Skessuhorn


Skessuhorn - 24.06.2020, Qupperneq 11

Skessuhorn - 24.06.2020, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 2020 11 FORSETAKOSNINGAR AUGLÝSING UM SKIPAN Í KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ Við forsetakosningar laugardaginn 27. júní 2020 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (Menntaskólanum) í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykja- dals, Flókadals og Reykholtsdals. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna. Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. Á kosningavef Stjórnarráðs Íslands kosning.is geta kjósendur kannaðhvar þeir eiga að kjósa og þar eru ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7708. Kjörstjórn Borgarbyggðar Snæfellsbær Auglýsing um kjörfundi vegna forsetakosninga laugardaginn 27. júní 2020 Ólafsvíkurkjördeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík. Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00 Hellissands- og Rifskjördeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Hellissandi. Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00 Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Lýsuhóli. Kosning hefst kl. 11:00 og stendur til kl. 20:00 Munið eftir persónuskilríkjum. Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar SK ES SU H O R N 2 02 0 Á þjóðhátíðardaginn var Dagrún Matthíasdóttir myndlistarmaður með opið hús í gestavinnustof- unni ArtAk350 í Grundarfirði og sýndi olíumálverk þar sem fjal- lendi frá heimahögum var í aðal- hlutverki. Dagrún er Ísfirðingur en er búsett á Akureyri þar sem hún starfar í myndlist og kennslu. Dagrún hefur víða komið við í myndlistinni, haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í sam- sýningum listamanna bæði hér- lendis og erlendis. Dagrún dvaldi á gestavinnustofunni ArtAk350 í vikutíma þar sem hún vann að list sinni og hugmyndaöflun þar sem hún sótti innblástur í umhverfið. nokkur verka Dagrúnar eru til sýnis í Sögumiðstöðinni og verða fram eftir júlí samkvæmt upplýs- ingum á facebook síðu Grundar- fjarðarbæjar. mm/ Ljósm. sm. Menningarnefnd Snæfellsbæjar valdi Skógræktarfélag Ólafsvíkur sem Snæfellbæing ársins 2020. Val- ið var tilkynnt á þjóðahátíðardag- inn, en félagar í skógræktarfélaginu hafa unnið gott starf undanfarin ár á svæði félagsins í Réttarskógi. Það var Hilmar Már Arason gjaldkeri félagsins sem tók við viðurkenn- ingu menningarnefndar, en á með- fylgjandi mynd er hann ásamt Erlu Gunnlaugdóttur formanni menn- ingarnefndar og Ragnheiði Víg- lundsdóttur, en Vagn Ingólfsson er formaður Skógræktarfélagsins. Snæfellbæingur ársins er útnefndur hvert ár á þjóðhátíðardeginum. af Á undanförnum vikum og misser- um hefur í vaxandi mæli orðið vart við truflanir á farsímasambandi á höfuðborgarsvæðinu og víðar sem tengist bilun í örbylgjuloftnetum. Loftnetin voru notuð til að dreifa Fjölvarpinu fram til 2017 þegar þeim útsendingum var hætt. Á það meðal annars við um Akranes. Ör- bylgjuloftnetin eru enn víða á hús- um og ef þau eru enn í sambandi við rafmagn veldur það truflunum á farsímasambandi í og við þau hús. Dæmi um truflanir af þessum or- sökum eru minni gæði á talsam- bandi farsíma, SMS komast ekki til skila í fyrstu tilraun, símtöl ná ekki í gegn í fyrstu tilraun og þau slitna, streymi er hægt og höktir auk þess sem almenn netþjónusta og gagna- flutningur er hægur. Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur m.a. það hlutverk að vakta truflanir á fjarskiptum, taka við kvörtunum og grípa til aðgerða þegar þörf er á. Stofnunin mun í samstarfi við fjarskiptafélögin nova, Símann og Vodafone í júní og júlí standa fyrir átaki til að finna þessar truflanir, og vinna bug á þeim. Talið er að allt að 20-30 þús- und loftnet á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum geti verið að valda truflun og er verk- efnið því viðamikið. „Til að kom- ast fyrir þessa truflun sem fyrst og Truflanir á farsímasambandi vegna örbylgjuloftneta á sem skemmstum tíma biðlum við til húseigenda á þessum svæðum að ganga í lið með okkur við að upp- ræta truflunina. Það er hægt að gera með þeim einfalda hætti að kanna fyrst hvort örbylgjuloftnet sé að finna á húsum og ef svo reyn- ist, þarf að finna út úr því hvort þau séu enn þá tengd rafmagni og taka spennugjafa þeirra úr sambandi ef svo er,“ segir í tilkynningu frá PFS. PFS hefur sett upp sérstaka leið- beiningasíðu á vef stofnunarinnar þar sem hægt er að nálgast upp- lýsingar um búnaðinn og hvernig hann skal aftengdur: https://www. pfs.is/fjarskipti/tidnir-og-taekni/ truflanir/truflanir-a-farsimasam- bandi-af-voldum-orbylgjuloftneta/ mm Skógræktarfélag Snæfellsbæjar er Snæfellsbæingur ársins Dagrún sýndi í Grundarfirði

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.