Skessuhorn - 26.02.2020, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 202012
Kærunefnd útboðsmála úrskurð-
aði í máli Vátryggingafélags Íslands
gegn Borgarbyggð 18. febrúar síð-
astliðinn. Nefndin úrskurðaði að
Borgarbyggð skyldi fella út úr út-
boðsskilmálum ákvæði um að bjóð-
andi starfræki starfsstöð í sveitarfé-
laginu.
Borgarbyggð hafði í skilmálum
útboðsins gert kröfu um að bjóð-
andi starfræki starfsstöð í sveitar-
félaginu með starfsmanni a.m.k.
16 tíma á viku. Skyldi henni kom-
ið á sex mánuðum eftir undirrit-
un samnings við bjóðanda og hún
starfrækt út samningstímann, hið
minnsta.
VÍS vildi meina að með ákvæð-
inu væri fyrirfram verið að útiloka
ákveðin fyrirtæki á grundvelli bú-
setusjónarmiða. Slíkt væri óheimilt
og var kærunefndin því sammála.
„Að mati kærunefndar útboðsmála
er framangreind krafa til þess fallin
að mismuna fyrirtækjum sem veita
vátryggingaþjónustu á grundvelli
þess hvar starfsstöð þeirra er stað-
sett,“ segir í úrskurði nefndarinnar.
Nefndin taldi kröfu Borgarbyggð-
ar, sem einkum lúti að aðgengi að
persónulegri þjónustu og þekkingu
á staðháttum innan sveitarfélagsins,
ekki geta réttlætt kröfuna að teknu
tilliti til eðlis innkaupanna, sem
snúast um kaup sveitarfélagsins á
vátryggingarþjónustu. Kærunefnd
hafnaði aftur á móti kröfu VÍS um
að láta í ljós álit sitt á skaðabóta-
skyldu sveitarfélagsins vegna máls-
ins. Borgarbyggð var gert hins
vegar gert að greiða VÍS 350 þús.
krónur í málskostnað.
Á fundi byggðaráðs Borgar-
byggðar 20. febrúar var fjallað um
úrskurðinn. Ráðið samþykkti að
fjarlægja ákvæðið úr skilmálum út-
boðsins og framlengja tilboðsfrest-
inn til 3. mars næstkomandi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ Óli Haukur.
Frá því er greint á vef Landssam-
taka sauðfjárbænda, saudfe.is, að
Kjötafurðastöð KS og Sláturhús
KVH hafa gefið út tilkynningu um
að greitt verð 6% uppbót á allt inn-
lagt dilkakjöt síðastliðið haust. Við
þessa uppbótargreiðslur reiknast
því meðal afurðaverð dilkakjöts
haustið 2019, 461 kr/kg hjá KS og
KVH. mm
Riðuveiki hefur verið staðfest á búi
í nágrenni Varmahlíðar í Skaga-
firði. Riðan greindist í sýni úr kind
frá bænum Grófargili í Varmahlíð
en á bænum eru nú um hundrað
fjár. Síðast greindist riða á þessu
svæði árið 2019 á bænum Álfta-
gerði. Matvælastofnun vinnur nú
að öflun upplýsinga og undirbún-
ingi aðgerða. „Bóndinn hafði sam-
band við Matvælastofnun þar sem
kindin sýndi einkenni riðuveiki.
Kindin var skoðuð, síðan aflífuð
og sýni tekin og send á Tilrauna-
stöð Háskóla Íslands að Keldum
þar sem riðuveiki var staðfest. Búið
er í Húna- og Skagahólfi og í því
hólfi hefur riðuveiki komið upp á
tuttugu búum á undanförnum 20
árum. Þetta er í fyrsta skiptið sem
riða greinist á bænum en árið 2016
greindist riða á bænum Brautar-
holti sem er næsti bær við Gróf-
argil. Riðuveiki hefur komið upp
á mörgum bæjum í Varmahlíð í
gegnum tíðina og má því segja að
um þekkt riðusvæði sé að ræða,“
segir í tilkynningu frá Mast.
