Skessuhorn


Skessuhorn - 26.02.2020, Side 25

Skessuhorn - 26.02.2020, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 2020 25 Síðastliðinn mánudag bauð Menntaskóli Borgarfjarðar öll- um nemendum í níunda og tíunda bekk í Grunnskóla Borgarfjarðar og Grunnskóla Borgarness í heim- sókn. Hefðbundin kennsla var felld niður og nemendur menntaskól- ans tóku að sér hlutverk gestgjafa og fóru með gestina um skólann. Í MB höfðu kennarar sett upp ýms- ar stöðvar til að kynna hluta af því námi sem við boði er. Meðal ann- ars var krufinn refur, sýnd eðlisfræ- ðitilraun með pendúl, nammistöð til að læra um mismunandi bragð, kynning á félagsfræði og mismun- andi menningu og fjölmargt fleira. Að endingu var svo borðað saman. „Þessi dagur var skemmtilegur í alla staði og við þökkum nemendum og kennurum þeirra kærlega fyr- ir komuna,“ segir Bragi Þór Svav- arsson skólameistari. Meðfylgjandi myndir eru úr heimsókninni. mm Eiður Smári Björnsson er ungur maður búsettur á Akranesi. Hann stofnaði nýverið flutningafyrir- tækið EB Flutninga og hóf sjálf- stæðan atvinnurekstur. „Ég geri út frá Reykjavík og flest verkefnin eru þar. En ég sinni líka Akranesi og Borgarnesi og svæðunum þar í kring. Ég get alltaf tekið sendingar með mér heim á bílnum í lok dags ef svo ber undir,“ segir Eiður í sam- tali við Skessuhorn. Helstu verk- efni hans fyrstu mánuðina hafa ver- ið flutningar á búslóðum, en auk þess hefur hann keyrt nokkuð fyrir málmendurvinnslu. Þá sækir hann alls kyns málma sem endurvinnsl- an kaupir úti í bæ og skilar þeim til vinnslunnar. Eiður segir að rekstur- inn hafi gengið ágætlega í upphafi. „Þetta er búið að fara sæmilega vel af stað og betur en ég þorði að bú- ast við,“ segir Eiður. „Ég hef haft alveg þokkalegt að gera, en janúar og febrúar eru erfiðir mánuðir. Það er alltaf minna að gera þessa fyrstu tvo mánuði ársins, ég varð líka var við það þegar ég var að vinna ann- ars staðar,“ segir hann. Draumur að rætast Með því að stofna til eigin rekstrar segir Eiður að langþráður draumur hafi ræst. „Það hefur verið draum- ur hjá mér lengi að stofna mitt eigið fyrirtæki. Ég byrjaði fyrst að hugsa um þetta af einhverri alvöru þegar ég var 19 ára,“ segir Eiður, sem er 24 ára í dag og hefur starfað sem bílstjóri undanfarin ár. „Ég byrjaði að keyra vörubíla hjá Gámaþjón- ustunni þegar ég var 21 árs, en hef líka unnið hjá bæði Vörumiðlun og ÞÞÞ. Það var fínasta reynsla að hafa unnið á þessum stöðum áður en ég byrjaði að starfa sjálfstætt,“ segir hann, en Eiður er hæstánægð- ur með hafa farið út í eigin rekst- ur. „Ég er mjög stoltur af því að hafa látið verða af þessu og fjöl- skyldan er líka stolt af mér. Þetta er bara eintóm hamingja,“ segir hann. „Mér finnst þetta mjög gam- an og sé ekki fyrir mér að fara aft- ur að vinna fyrir aðra,“ bætir Eiður við léttur í bragði. „Það er ákveð- ið frelsi sem felst í eigin rekstri en á móti kemur að það er bara nýr yfirmaður sem er kúnninn. Mað- ur þarf að gera það sem hann vill. En það veitir mér meiri ánægju að gera þetta svona en þegar ég var að keyra fyrir aðra,“ segir hann. Eiður ekur MAN kassabíl, sem er svokallaður tólf bretta sendi- ferðabíll. Sem stendur er hann eini starfsmaður eigin fyrirtækis en ef vel gengur vonast hann til að EB Flutningar geti vaxið í framtíðinni. „Það eru einhver plön uppi um það, en það eru bara hugmyndir á þessu stigi og fer bara eftir því hvern- ig gengur. Ég verð einn í bili og þannig verður það þangað til veltan eykst. Þá sjáum við bara hvað ger- ist,“ segir Eiður Smári Björnsson að endingu. kgk Par lenti í vandræðum eftir að hafa farið ofan í Landbrotalaug á Snæ- fellsnesi á föstudagskvöld í liðinni viku. Þegar þau komu upp úr laug- inni voru fötin þeirra frosin og þau brugðu á það ráð að ganga á sund- fötunum til baka að bílnum sínum. Þau villtust hins vegar á leiðinni í bílinn og kölluðu eftir aðstoð um tíu mínútum fyrir ellefu. Lögregla fór á staðinn ásamt sjúkraflutninga- mönnum auk þess sem björgunar- sveit var ræst út og haft var sam- band við mann sem vitað var að væri nálægt. Tilkynning barst um 20 mínútur yfir ellefu um að fólk- ið hefði fundið bílinn sinn og var björgunarsveit þá afturkölluð. Var fólkið fært yfir í lögreglubifreið- ina þar sem það fékk húfur, teppi og föt. Kalt var á svæðinu, tveggja gráðu frost, nokkur vindur og skóf öðru hvoru. Fólkinu var því orð- ið ansi kalt eftir um hálfa klukku- stund á sundfötum einum klæða við þessar aðstæður og í raun mildi að ekki fór verr. Lögregla ók parinu til móts við sjúkrabifreið sem flutti það í Borgarnes. kgk Villtust á leið úr Landbrotalaug Stofnaði eigið flutningafyrirtæki Eiður Smári Björnsson hjá EB Flutningum fyrir framan bílinn. Ljósm. aðsend. Buðu elstu grunnskóla­ nemunum í heimsókn í MB

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.