Skessuhorn


Skessuhorn - 26.02.2020, Side 14

Skessuhorn - 26.02.2020, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 202014 „Við sinnum þjónustu við miðlun- ar- og uppgjörskerfið Calypso fyr- ir fjármálastofnanir, sem felur með- al annars í sér prófanir, forritun, rekstur og almenna ráðgjöf,“ seg- ir Arnfinnur Teitur Ottesen í sam- tali við Skessuhorn. Hann stofn- aði Brambolt, sérhæft ráðgjafa- og tæknifyrirtæki, ásamt Stefáni B. Sigurðssyni í ársbyrjun 2019. Eru þeir tveir eigendur Brambolts. „Ég var að vinna hjá Calypso í Dan- mörku frá 2008 til 2013 og fór þá að vinna sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi þar í landi, allt þar til í árs- byrjun 2018 þegar ég og Stefán ákváðum að leiða formlega saman hesta okkar og fara út í það sem við erum að gera núna,“ segir Arnfinn- ur. Fyrsta stóra verkefni þeirra var að innleiða nýja útgáfu af Calypso hjá Arion banka síðastliðið sumar. Þar með var boltinn farinn að rúlla. En af hverju ákváðu þeir félagar að fara út í þennan rekstur til að byrja með? Arnfinnur segir að þeir hafi séð tækifæri í að nýta reynsluna til að þróa nýjar aðferðir og lausnir við utanumhald þessara kerfa. „Báðir höfðum við starfað í meira en 15 ár innan bankageirans og langaði að taka næsta skref,“ segir hann „Við höfum á okkar ferli kynnst starf- semi margra banka og fjármála- stofnana. Ég held að við höfum báðir eða hvor fyrir sig unnið fyrir nánast alla stóru bankana í Skandi- navíu með einhverjum hætti. Mest í Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi, en svo höfum við líka unnið fyrir banka í Þýskalandi,“ segir hann. Vilja vaxa á Akranesi Starfsmenn Brambolts eru þrír tals- ins í dag, en sem fyrr segir á tveim- ur stöðum í heiminum. Stefán starfar mest megnis í Dan- mörku en Arnfinnur á skrifstofu fyr- irtækisins á Akranesi, ásamt Bryn- dísi Ottesen ráðgjafa. Hún byrjaði hjá Brambolti nú eftir áramót, eftir tæpan áratug hjá Landsbankanum. Aðspurð telja Arnfinnur og Bryndís að fyrirtækið hafi alla burði til að vaxa með tíð og tíma og telja að sá vöxtur myndi þá einkum fara fram hér á landi. „Það yrði þá helst hér á Akranesi. Ég held að hér sé tæki- færi fyrir svona fyrirtæki að vaxa og dafna. Hér er fullt af hæfu fólki með góða reynslu sem vill örugg- lega frekar starfa í heimabænum ef það er í boði, í stað þess að keyra til Reykjavíkur á hverjum morgni. Eins og til dæmis Bryndís,“ seg- ir Arnfinnur og lítur á frænku sína sem tekur undir með honum. „Hér er líka hagkvæmara að fá íbúðar- húsnæði og skrifstofur,“ segir hún. „Við teljum líka að það leynist mik- il tækifæri í þessari miklu sérhæf- ingu okkar. Með því að nota okk- ar aðferðafræði og lausnir er hægt að auka sjálfvirkni og draga þannig umtalsvert úr kostnaði innan fjár- málageirans,“ segja þau Arnfinnur og Bryndís að endingu. kgk Laugardaginn 22. febrúar útskrifaði Vilhjálmur Egilsson rektor 69 nem- endur við hátíðlega athöfn. Nem- endahópurinn samanstóð af grunn- og meistaranemum úr viðskipta- deild og félagsvísinda- og lagadeild. Þetta var í fyrsta skipti sem nem- endur í diplómanámi í viðskipta- fræði og verslunarstjórnun eru út- skrifaðir frá skólanum, og flutti Ragnar Þór Ingólfsson, formað- ur VR stutta tölu að því tilefni, en námið er unnið í samstarfi við Há- skólann í Reykjavík og VR. Verðlaun og útskriftarræður útskriftarverðlaun í grunnnámi hlutu Helena Rós Tryggvadótt- ir í viðskiptadeild og Fanney Vals- dóttir í félagsvísinda- og lagadeild. Í meistaranámi hlutu útskriftarverð- laun þau Ásgrímur Már Friðriks- son og Hafdís Bjarnadóttir í við- skiptadeild og Inga María Ottós- dóttir í félagsvísinda- og lagadeild. Að auki fengu tveir nemendur felld niður skólagjöld á haustönn vegna framúrskarandi námsárangurs. Það eru þau Bjarni Heiðar Halldórsson í viðskiptadeild og Þórhildur Elínar- dóttir Magnúsdóttir í félagsvísinda- og lagadeild. Ræðumaður fyrir hönd grunn- nema viðskiptadeildar var Viktor Örn Guðmundson og fyrir hönd grunnnema félagsvísinda- og laga- deildar, Bergþór Bjarnason. Fyr- ir hönd meistaranema flutti Inga María Ottósdóttir ávarp. „Menntun er lífsstíll“ Í hátíðarræðu sinni kom Vilhjálm- ur Egilsson rektor inn á breyttar aðstæður í íslensku háskólasamfé- lagi. „Ég vil lýsa þessum breyting- um í háskólamenntun með því að segja: „Menntun er lífsstíll“. Mun fleiri stunda nám í íslenskum há- skólum en áður var. Á árinu 1997 voru 3% landsmanna skráðir í ís- lenska háskóla en 20 árum síðar var þetta hlutfall orðið 5,3% og nem- endum 29 ára og eldri hafði fjölgað um 230%. Nú hafa 44% Íslendinga á aldrinum 25-64 ára lokið háskóla- námi. Íslenskt samfélag hefur að þessu leyti gjörbreyst á örfáum ára- tugum og Háskólinn á Bifröst hefur líka breyst,“ sagði Vilhjálmur. Þá kom rektor einnig inn á að mikilvægt sé að skólar komi til móts við þarfir ört stækkandi og fjöl- breytts hóps nemenda í íslenskum háskólum. „Það getur heldur ekki verið kappsmál að allir fari í gegn- um nám á sama hraða. Bæði hent- ar sami námshraði ekki öllum út frá því hvernig fólk lærir best eða nýt- ir best tíma sinn í skóla. Og eins er það ekkert síðra fyrir samfélagið að fólk sé í vinnu og skóla á sama tíma. Þarf fólk ekki alltaf að vera eitthvað að læra í og með vinnunni hvort eð er þótt það sé ekki í skóla? En með því að fólk sé á vinnumarkaði og að greiða skatta á sama tíma og það lærir í skóla má ætla að það sé að skila meira til samfélagsins en þeir sem ekki vinna með skóla,“ sagði Vilhjálmur. Karlakórinn Söngbræður undir stjórn Viðars Guðmundssonar sá um söngatriði við útskriftina við undir- leik Birgis Þórissonar. Að athöfn lokinni þáðu gestir léttar veitingar. mm/te Arnfinnur Teitur Ottesen og Bryndís Ottesen hjá ráðgjafa- og tæknifyrirtækinu Brambolti. Brambolt er nýtt ráðgjafa­ og tæknifyrirtæki Starfsemi á Akranesi og í Danmörku Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst Svipmynd frá útskriftarathöfninni. Háskólaþorpið í Norðurárdal. Vilhjálmur Egilsson brautskráði nemendur.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.