Skessuhorn - 26.02.2020, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 2020 13
Sími 455 54 00
postur@byggdastofnun.is
byggdastofnun.is
Átt þú rétt á styrk til jöfnunar
flutningskostnaðar?
Þeir sem geta sótt um styrk eru einstaklingar
og lögaðilar sem staðsettir eru fjarri
innanlandsmarkað eða útflutningahöfn og:
stunda framleiðslu á vörum sem falla
undir c-bálk ÍSAT2008
stunda framleiðslu á vörum sem falla
undir flokk 01.1 og/eða flokk 01.2 í a-
bálk ÍSAT2008 enda sé varan fullunnin
í söluhæfar umbúðir.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars.
Um styrkina gilda lög um svæðisbundna
flutningsjöfnun nr. 160/2011.
Nánari upplýsingar um styrkina má finna á
heimasíðu Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is)
Styrkir
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
0
Kynning á breytingu
á aðalskipulagi
Hvalfjarðarsveitar.
Skipulagslýsing-Móar
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann
11. febrúar 2020, að auglýsa skipulagslýsingu samkvæmt
1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland í gildandi aðalskipulagi.
Tillaga að aðalskipulagsbreytingu þar sem hluti svæðisins verður
skilgreindur sem verslunar-og þjónustusvæði, samhliða er unnin
tilllaga af deiliskipulagi fyrir svæðið.
Með skipulagslýsingu þessari er íbúum og öðrum hagsmunaaðilum
gefinn kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir sem
snúa að málefnum aðalskipulagsbreytinga.
Kynningarfundur verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar föstudaginn
28. febrúar á milli kl.10:00–12:00.
Athugasemdum/ábendingum skal skilað til skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3, 301 Akranesi, eða á netfangið
skipulag@hvalfjardarsveit.is ” merkt Móar” fyrir 27. mars 2020.
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2020
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudaginn 5. mars
Föstudaginn 6. mars
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE
SS
U
H
O
R
N
2
02
0
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Íslenska kokkalandsliðið vann til
tveggja gullverðlauna á Ólympíu-
leikum matreiðslumeistara, sem
haldnir voru í Stuttgart í Þýskalandi.
Keppni lauk á mánudaginn í síðustu
viku og daginn eftir var greint frá
sigri íslenska liðsins í síðari keppn-
isgreininni. Liðið fór því heim með
gullverðlaun í farteskinu í báðum
keppnisgreinum sínum.
Vestlendingar eiga að sjálfsögðu
sína fulltrúa í liðinu; Ísak Darra
Þorsteinsson frá Akranesi og Sindra
Guðbrand Sigurðsson frá Ólafs-
vík. Aðrir landsliðsmenn eru þau
Ísak Aron Jóhannsson, Snædís Jóns-
dóttir, Kristinn Gísli Jónsson, Jak-
ob Zarioh S. Baldvinsson og Snorri
Victor Gylfason. Þá má geta þess að
Snorri Victor rak áður Vog Country
Lodge á Fellsströnd í Dölum. kgk
Skipulags-, hafnar- og húsnæðis-
nefnd Reykhólahrepps leggur til að
samþykkt verði umsókn Vegagerð-
arinnar um framkvæmdaleyfi fyrir
Vestfjarðaveg, samkvæmt svokall-
aðri Þ-H leið um Teigsskóg. Málið
var tekið fyrir á fundi nefndarinnar
síðastliðinn fimmtudag. Hún sam-
þykkti með tveimur atkvæðum að
leggja til við sveitarstjórn að sam-
þykkja umsóknina, en einn nefnd-
armanna sat hjá og vísaði málinu til
afgreiðslu í sveitarstjórn Reykhóla-
hrepps. Sveitarstjórn fjallaði um
málið á fundi sínum síðdegis í gær,
þriðjudaginn 25. febrúar. Fundur-
inn var hins vegar ekki hafinn þeg-
ar Skessuhorn fór í prentun. kgk
Landsréttur þyngdi í síðuastu viku
dóm yfir konu á áttræðisaldri sem
stakk tengdason sinn með hnífi
á Akranesi í nóvember 2018. Var
konan sakfelld fyrir tilraun til
manndráps og dæmd til fimm ára
fangelsisvistar, en Héraðsdómur
Vesturlands hafði áður dæmt kon-
una í fjögurra ára fangelsi.
Eins og áður hefur verið greint frá
áttu atburðirnir sér stað þegar hún
passaði börn dóttur sinnar á heim-
ili hennar og tengdasonar á Akra-
nesi í nóvember 2018. Er hún sögð
hafa farið ölvuð inn í herbergi þar
sem tengdasonurinn svaf og stung-
ið hann þar með hnífi með tæp-
lega 20 sentímetra löngu blaði. Við
það hlaut maðurinn stungusár við
fjórða og fimmta rifjabil. Hnífurinn
virðist hafa runnið framhjá brjóst-
kassa og inn í bakvöðva. Áverkinn
olli skaða á tveimur litlum slagæð-
um og verulegri blæðingu, að því
er fram kemur í dómnum. Læknir
sem skoðaði brotaþola mat árás-
ina lífshættulega og sagði einung-
is heppni að hnífurinn hafi runnið
eftir rifjunum. Hann hefði auðveld-
lega getað farið á milli þeirra og inn
í brjóstholið með mun alvarlegri af-
leiðingum.
Konan neitaði sök og hélt því
fram að ekki hefði verið sannað að
hún hefði ráðist á tengdason sinn.
Hún var metin sakhæf á verknaðar-
stundu. Saksóknarar kröfðust þyng-
ingar refsingar við áfrýjun til Lands-
réttar. Refsing fyrir brot konunnar
væri að lágmarki fimm ára fangels-
isvist og féllst Landsréttur á það,
þar sem ekki hefði verið sýnt fram
á að réttlæta mætti að fara niður
fyrir þann refsiramma. Var hún því
dæmd í fimm ára fangelsi en gæslu-
varðhald sem konan hefur sætt frá
10. nóvember 2018 kemur til frá-
dráttar fangelsisvistinni. Landsrétt-
ur staðfesti skaðabótaúrskurð Hér-
aðsdóms Vesturlands, sem kveður
á um að konan skuli greiða mann-
inum rúmar 800 þúsund krónur
í skaðabætur auk vaxta. Konunni
var enn fremur gert að greiða tæp-
lega 5,5 milljóna króna sakarkostn-
að í héraði, en að öðru leyti greiðist
hann úr ríkissjóði.
kgk
Horft að Reykhólum. Ljósm. úr safni/ mm.
Leggja til að framkvæmdaleyfi verði veitt
Íslenska kokkalandsliðið ásamt Sigurjóni Braga Geirssyni, þjálfara liðsins, Birni Braga Bragasyni, forseta Klúbbs matreiðslu-
meistara og Fanneyju Dóru Sigurjónsdóttur varaforseta. Ljósm. Kokkalandsliðið.
Kokkalandsliðið með tvenn gullverðlaun
Þyngdi dóm yfir konu sem
stakk tengdasoninn