Skessuhorn - 29.04.2020, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 20204
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Á tímamótum
Vafalítið má margan lærdóm draga af áhrifum þess veirufaraldurs sem nú
gengur yfir heimsbyggðina. Þrautalaust verður það ekki. Víða um heim
eru atvinnugreinar sem lamast um lengri eða skemmri tíma, ýmist vegna
tímabundinnar lokunar markaða eða beinna efnahagslegra þrenginga. Hér
á landi munar mestu um ferðaþjónustuna sem nánast hefur þurrkast út.
Mörg ár munu því líða þar til hún réttir úr kútnum og við getum vænst
þess að fólk ferðist að nýju milli landa eins og fyrir tíma Covid-19. Í ljósi
þess að ferðaþjónusta var orðin stærsta gjaldeyrisskapandi greinin verð-
ur efnahagshrunið hér djúpt. Stærstu uppsagnir í sögu þjóðarinnar eru nú
að ganga yfir, tvö þúsund manns hjá Icelandair í gær, og vafalítið annar
eins fjöldi eða meiri í öðrum fyrirtækjum í gær og í dag. Þetta verður því
bakki.
En þegar einar dyr lokast þarf að opna aðrar. Varðandi ferðaþjónustuna
blasir við að Íslendingar munu ferðast innanlands í sumar og nú þegar má
greina þess merki að sprækustu ferðaþjónustufyrirtækin eru farin að beina
sjónum til okkar. Við munum því án efa nýta í sumar þá frábæru aðstöðu
sem byggð hefur verið upp víðs vegar um landið. Áfram munu verða gefin
sumarfrí og það er engin ástæða til að vanmeta íslenska markaðinn. Við
verðum fínir viðskiptavinir, rétt eins og þegar við dveljum erlendis.
Nú þurfa bæði stjórnvöld og frumkvöðlar að sýna snerpu og grípa önnur
sóknarfæri sem til eru. Vissulega eru þau mörg. Bent hefur verið á skyn-
semi þess að við eflum innlenda matvælaframleiðslu. Það er nefnilega svo
að sama hversu djúpar efnahagslægðirnar eru, fólk þarf alltaf að borða. Á
síðustu árum hafa frændur okkar í Færeyjum lagt höfuðáherslu á tvær at-
vinnugreinar; fiskveiðar og fiskeldi. Af þeim sökum búast menn við því að
þar í landi verði kreppan alls ekki svo djúp. Áfram verða nefnilega opnir
markaðir fyrir mat.
Til skemmri tíma er fjölmargt sem við Íslendingar getum gert til að
bregðast við fækkun erlendra ferðamanna. Það eina sem við þurfum er að
líta á hvað við erum góð í og nýta þá þekkingu sem við búum yfir betur
en við höfum gert á síðustu árum. Við getum til dæmis stóraukið ræktun.
Útiræktað grænmeti seldist upp síðasta haust jafnharðan og það var tekið
upp úr moldinni. Mig minnir að hvítkál og spergilkál hafi verið uppselt í
nóvember og þá var farið að flytja þessa vöru inn með tilheyrandi sóun á
gjaldeyri. Þessa ræktun eigum við að auka, höfum bæði land og þekkingu
til að láta það raungerast strax í sumar. Við getum einnig á stuttum tíma
byggt fleiri gróðurhús og sótt fram með því að nýta bæði jarðhita og ódýra
innlenda raforku til kyndingar og lýsingar. Við getum sömuleiðis brotið
land, ræktað gras og sáð korni til að afla fóðurs fyrir aukinn fjölda búfjár.
Allt fellur þetta í þann sama flokk að nýta auðlindirnar sem við eigum; land,
hreint vatn, orku og mannauð.
Loks verð ég að nefna að við getum sömuleiðis aukið verðmætasköpun
í sjávarútvegi og fiskeldi. Undanfarin ár hefur fiskur í stórum stíl verið
fluttur óunninn úr landi. Það er nánast dapurlegt að sjá heila laxa lagða í
frauðplastkassa til útflutnings og vinnslu einhvers staðar í fjarlægum lönd-
um. Á sama tíma standa fiskvinnsluhús hér heima jafnvel tóm, án verkefna.
Stjórnvöldum ætti ekki að vera í lófa lagið að breyta lagaumgjörð hvað
þetta snertir í snatri þannig að hér heima gætum við unnið þessa vöru í
neytendapakkningar og stóraukið verðmæti íslensks sjávarfangs.
Fyrst og fremst verðum við að sætta okkur við þá staðreynd að heimur-
inn verður ekki samur og hann var fyrir tíma Covid-19. Nú eru kaflaskil og
því fyrr sem við flettum í bókinni, því betra.
Magnús Magnússon
Heilbrigðisráðherra hefur í sam-
ræmi við tillögu sóttvarnalæknis
breytt gildandi reglum um sóttkví.
Með þeim verður öllum sem koma
til landsins skylt að fara í sóttkví í
14 daga frá komu. Samhliða var
tekið upp tímabundið landamæra-
eftirlit á innri landamærum. Regl-
urnar komu til framkvæmda síðast-
liðinn föstudag og falla að óbreyttu
úr gildi 15. maí. Krafa um sóttkví á
við um komu fólks frá löndum sem
sóttvarnalæknir skilgreinir sem há-
áhættusvæði en sem stendur á það
við um öll lönd. Reglulega verður
endurmetið hvort einhver lönd falli
ekki lengur undir þessa skilgrein-
ingu.
mm
Hætta skapaðist á árekstri Breiðar-
fjarðarferjunnar Baldurs og þang-
skipsins Grettis á siglingu þeirra
um Breiðafjörð 16. ágúst í fyrra.
