fengi hann rafmagn með línunni
frá Vegamótum. Viðgerð á línunni
lauk rétt fyrir 23:00 á fimmtudags-
kvöldið og hún er til taks, ef eitt-
hvað kæmi upp á núverandi teng-
ingu,“ bætir hann við.
Aðspurður hveðst Björn eiga von
á því að þessi tenging um nýja jarð-
strenginn sé komin til að vera. „Það
eru náttúrulega ákveðin tímamót
fólgin í þessu. Aðeins er smá vinna
eftir hjá Rarik við að tengja nýja
19 kV háspennurofa og hjá Lands-
neti við að tengja línuna Vegamót-
Ólafsvík við nýtt tengivirki í Ólafs-
vík. Þá verður komin 66 kV hring-
Straumi hleypt á nýjan jarðstreng á Snæfellsnesi
Rafmagnslínur um staura, sem smám saman heyra sögunni til. Ljósm. Rarik.
tenging raforku á Nesinu,“ segir
hann og bætir því við að ánægja
ríki hjá Rarik með að rafmagni hafi
verið hleypt á nýja jarðstrenginn.
„Eins og veðrið er búið að vera þá
erum við því mjög fegnir. Ef upp
kemur önnur bilun á línunni milli
Ólafsvíkur og Vegamóta þá höfum
við nýja strenginn frá Grundar-
firði til að sjá Snæfellsbæ fyrir raf-
magni, svo fremi sem 66 kV línan
frá Vatnshömrum að Vegamótum
sé í lagi, því allt Sæfellsnesið er á
þeim hlekk,“ segir Björn.
kgk
Framdalurinn er
meðal fimm nýrra
verndarsvæða
Horft til vesturs eftir framdalnum í Skorradal.