Skessuhorn - 26.02.2020, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 202028
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Hettupeysur
fáð� verðtilboð fyrir þin� hóp
www.smaprent.is • smaprent@smaprent.is • sími 666-5110
Ef verslað er fyrir 10.000 kr eða meira
er enginn sendingarkostnaður!
www.smaprent.is
900 kr/stk
Verð áður 1.290 kr/stk
1.290 kr/stk
1.500 kr/stk
Verð áður 2.990 kr/stk
990 kr/stk
400 kr/stk
Verð áður 1.990 kr/stk
1.990 kr/stk 1.490 kr/stk
Elís�
w
w
w
.s
m
ap
re
n
t.
is
TI
LB
O
Ð
SH
O
R
N
Við sendum út
um alLt LAND!
Ég las í Skessuhorni 12. febrúar sl.
að búið væri að nýju að setja kross
á malarhauginn, þar sem þjónustu-
miðstöð fyrir Þjóðgarðinn Snæfells-
jökul á að rísa á Hellissandi. Málið
hefur reyndar verið á dagskrá síðan
þjóðgarðurinn var stofnaður um síð-
ustu aldamót. Þegar svo hefjast átti
handa, voru öll tilboð í verkið langt
yfir kostnaðaráætlun. Eins og vindar
blása í dag í þjóðfélaginu, verður lík-
legt að enn þurfi að bíða.
En þarf að byggja sérstaka þjón-
ustumiðstöð og það á Hellissandi?
Ég hef haft mínar efasemdir um
það.
Fljótlega eftir stofnun Þjóðgarðs-
ins var opnuð gestastofa í fjárhúsum
á Hellnum. Hún dugði vel til að byrja
með en síðan var hún flutt í önnur
fjárhús á Malarrifi. Sá flutningur hef-
ur tekist vel, enda Malarrif um margt
kjörinn staður innan Þjóðgarðsins.
Hvorki Hellissandur eða Hellnar eru
innan hans. Í nágrenni Malarrifs eru
margir áhugaverðustu staðirnir innan
Þjóðgarðsins, s.s. Lóndrangar, Sval-
þúfa, Vatnshellir, Djúpalónssandur
og Dritvík. Þá finnst ýmsum að Snæ-
fellsjökull njóti sín hvergi betur en
frá Malarrifi. Malarrifsviti setur svo
sinn svip á staðinn. Af hverju ekki að
gera Malarrif að þjóðgarðsmiðstöð?
Nýta má allar byggingar á staðnum
s.s. íbúðarhús og bæta aðstöðu fyrir
þjóðgarðsvörð og aðra starfsmenn.
Hafa fasta viðveru á staðnum.
Nú er verið að gera gamla félags-
heimilið að Breiðabliki að upplýs-
ingamiðstöð fyrir allt Snæfellsnes,
ekki síst Þjóðgarðinn Snæfellsjökul.
Þarna er e.k. inngangur að Snæfells-
nesi og eðlilegt að Þjóðgarðurinn sé
þar í öndvegi. Í þéttbýlisstöðunum
á norðanverðu Snæfellsnesi þarf að
vera kynningaraðstaða í tengslum
við ferðaþjónustu á stöðunum og á
Gufuskálum eru mikil húsakynni
t.d. fyrir geymsluaðstöðu og til að
fá upplýsingar um Þjóðgarðinn fyrir
þá sem koma í hann um norðanvert
Snæfellsnes.
Svæðisgarðurinn Snæfellsnes get-
ur svo tengst betur verkefnum Þjóð-
garðsins og tengt öll sveitarfélögin
á Snæfellsnesi við hann. Þá má ekki
gleyma því að fyrrum Kolbeinsstaða-
hreppur og fyrrum Skógarstrandar-
hreppur eru hluti Snæfellsness.
Stofnun Þjóðgarðsins Snæfellsjök-
uls var mikið heillaspor. Stór hluti
landsins undir Jökli komst í opinbera
eigu, en ella hefði verið hætta á því,
að þar risu sumarbústaðir og önnur
mannvirki um allt með tilheyrandi
einkavegum, raflínum o.s. frv. Einka-
aðilar ráðið mörgum landspildum. Þá
hefði ekki farið mikið fyrir bættri að-
stöðu fyrir ferðafólk
s.s. með göngustíg-
um, útsýnisaðstöðu
og snyrtingum. Það
hefði vissulega mátt
gera betur á vegum
Þjóðgarðsins, en
meta skal það sem
búið er þó að gera.
Niðurstaða mín er því sú að það
þurfi enga þjóðgarðsmiðstöð á Hell-
issandi og krossinn verði því áfram á
malarhaugnum. Peningana sem áttu
að kosta miðstöðina, mætti nýta til
margra þarfra hluta í Þjóðgarðinum.
Reynir Ingibjartsson,
Höf. er vinur Þjóðgarðsins Snæfells-
jökuls
Kross í stað Þjóðgarðsmiðstöðvar