Stjórnendur beggja skipanna hefðu
báðir mátt sýna meiri aðgæslu og
ræða saman í talstöð um fyrirætl-
anir sínar. Hefði það verið gert eru
allar líkur á að engin árekstrarhætta
hefði skapast. Þetta er niðurstaða
sérfræðiálits sem sjóslysasvið Rann-
sóknarnefndar samgönguslysa fékk
vegna málsins. Nefndin tekur und-
ir álitið og segir að um mjög alvar-
legt atvik hafi verið að ræða. Baldur
hafði 42 farþega innanborðs í þess-
ari siglingu, auk tíu manna áhafnar,
en fjórir skipverjar voru um borð í
Gretti.
Tíu metrar milli skipa
Atvikum er lýst þannig að Baldur
hafi verið á leiðinni frá Flatey til
Brjánslækjar. Þegar skipið var statt
vestur af Hrauneyjarklettum um kl.
11:15 var Grettir þar á siglingu og
einnig á norðlægri stefnu. Baldur
var að draga Gretti uppi, ferjunni
var siglt á um 12,5 hnúta hraða
en Gretti á um það bil níu hnút-
um. Þurftu stjórnendur skipanna
að gera ráðstafanir til að forðast
árekstur, Grettir með því að beygja
á stjórnborða en Baldur með því að
bakka. Þegar minnst var er áætlað
að fjarlægðin milli skipanna hafi
ekki verið meiri en um það bil tíu
metrar.
Ólík sjónarmið
skipstjórnenda
Að því er fram kemur í skýrslu
rannsóknarnefndarinnar kvaðst
skipstjóri Grettis ítrekað hafa reynt
að ná sambandi við Baldur í talstöð-
inni en án árangurs. Skipstjórnandi
Baldurs vísaði því hins vegar á bug,
að því er fram kemur í skýrslunni.
Þar segir sömuleiðis að vegna mjög
ólíkra sjónarmiða hafi nefndin leit-
að sérfræðiáltis. Í sérfræðiálitinu
segir að stjórnandi Baldurs hefði
átt að sýna meiri aðgæslu á sigl-
ingu sinni þar sem annað skip var
siglt uppi, þar sem stutt hefði ver-
ið á milli skipanna og siglingarleið-
in þröng. Hins vegar þyrfti um leið
að geta þess að stjórnandi Grettis
hefði sömuleiðis mátt vita að hann
væri að skapa hættu á árekstri með
því að snúa til stjórnborða í veg fyr-
ir Baldur. Þó að litið væri svo á að
Baldur hafi vikið fyrir Gretti og
hleypt honum fram fyrir sig þá var
Baldur allan tímann meira en 22,5°
fyrir aftan þverskipsstefnu Grett-
is, bæði þegar hann hafði Gretti á
stjórnborða en einnig þegar Grett-
ir var kominn yfir á bakborða og
beygði til stjórnborðs svo leiðir
skipanna skárust aftur. Þá sýni sjó-
kort sömuleiðis að stjórnandi Bald-
urs hefði mátt vita að Baldur gæti
ekki haldið óbreyttri stefnu vegna
grynninga, þó hann þyrfti ekki að
búast við því að stefnu Grettis yrði
breytt jafn mikil til stjórnborða og
raun varð. „Þarna hefðu báðir aðil-
ar mátt sýna meiri aðgæslu og ræða
saman í talstöð um sýnar fyrirætl-
anir, sem hefði að öllum líkindum
komið í veg fyrir atvikið,“ segir í
sérálitinu sem rannsóknarnefndin
tók undir.
kgk
Félag hrossabænda hefur ákveð-
ið að blása til landssýningar á kyn-
bótahrossum laugardaginn 27. júní
á Rangárbökkum við Hellu. Þar
verða tíu efstu hross landsins, eft-
ir dóma vorsins, ítarlega kynnt
og verðlaunuð, í öllum flokkum
hryssa og stóðhesta. Einnig verða
afkvæmasýningar en þeir stóðhest-
ar sem eiga rétt á fyrstu- og heið-
ursverðlaunum fyrir afkvæmi geta
komið fram á sýningunni og verða
verðlaunaðir. Allir þeir verðlauna-
gripir sem veittir eru á landsmót-
um í einstaklingssýningum og til
handa afkvæmahestum verða veitt-
ir við þetta tilefni.
„Viðburðurinn verður afar vel
kynntur á vefnum og aðgengileg-
ur þar í gegnum beint streymi en
einnig verður dagurinn tekin upp á
myndband til varðveislu í World-
Feng. Þá munu áhorfendur verða
velkomnir byggt á þeim reglum
um sóttvarnir vegna Covid-farald-
ursins sem verða í gildi á þessum
tíma,“ segir í tilkynningu frá fé-
laginu. mm
Breiðafjarðarferjan Baldur. Ljósm. úr safni/ sá.
Hefðu báðir mátt sýna meiri aðgæslu
Landssýning kynbótahrossa á
Hellu í lok júní
Byr frá Borgarnesi tekinn til kostanna af Jakobi Svavari Sigurðssyni á sýningu á
Miðfossum. Ljósm. úr safni frá 2014/iss.
Allir í sóttkví við komu til landsins