Þetta er fyrsta tilfelli riðuveiki sem
greinist á árinu og í fyrra greindist
einnig eitt tilfelli. Fram til ársins
2010 greindist riða á nokkrum bæj-
um á landinu á hverju ári en engin
tilfelli hefðbundinnar riðu greind-
ust á árunum 2011-2014. „Riðan er
því á undanhaldi en þetta sýnir að
ekki má sofna á verðinum. Á und-
anförnum árum hafa sýni verið tek-
in við slátrun úr u.þ.b. þrjúþúsund
kindum á ári. Jafnframt hafa bænd-
ur verið hvattir til að senda hausa til
Keldna af fé sem drepst eða er lóg-
að heima vegna vanþrifa, slysa eða
sjúkdóma, eða hafa samband við
dýralækni um að taka sýni úr slíku
fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni
þar sem það eykur líkur á að finna
riðuna. Héraðsdýralæknir vinnur
nú að öflun faraldsfræðilegra upp-
lýsinga og úttektar á búinu til að
meta umfang aðgerða við förgun
fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst
fer málið í hefðbundið ferli hvað
varðar gerð samnings um niður-
skurð,“ segir í tilkynningunni.
mm
Á föstudag var undirritaður samn-
ingur milli Landbúnaðarháskóla
Íslands og atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytisins um þjónustu á
sviði rannsókna, þróunarvinnu og
sérhæfða ráðgjöf árin 2020 til 2023.
Það voru Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra og Ragnheiður Inga Þórar-
insdóttir, rektor LbhÍ, sem undir-
rituðu samninginn á Hvanneyri.
Samkvæmt samningnum felur
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið landbúnaðarháskólanum að
vinna að verkefnum er varða rann-
sóknir, þróun og nýsköpun á sviði
landbúnaðar og matvælafram-
leiðslu. Skólinn verður ráðuneytinu
til ráðgjafar og stundar rannsóknir,
nýsköpunar og þróunarstarf í land-
búnaði og umhverfisvísindum, á
þeim fræðasviðum sem samningur-
inn nær til. Þannig verður viðhald-
ið þekkingu sem hefur grundvall-
arþýðingu fyrir landbúnaðinn og
matvælaframleiðslu. Auk þess mun
skólinn sinna skilgreindum verk-
efnum fyrir ráðuneytið, samkvæmt
samningnum.
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
segir öflugar rannsóknir og mennt-
un mikilvægan þátt í framþróun
og framtíð landbúnaðar á Íslandi.
„Því er í mínum huga eitt stærsta
hagsmunamál íslensks landbúnað-
ar að efla Landbúnaðarháskóla Ís-
lands og því er þessi samningur af-
skaplega þýðingarmikill fyrir land-
búnað í heild sinni,“ segir ráðherra,
sem kveðst þakklátur skólanum fyr-
ir að taka vel í að sinna skilgreind-
um verkefnum fyrir ráðuneytið.
Ragnheiður Inga Þórarinsdótt-
ir, rektor LbhÍ, segir samning-
inn styðja vel við nýja stefnu LbhÍ
sem samþykkt var síðasta sumar.
„Þar er lögð áhersla á að stórauka
rannsóknir, nýsköpun, samstarf
við hagaðila og alþjóðlegt sam-
starf í því skyni að efla kennslu og
innviði skólans,“ segir hún. „Skól-
inn vinnur að því að fjölga vísinda-
mönnum við skólann sem og nem-
endum á öllum námsstigum, enda
gegnir landbúnaðarháskólinn lykil-
hlutverki í þeim mikilvægu þáttum
samfélagsins sem snúa að þróun
landbúnaðar, nýtingu náttúruauð-
linda, skipulagsmála, umhverfis- og
loftslagsmála,“ segir Ragnheiður
Inga.
kgk
Geta ekki gert kröfu um
starfsstöð í sveitarfélaginu
Frá undirritun samningsins á Hvanneyri. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor
LbhÍ og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ljósm.
Stjórnarráðið.
Samið við LbhÍ um ýmis verkefni
Stöplarit sem sýnir reiknað meðal afurðaverð til bænda eftir afurðastöðvum.
Heimild: saudfe.is
KS og KVH greiða
bændum 6% uppbót
Frá slátrun í sláturhúsi KS á Sauðárkróki. Ljósm. Feykir.
Nýtt tilfelli riðu
greint í Skagafirði