Skessuhorn - 26.02.2020, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 202020
Ásmundur Einar Daðason félags-
málaráðherra hefur skipað Aðal-
stein Leifsson, framkvæmdastjóra
hjá EFTA, sem ríkissáttasemjara
frá og með 1. apríl nk. Helga Jóns-
dóttir settur ríkissáttasemjari mun
gegna störfum fram til þess tíma.
Alls bárust sex umsóknir um emb-
ættið en einn umsækjandi dró á síð-
ari stigum umsókn sína til baka.
Aðalsteinn lauk MBA námi frá
Edinburgh Business School / Her-
riot Watt University í október
2004. Auk þess hefur hann lok-
ið MSc námi frá London Scho-
ol of Economics (LSE). Þá stund-
aði hann doktorsnám í samninga-
tækni hjá Greneoble Ecole de
Management samhliða vinnu á ár-
unum 2016-2018. Frá því í janúar
2014 hefur Aðalsteinn leitt dagleg-
an rekstur EFTA sem hefur starfs-
töðvar í Genf, Brussel og Luxemb-
urg og tæplega eitt hundrað starfs-
menn.
mm
Eitt af verkum Baska á sýningunni.
Áætlað er að Vínlandssetur í Búð-
ardal verði opnað á sumardag-
inn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl
næstkomandi. Framkvæmdir við
Vínlandssetur standa nú yfir, en
setrið verður sem kunnugt er stað-
sett í Leifsbúð, við sjávarsíðuna í
Búðardal. „Verið er að taka húsið
í gegn, skipuleggja rýmið og gera
það hæft fyrir rekstur,“ segir Jó-
hanna María Sigmundsdóttir, verk-
efnastjóri atvinnu-, markaðs- og
ferðamála hjá Dalabyggð, í samtali
við Skessuhorn fyrir helgi. „Á efri
hæðinni verður sett upp sýning-
in og er hún að verða tilbúin fyr-
ir uppsetningu, en verið er að klára
neðri hæðina núna þar sem verð-
ur veitingarekstur,“ segir Jóhanna
María. Hún segir áformað að setr-
ið verði opnað með pompi og prakt
á sérstakri opnunarhátíð á sumar-
daginn fyrsta.
kgk
Leifsbúð í Búðardal, þar sem Vínlandssetur verður til húsa. Ljósm. úr safni/mm.
Vínlandssetur opnað fyrsta sumardag
Aðalsteinn Leifsson skipaður
ríkissáttasemjari
Fjölmenni mætti á sýn
ingu Baska um helgina
„Fyrirgefið þetta lítilræði“
Myndlistarmaðurinn Bjarni Skúli
Ketilsson, eða Baski eins og hann er
jafnan kallaður, hélt um liðna helgi
myndlistarsýningu í gamla Iðnskól-
anum á Akranesi. Við opnun sýn-
ingarinnar klukkan tvö á laugar-
daginn komu fram þau Halla Jóns-
dóttir og Heiðmar Eyjólfsson og
fluttu nokkur lög fyrir gesti. Að því
loknu bauð Baski gestum að gæða
sér á kræsingum sem hann hafði
komið fyrir á borði í sýningarsaln-
um. En veisluboðið var einmitt
hluti af sýningunni og endurspegl-
aði eitt af málverkum hans á veggn-
um við hliðina. Áður en hann hann
bauð gestum að fá sér af kökunum
sagði hann stuttlega frá því að þegar
hann málaði myndina. Hann hafði
verið að hugsa hvað það væri sem
sameinaði okkur Íslendinga og datt
honum þá í hug allar þær hnallþór-
ur sem húsmæður áður fyrr báru
gjarnan á borð fyrir gesti. Málaði
hann veisluborð með öllum helstu
íslensku hnallþórunum og stillti
upp fyrir framan verkið borði með
sömu hnallþórum og kallaði hann
verkið „Fyrirgefið þetta lítilræði“.
arg
Verkið „Fyrirgefið þetta lítilræði“.
Baski útskýrir verkið fyrir gestum
og býður fólki svo að gæða sér á
góðgætinu.